Fréttablaðið - 31.10.2016, Síða 9

Fréttablaðið - 31.10.2016, Síða 9
Hluthafafundur N1 hf. Stjórn N1 hf. boðar til hluthafafundar mánudaginn 21. nóvember 2016 klukkan 16.00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Dagskrá fundarins 1. Tillaga um 28,6% lækkun hlutafjár. 2. Önnur mál löglega upp borin. Tillaga stjórnar um hlutafjárlækkun í félaginu er svohljóðandi: „Hluthafafundur N1 hf. haldinn mánudaginn 21. nóvember 2016 samþykkir að færa niður hlutafé félagsins um kr. 100.000.000 að nafnverði, og að auki yfirverðsreikning hlutafjár og lögbundinn varasjóð um samtals kr. 1.186.542.720 eða alls um kr. 1.286.542.720, og verði fjárhæðin greidd út til hluthafa félagsins hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra í félaginu í lok dags. 16. desember 2016, ef lögboðnar forsendur verða fyrir útgreiðslunni á þeim tíma, en ellegar við fyrsta mögulega tímamark eftir að lögboðnar forsendur fyrir útgreiðslunni hafa verið uppfylltar.“ Greinargerð stjórnar: N1 hf. gekk í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu um mitt ár 2011. Lánardrottnar félagsins eignuðust allt hlutafé þess í kjölfarið. Grunnstef í þeirri vinnu sem unnin var áður en lánardrottnarnir tóku félagið yfir var að skila inná markaðinn fjárhagslega sterku félagi sem væri vel í stakk búið til að mæta samkeppni á eldsneytismarkaði. Nú hafa allir hlutir félagsins verið skráðir á opinberum markaði eins og að var stefnt. Hluti af fjárhagsstefnu félagsins sem stjórn og hluthafar hafa samþykkt er að halda eigin fé þess í kringum hlutfallið 40%. Til að ná þessu marki var hlutafé félagsins lækkað samkvæmt ákvörðun hluthafafundar í október árið 2014, á aðalfundi 2015 og á hluthafafundi í nóvember 2015. Nú leggur stjórn N1 enn og aftur til með hliðsjón af niðurstöðu árshlutareiknings fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2016 að hlutafé félagsins verði lækkað um tæpan 1,3 milljarða króna og fjárhæðin verði greidd út til hluthafa þess í samræmi við hlutafjáreign þeirra í félaginu. Með þessu er stefnt að því að hlutfall eigin fjár verði um 40% í lok ársins. Ef tillagan verður samþykkt, þá hefur viðskiptabanki félagsins, Landsbankinn hf., samþykkt fyrir sitt leyti ráðstöfunina, vegna lána sinna til þess. Aðrar upplýsingar: Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir hluthafafundinn verður að finna á vefsíðu félagsins www.n1.is/fjarfestatengsl. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi, virka daga milli klukkan 9:00-16:00. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@n1.is eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir klukkan 16.00 miðvikudaginn 16. nóvember 2016. Hluthafar eiga rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef þeir gera um það skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundar skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@n1.is eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn, þ.e. fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 7. nóvember 2016. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 16.00 þann dag sem hluthafafundurinn verður haldinn. Stjórn N1 hf. Helga Þórðardóttir Oddný Harðardóttir Já mér finnst eðlilegt að fá stjórn-arumboðið. Ég ætla að benda á nokkrar augljósar staðreyndir. Við erum með mest fylgi í öllum kjördæmum. Við erum með fyrsta þingmann allra kjördæma. Við höfum rétt tæplega þrefalt meira fylgi en Viðreisn. En mér finnst þetta enginn staður til að takast á um þetta. Ég sóttist eftir því að fá að leiða síðustu ríkisstjórn í ljósi niður- stöðu kosninganna þegar ég gekk á fund Ólafs Ragnars. En þar varð önnur niðurstaða og ég var alveg sáttur að vinna með hana líka. Ég er bara í þessu fyrir ávinning lands- manna. Ég er ekki í þessu út af per- sónulegum metnaði.“ V V i ð e r u m n átt ú r u l e g a mjög ánægð, við bætum við okkur fimm prósentu- stigum og fáum tíu þingmenn. Við erum ofboðslega sátt með það að vera  orðin önnur stærsta stjórn- málahreyfing landsins á Alþingi. Við erum afskaplega þakklát fyrir þennan stuðning og teljum hann auðvitað til marks um það að okkar skýra stefna fyrir þessar kosningar og mikla vinna hafi hlotið góðan hljómgrunn. Katrín Jakobsdótt- ir  hlaut mikið persónulegt fylgi en  Vinstri grænir hlutu 20,9 pró- sent atkvæða í Reykjavík Norður, kjördæminu sem hún leiddi.  „Ég er sérstaklega þakklát fyrir þann mikla stuðning sem ég fékk.“ Mikið hefur verið rætt um hvort VG verði í næstu ríkisstjórn, en Katrín sagði í gær að samstarf við Sjálfstæðisflokkinn myndi enda illa fyrir sig í hádegisfréttum Stöðvar 2.  „Ég get ekki sagst vera vongóð um að við verðum endilega í næstu ríkisstjórn, þar sem það er ekki aug- ljóst hvernig nákvæmlega hún mun líta út, en ég er mjög vongóð um það að við munum hafa mikil áhrif fyrir okkar stefnu hvernig sem það nú verður.“ É g held að það sé nokkuð aug-ljóst í ljósi niðurstöðu kosning-anna að mörgum leiðum hefur verið hafnað, byltingu Pírata, vinstri- stjórn, núverandi ríkisstjórn. Þetta er flókin úrlausnastaða skulum við segja. Það þarf að kalla þingið saman innan tíu vikna og við þurfum líka að setja fjárlög fyrir áramót, það hefur legið fyrir að þessi tími kosninga sé ekki heppilegur út af því. En það er þá í höndum sitjandi ríkisstjórnar að leysa úr því ef ekki verður komin ný. Ég hef lýst því yfir að ýmsir geti lýst sig sigurvegara. En það hlýtur að vera sá flokkur sem er stærstur og leiðir í öllum kjördæm- um sem er hinn augljósi sigurvegari.“ Sigurður Ingi fundaði með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, í gær til að biðjast lausnar fyrir sig og ríkisstjórn sína. Hann hlaut lausnina en vildi ekki tjá sig um hvort hann ráðlagði forsetanum að veita Sjálf- stæðisflokknum umboð. „Ég vísa ekki í tveggja manna tal... Það má leggja saman tvo og tvo oft og oft fá út fjóra,“ sagði Sigurður Ingi en hann leiddi ríkisstjórnina í rúma sex mánuði. Hann tók við formennsku í Framsóknarflokknum af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Þetta voru auðvitað alveg afskaplega slæmar niður-stöður. Niðurstöður svörtustu kannana raungerðust eftir þessar kosningar, og það eru auðvitað mikil vonbrigði. Við þurfum að fara yfir alla hluti hjá flokknum. Við þurfum að fara yfir rekstur- inn, starfið og hvernig við höldum áfram inn í framtíðina. Við ætlum að byggja okkur upp. Við þurfum að finna leiðir til þess. Við munum halda ótrauð áfram, en það er auð- vitað ekki ljóst hvernig við gerum það, og hvaða skref við stígum í þá átt. Við ætlum að láta rykið setjast og finna síðan tækifæri til að tala við flokksmenn um framhaldið. Það kemur allt til greina sem er gott fyrir flokkinn, ég tek ákvörðun um áframhaldandi setu mína sem for- maður með félögum mínum.“ 1,7% 5,7% Katrín Jakobsdóttir 15,9% Bjarni Benediktsson 29% Sigurður Ingi Jóhannsson 11,5% Helgi Helgason 0,2% Þetta eru vissulega mikil von-brigði, en  ég er  jafnframt mjög stolt af kosningabarátt- unni okkar. Ég er mjög sátt við þá drengilegu baráttu sem við háðum. Mér fannst við vera málefnaleg og við vorum með gleðina alla leið. Við reyndum að njóta þess að vera í framboði, allir voru mjög sáttir, nema með niðurstöðuna. Við áttum von á meiru. Kannski var fólk að kjósa taktískt, ég veit það ekki, það eru alls konar vangaveltur í gangi hjá okkur. Við trúum á þær lausnir sem við komum með, og við vonum að aðrir flokkar taki það upp. Við höfum ekki tekið ákvörð- un varðandi framhaldið.“ Áður en að þessi skellur kom á okkur þar sem fólk gekk úr flokknum til að reyna að eyðileggja framboðið þá vorum við stærstir í öllum skoðanakönn- unum varðandi litlu flokkana. Við vorum komin með 3,2 prósent fylgi á landsvísu og gerðum okkur vonir um að komast inn á þing á þeim tímapunkti. En auðvitað dofnuðu þær vonir svo. Við vitum að við eigum hljómgrunn. Við vorum að vonast til að fá meiri stuðning, en þetta er bara niðurstaða, við erum ekki af baki dottin. Flokkurinn heldur áfram, við munum endur- skipuleggja hann. Við munum alveg örugglega taka þátt í næstu borgarstjórnarkosningum.“ f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 9M Á N U D A G U r 3 1 . o k t ó B e r 2 0 1 6 3 1 -1 0 -2 0 1 6 0 5 :1 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 D -7 3 3 0 1 B 1 D -7 1 F 4 1 B 1 D -7 0 B 8 1 B 1 D -6 F 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.