Fréttablaðið - 31.10.2016, Side 38
Hvað gerðu Gylfi og Jóhann Berg?
Jóhann Berg Guðmundsson var í
byrjunarliði nýliða Burnley sem
gerðu sér lítið fyrir og sóttu stig á
Old Trafford. Jóhann Berg spilaði
mjög vel í leiknum, sérstaklega í
vörninni. Gylfi mætir Stoke í kvöld
Stærstu úrslitin Midd-
lesbrough vann
Bournemouth,
2-0, sem var
mikilvægt fyrir
nýliðana. Þeir voru
fyrir leikinn um
helgina ekki búnir að vinna í sjö
leikjum í röð.
Hetjan Tom Heaton, markvörður
Burnley, bauð upp á eina ótrú-
legustu frammistöðu í manna
minnum gegn United. Hann varði
allt sem kom á markið og var
öruggur allan leikinn.
Kom á óvart Jafntefli Burnley kom
hvað helst á óvart í umferð þar sem
nær öll efstu liðin unnu nema Tott-
enham sem gerði jafntefli við Eng-
landsmeistara Leicester. Burnley
sótti gott stig á Old Trafford.
Þetta West Ham-lið eru
svo mikil vonbrigði. Ömur-
leg kaup í sumar. Allir nýju
mennirnir hafa ekkert gert,
bara skemmt.
Magnús Andrésson
@MagnusAndresson
Nýjast
Sunderland 1 – 4 Arsenal
Man. Utd 0 – 0 Burnley
M.Boro 2 – 0 Bournemouth
Tottenham 1 – 1 Leicester
Watford 1 – 0 Hull
WBA 0 – 4 Man. City
C. Palace 2 – 4 Liverpool
Everton 2 – 0 West Ham
Southampton 0 – 2 Chelsea
Efst
Man. City 23
Arsenal 23
Liverpool 23
Tottenham 20
Chelsea 19
Neðst
West Ham 10
Stoke 9
Hull 7
Swansea 5
Sunderland 2
Enska úrvalsdeildin
Olís-deild kvenna
Grótta - Valur 25-29
Markahæstar: Sunna María Einarsdóttir 8,
Þórey Anna Ásgeirsdóttir 7, Emma Havin
Sardarsdóttir 3, Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir 2 - Díana Dögg Magnúsdóttir 8,
Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 4, Kristín Guð-
mundsdóttir 3.
Stjarnan - Fylkir 25-20
Markahæstar: Helena Rut Örvarsdóttir 8,
Solveig Lára Kjærnested 4, Hanna Guðrún
Stefánsdóttir 3, Nataly Sæunn Valencia
3 - Thea Imani Sturludóttir 8, Christine
Rishaug 4, Þuríður Guðjónsdóttir 4, Hildur
Björnsdóttir 2.
Haukar - Selfoss 27-28
Markahæstar: Ramune Pekarskyte 6, Maria
Ines Da Silve 5, Guðrún Erla Bjarnadóttir 4,
Vilborg Pétursdóttir 4 - Hrafnhildur Hanna
Þrastardóttir 12, Perla Ruth Albertsdóttir 4,
Dijana Radojevic 4, Adina Maria Ghidoarca,
Carmen Palamariu 3,
Fram - ÍBV 20-17
Markahæstar: Ragnheiður Júlíusdóttir 7,
Hildur Þorgeirsdóttir 4, Steinunn Björns-
dóttir 4, Hulda Dagsdóttir 1, Eva Þóra Arnar-
dóttir 1 - Ester Óskarsdóttir 8, Telma Silva
Amado 3, Sandra Erlingsdóttir 3, Sandra Dís
Sigurðardóttir 2.
Efst
Fram 13
Stjarnan 13
Haukar 10
Valur 8
Neðst
ÍBV 6
Selfoss 4
Fylkir 2
Grótta 2
HAndBolti Geir Sveinsson, lands-
liðsþjálfari í handbolta, hristi ærlega
upp í hlutunum þegar hann valdi
hópinn fyrir leikina gegn Tékklandi
og Úkraínu í undankeppni EM 2018
sem fram fara í þessari viku. Lykil-
menn á borð við Snorra Stein og
Alexander Petersson eru hættir og
þá valdi Geir ekki stórlaxa á borð
við Róbert Gunnarsson og Vigni
Svavarsson.
Geir finnst of margir línumenn
hafa verið í hópnum undanfarin
misseri en tvær skiptingar milli
varnar og sóknar hafa verið vanda-
mál liðsins í langan tíma, sérstak-
lega í nútíma handbolta þar sem
svona skiptingar eru að deyja út.
Svar Geirs við þessu var að kalla
inn Arnar Frey Arnarsson, tvítugan
Framara sem er á sínu fyrsta tíma-
bili sem atvinnumaður hjá Sví-
þjóðarmeisturum Kristianstad. Þar
hefur þessi tröllvaxni og ljóshærði
línumaður fengið að spila bæði
vörn og sókn og er að taka miklum
framförum. Í síðustu leikjum hefur
hann verið að skora 4-6 mörk í leik
og þá var honum kastað beint í
djúpu laugina í Meistaradeildinni
þar sem hann spilar við þá bestu í
hverri viku.
Bjóst ekki við að vera valinn
„Ég er mjög glaður að vera kominn
í landsliðið,“ segir Arnar Freyr en
Fréttablaðið tók hann tali eftir
æfingu liðsins í Laugardalshöll í gær
þar sem ríflega helmingur hópsins
var kominn saman fyrir leikinn
gegn Tékklandi á miðvikudags-
kvöldið. Hann segir landsliðskallið
hafa komið sér á óvart.
„Ég verð að segja það. Ég bjóst
ekki við að vera valinn því við
eigum svo frábæra línumenn. Geir
vill samt greinilega hafa mig þannig
að ég ætla að reyna að sýna hvað ég
get og halda mér í hópnum,“ segir
Arnar.
Geir vill samt augljóslega miklu
meira en bara hafa Arnar í hópn-
um. Reynsluboltar voru settir á ís
en hann tekinn inn – leikmaður
sem getur bæði spilað sókn og
vörn. Í raun er smá pressa á Arnari
að standa sig og sá stóri er hvergi
banginn.
„Það er bara fínt. Ég fíla það. Ég vil
eins mikla pressu og hægt er. Þannig
er þetta hjá mér í Svíþjóð. Það eru
5.000 manns á hverjum leik þann-
ig að það er eins gott að standa sig.
Ég fíla pressuna í botn og vonandi
næ ég bara að standast þessar vænt-
ingar.“
Þrátt fyrir að vera ekki smeykur
er Arnar fullmeðvitaður um að það
verður ekkert grín að koma sér inn
í spilamennsku íslenska liðsins á
jafnskömmum tíma og það fær til
æfinga.
„Það er mikil vinna framundan
og lítill tími til að vinna með þann-
ig að við sjáum til. Ég á að spila þrist
í vörn og þar er maður mikið að
hugsa og leiðbeina þannig að þetta
verður erfitt. En til þess er maður
í þessu. Ég vill hafa þetta erfitt og
krefjandi. Þannig bætir maður sig,“
segir Arnar Freyr.
Veit hvað þarf að bæta
Stökkið hjá Arnari var og er stórt.
Hann fór úr Olís-deildinni hér
heima í meistaralið í Svíþjóð sem
spilar í Meistaradeildinni. Óhætt
er að fullyrða að fáir leikmenn hafi
fengi aðra eins eldskírn í Meistara-
deildinni en Arnar Freyr er búinn að
mæta Vardar Skopje, Evrópumeist-
urum Kielce, PPD Zagreb og Rhein
Neckar Löwen.
„Það er stór plús fyrir mig að spila
í Meistaradeildinni og það hjálpar
mér mikið að bæta mig. Ég er búinn
að standa mig vel í Svíþjóð og allt í
lagi í Meistaradeildinni,“ segir Arnar
sem er búinn að skora tíu mörk í
þessum fjórum leikjum en fjögur af
þeim komu í eins marks tapi gegn
Þýskalandsmeisturum Löwen. Leik-
irnir gegn þeim bestu hafa sýnt Arn-
ari hvað hann þarf að bæta.
„Þetta hefur gengið ágætlega en ef
ég á að gagnrýna mig fyrir eitthvað
á ég enn eitthvað í land líkamlega.
Ég er nú samt bara tvítugur þannig
að það verður ekkert mál. Ég mætti
líka alveg vera sneggri á fótunum en
þetta kemur. Ég er nú þegar búinn
að bæta mig helling. Ég þarf að
styrkja mig en passa samt að verða
ekki of þungur því ég vil spila bæði
vörn og sókn og verð því að halda
snerpunni,“ segir Arnar Freyr.
Þegar Arnar Freyr spilaði hér heima
var hann mest notaður sem varnar-
maður en hann skoraði tvö mörk að
meðaltali í leik á síðustu leiktíð .
„Mér finnst að þjálfarar á Íslandi
ættu að leyfa línumönnum sem geta
spilað vörn og sókn að gera það.
Við verðum að búa til fleiri svona
leikmenn því svona er alþjóðlegi
boltinn í dag. Menn verða að geta
spilað beggja megin vallarins. Það er
ekkert lengur hægt að skipta í vörn
og sókn. Sérstaklega ekki í Meistara-
deildinni.“ tomas@365.is
Vonandi stenst ég væntingar
Arnar Freyr Arnarsson er maðurinn sem á að leysa línuvandræði íslenska landsliðsins. Framarinn ungi
byrjar frábærlega í atvinnumennskunni þar sem honum var kastað í djúpu laugina í Meistaradeildinni.
Arnar Freyr Arnarsson er vonandi leikmaðurinn sem Ísland hefur verið að leita að – alhliða línumaður sem getur bæði spilað vörn og sókn. FréttABlAðið/HANNA
Kristianstad-strákarnir Arnar Freyr, Ólafur og Gunnar Steinn á landsliðs æfingu í
gærkvöldi.
Tala íslensku í leikjum
Með Arnari Frey hjá Kristianstad
spila Ólafur Guðmundsson og
Gunnar Steinn Jónsson en allir eru
þeir í íslenska landsliðshópnum.
Ólafur og Gunnar hafa hjálpað
Arnari mikið á sinni fyrstu leiktíð í
atvinnumennskunni.
Ólafur varð meistari með
Kristianstad á síðustu leiktíð en
Gunnar er nýr hjá liðinu eins og
Arnar. Hann er þó öllu reyndari
sem atvinnumaður.
„Það er alveg geggjað að vera
með tvo Íslendinga með mér
sem hjálpa mér að komast inn í
leikkerfin og tungumálið. Þegar við
erum þrír inná vellinum að spila
tölum við líka bara íslensku. Það
sem þeir hafa gert fyrir mig hingað
til er alveg ómetanlegt. Að spila í
Meistaradeildinni er líka stór plús
og það er að hjálpa mér mikið að
bæta mig. Ég er rosalega ánægður
með þetta,“ segir Arnar Freyr.
3 1 . o K t ó B e r 2 0 1 6 M Á n U d A G U r14 S p o r t ∙ F r É t t A B l A ð i ð
sport
3
1
-1
0
-2
0
1
6
0
5
:1
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
D
-5
F
7
0
1
B
1
D
-5
E
3
4
1
B
1
D
-5
C
F
8
1
B
1
D
-5
B
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K