Fréttablaðið - 31.10.2016, Side 37
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI OG KEÐJUTANGIR
Keðjurnar eru til á allar gerðir vinnuvéla, vöru-
og flutningabifreiða, dráttarvéla og lyftara
FRAMÚRSKARANDI NORSKAR KEÐJUR
Hlekkir • Keðjulásar • Krækjur • Krókar
Krossbandakeðjur • Ferkantakeðjur • Þverbandakeðjur
Mottukeðjur • Zik-zak keðjur • Zik-zak keðjur
Keðjurnar eru til í
mörgum gerðum og
í öllum mögulegum
stærðum
15%
AF
SLÁ
TTU
R A
F Ö
LLU
M
KEÐ
JUM
Á L
AGE
R
VER
ÐLÆ
KKU
N V
EGN
A L
ÆK
KAÐ
S
GEN
GIS
EU
R.
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
442 1000
Nánari upplýsingar á rsk.is
Álagningu opinberra gjalda
á lögaðila árið 2016 er lokið
Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef
ríkisskattstjóra á rsk.is og skattur.is.
Álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag liggja frammi á
viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega
auglýstum stöðum dagana 31. október til 14. nóvember 2016
að báðum dögum meðtöldum.
Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem
álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 30. desember 2016.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt 98. gr. laga nr. 90/2003.
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag
Kosningasigur Sjálf-stæðisflokksins er eins og ný lægð sem þokast suð-suð-vestur af landinu – rigning í grennd.
Hann er eins og lögmál sem engu
verður breytt um. Og samt var
þetta enginn sigur. Og það er ekk-
ert lögmál að Sjálfstæðisflokkur-
inn sé í stjórn – það þarf bara að
skipuleggja sig vel gegn honum.
Sigur Sjálfstæðismanna er fyrst
og fremst á skoðanakönnunum.
En þeim tókst samt ekki að mjaka
sér yfir 30 prósenta mörkin. Sögu-
lega er það lágmarkshæð flokks-
ins. Sigurinn helgast af sundrungu
vinstri manna.
Hefðbundið fylgi Sjálfstæðis-
flokksins hefur í gegnum tíðina
jafnan verið nær 40 prósentum og
sárasjaldan undir 30, raunar bara
eftir Hrun og þegar Albert Guð-
mundsson og Borgaraflokkurinn
bauð fram árið 1987. Þá fékk
flokkurinn rúm 27 prósent en
Albert og félagar fengu rúm 10
prósent. Hulduhersfylgið endur-
heimti svo Davíð Oddsson í næstu
kosningum á eftir – og ginnti
kratana með sér út í Viðey – bætti
svo enn um betur þar á eftir og
var kominn yfir 40 prósent undir
aldamótin og fékk þar með fullt
umboð til að koma hér á eftir-
litslausum óðakapítalisma með
Framsókn, Kárahnjúkavirkjun,
FL-group og Hruni.
Það var sem sé alveg viss ástæða
fyrir hugmyndinni um að vinstri
menn ættu að sameina krafta sína
í einum stórum flokki jafnaðar-
manna – þó að allir virðist búnir
að gleyma því nú. Árið 2003, þegar
Össur var formaður og Ingibjörg
Sólrún í baráttusætinu í Reykja-
vík, fékk Samfylkingin 31 prósent
fylgi svo að stórlega veiklaður
Davíð hrökklaðist úr hásæti sínu
þó stjórn hans sæti að vísu enn …
Samfylkingin bar ekki gæfu til
að ávaxta vel þetta pund.
Panama-pamfílar
Af ísköldu miskunnarleysi höfn-
uðu kjósendur nú Samfylking-
unni, og svo eindregið að vandséð
er að flokkurinn eigi sér viðreisnar
von.
Svona kann þetta að líta út með
gests augum: Ráðherrar ríkis-
stjórnarinnar – Panama-pam-
fílarnir – verða uppvísir að því að
eiga leynireikninga kringum mis
ljósfælið fjármálavafstur; boðað
er til kosninga: Panama-pamfílar
eru kosnir á þing á ný en stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn
þurrkast út. Var þá stjórnarand-
stöðuflokkurinn í Panamaskjöl-
unum? spyr þá ófróður gestur. Að
vísu ekki, er svarið. Nú nú, hvað er
að ske? er enn spurt og svaranda
vefst kannski tunga um tönn. Ja
sko – gæti hann sagt: enn spyrðu
vel; Íslendingar eru hænsn ... En
það er ekki satt. Fólk er ekki fífl,
heldur hugsar kalt og yfirvegað
um sig og sína. Kjósendur Sjálf-
stæðisflokksins töldu sig einfald-
lega ekki fá raunhæfan valkost við
hann; og hugmyndin um alls-
herjar endurræsingu Íslands hjá
Pírötum gæti hafa hrakið ýmsa í
þann faðm.
Pólitík er aldrei sanngjörn. Við
eigum eftir að velta fyrir okkur
ráðgátunni um afhroð Sam-
fylkingar – við þurfum að gera
það – en Oddnýju Harðardóttur
verður ekki kennt um það, þó að
hún eigi eflaust eftir að segja af sér
sem formaður. Hún stóð sig vel í
kosningabaráttunni, var málefna-
leg og manneskjuleg en atkvæða-
lítil – varla nokkur sem heyrði í
henni. Ég er ekki heldur viss um
að þarna sé við Árna Pál að sakast.
Eða aðra einstaklinga. Þetta á sér
dýpri rætur en svo.
Eitt er að vinstri mönnum líður
ekki vel í einum stórum flokki
– þeir eru of miklir einstaklings-
hyggjumenn til að geta unað sér til
lengdar í flokki sem hefur um og
yfir þrjátíu prósenta fylgi. Þeir eru
vanir hægindum smáflokksins –
vilja vera „í sinn hóp“. Stundum er
talað um að frumskylda formanns
Sjálfstæðisflokksins sé að halda
liði sínu saman, með góðu og illu.
Einhvern veginn hefur maður ekki
skynjað þá hugsun hjá forystu
Samfylkingarinnar; það var eins
og allir ypptu öxlum hálfgeisp-
andi yfir því þegar Björt framtíð
var stofnuð kringum sömu stefnu
og Samfylkingin hefur og létu sér
vel líka þegar Píratar létu greipar
sópa um hefðbundin stefnumál
SF. Samt var það sjálf forsendan
fyrir tilveru Samfylkingar að þar
störfuðu saman ólíkir hópar,
ólíkir, jafnvel þrasgjarnir, armar
með ólík sjónarmið, en sameigin-
legar hugsjónir um jöfnuð, frelsi,
mannúð og félagshyggju. Einhvers
staðar gleymdist þetta; það stóð
aldrei til að Samfylkingin yrði
Alþýðuflokkurinn. Hvað þá Þjóð-
vaki. Kannski fór Samfylkingin
að trúa því sjálf að hún væri lítill
krataflokkur þegar hún álpaðist
í stjórn með íhaldinu 2007 og
gerðist á elleftu stundu ábekingur
Hrunsins.
En annaðhvort er Samfylkingin
flokkur með þrjátíu prósenta
fylgi – bandalag ólíkra hópa – eða
hún á sér engan tilverugrundvöll.
Þannig er komið fyrir henni nú,
hún er ekki einu sinni Alþýðu-
flokkurinn - hún er þarna lengst
niðri hjá öfgahópunum sem eru
þeim viljugri að kenna sig við
fylkingu sem fylgið er minna …
Vg er sigurvegarinn á vinstri
vængnum – aftur miðað við
skoðanakannanir. Og ekki bara
úr kosningunum heldur líka úr
sjálfri baráttunni, hvernig mál-
flutningurinn var, samkvæmur
sér, hófsamur og trúverðugur.
Flokkurinn er reyndar með fylgi
sem þótt hefði afhroð hjá Sam-
fylkingu á meðan hún var og
hét, en gott og vel: undir forystu
Katrínar Jakobsdóttur hefur Vg á
sér góðan svip; gott ef þau eru ekki
hreinlega nútímalegir jafnaðar-
menn, sem táknar allt annað nú
á dögum en það gerði á mektar-
árum Blairismans, sem lék Sam-
fylkinguna svo grátt. Því verður
ekki trúað að Vg fari í banvænan
faðm Sjálfstæðisflokksins, en
hitt er spurning dagsins: Á ríkis-
stjórnin sér viðreisnar von?
Ný lægð
Einhvers staðar gleymdist
þetta; það stóð aldrei til
að Samfylkingin yrði Al-
þýðuflokkurinn. Hvað þá
Þjóðvaki. Kannski fór Sam-
fylkingin að trúa því sjálf að
hún væri lítill krataflokkur
þegar hún álpaðist í stjórn
með íhaldinu 2007 og gerðist
á elleftu stundu ábekingur
Hrunsins.
Save the Children á Íslandi
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 3 1 . o k T ó B e R 2 0 1 6
3
1
-1
0
-2
0
1
6
0
5
:1
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
D
-5
A
8
0
1
B
1
D
-5
9
4
4
1
B
1
D
-5
8
0
8
1
B
1
D
-5
6
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K