Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 2
Mosatætarar Vandaðir mosatætarar á hagstæðu verði Garðtrak o r í miklu úrv li Gerir sláttinn auðveldari ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Veður Hægviðri eða hafgola í dag og skýjað með köflum og líkur á síðdegisskúrum. Milt veður. SJÁ SÍÐU 20 Kenna Íslendingum að sigla Menning „Fyrir okkur er mikill heiður að vera boðið að vera með viðburð í þessari búð. Þetta er þar sem allir vilja vera með bækurnar sínar í sölu og svo er mikill heiður að því að þeir vilji setja upp þenn- an atburð sérstaklega fyrir okkur,“ segir Ragnar Jónasson rithöfundur. Hann og Yrsa Sigurðardóttir rit- höfundur lögðu leið sína til Lund- úna í liðinni viku. Þar áttu þau samtal við fullan sal af gestum um íslenskar glæpasögur og sín eigin ritverk í bókabúð Waterstones- keðjunnar á Piccadilly í London, sem er ein stærsta bókabúð í heim- inum. Ragnar hefur samið um útgáfu á bókum sínum í ellefu löndum og segir Ragnar að þeirra mest framandi sé ef til vill Armenía. „Það var einhver maður sem vildi hafa samband við mig og hann virtist hafa mikinn áhuga á íslenskum glæpasögum og hafði gefið út áður Arnald og Yrsu, að ég held. Þetta er sennilegast óvenju- legasta landið og mest framandi landið,“ segir Ragnar. Hann segir þó að stærsti markaðurinn í ár sé Frakklandsmarkaðurinn. Þar hefur bók hans, Snjóblinda, verið gefin út í 21 þúsund eintökum og segir Ragnar að viðtökurnar hafi verið mjög góðar Um leið og Ragnar var úti til að hitta fólk í bókabúð Waterstones hitti hann fulltrúa sjónvarps- myndaframleiðendanna On the Corner sem hafa keypt kvik- myndaréttinn á bókum hans og vinna nú að gerð framhaldsþátta. „Þeir sögðu að það væri mjög góður gangur í þessu ferli. Þeir eru að vinna í því núna að finna handritshöfund. Þeir eru búnir að sigta út einhvern hóp sem þeir eru að velja hinn eina rétta úr,“ segir Ragnar. On the Corner er ungt framleiðslufyrirtæki, ef til vill þekktast fyrir að hafa unnið til Óskarsverðlauna fyrir heim- ildarmynd um Amy Winehouse. Ragnar segir að framleiðendurn- ir ætli að skoða þann möguleika að taka þættina upp á Íslandi, en handritshöfundurinn verði líkleg- ast ekki íslenskur. „Ég veit ekki til þess að þeir séu að skoða íslensk nöfn.“ jonhakon@frettabladid.is Armenar áhugasamir um íslenska krimma Uppselt var á fund Yrsu Sigurðardóttur og Ragnars Jónassonar sem fram fór í einni stærstu bókaverslun heims í síðustu viku. Ragnar Jónasson nýtti tækifærið í ferðinni og ræddi við sjónvarpsþáttaframleiðendur. Hefur selt bækur til 10 landa. Uppselt var þegar Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir ræddu íslenskar glæpa- sögur, einkum sín eigin verk, við breska lesendur. Ragnar hefur selt bækur sínar til 11 landa. Bandaríkin Bretland Ítalía Frakkland Þýskaland Kórea Japan Armenía Pólland Tyrkland Ástralía Natasha og Jay Thompson González ásamt börnum sínum fjórum eru aftur komin til Íslands á skútunni sinni Messenger og nú til að kenna Íslend- ingum að sigla. Fjölskyldan hefur síðastliðin sex ár búið í skútunni og siglt um heiminn. Fyrir tæpum tveimur árum komu þau til Íslands og höfðu hér vetursetu, fyrst í Reykjavík en svo á Ísafirði þar sem yngsti fjölskyldumeðlimurinn fæddist. FRéttablaðið/SteFán HeilbrigÐiSMÁl Nýgengi krabba- meina og dánartíðni vegna þeirra hefur lækkað hjá báðum kynjum á undanförnum árum. Með nýgengi er átt við tíðni greininga á krabbameini. Til ársins 2010 var stöðug hækk- un á nýgengi krabbameina. Dánar- tíðni var áður fremur stöðug en hefur frá aldamótum lækkað tölu- vert. Lára G. Sigurðardóttir, læknir og fræðslustjóri Krabbameinsfélags- ins, segir að um sé að ræða óvæntan viðsnúning í þróun krabbameina hér á landi. „Um 2009 hafði tíðnin verið að hækka um eitt prósent á ári og séð var fram á að þróunin yrði þannig áfram. Núna sjáum við að sú spá er ekki að rætast,“ segir Lára. Stærsti hluti lækkunar dánar- tíðni hjá konum er meðal þeirra sem eru með brjóstakrabbamein en þriðjungs lækkun hefur orðið á síðustu þrjátíu árum. Rekja má lækkunina til leitarstarfs Krabba- meinsfélagsins sem og mikilla framfara í meðferð. Hjá körlum munar mestu um tuttugu prósenta lækkun á dánar- tíðni af völdum krabbameina í lungum og blöðruhálskirtli. Þennan góða árangur má þakka öflugu tóbaksvarnarstarfi undan- farinna ára og fleiri skurðaðgerðum þar sem blöðruhálskirtillinn er fjarlægður. – þv Færri deyja úr krabbameini og nýgengi lækkar Um 2009 hafði tíðnin verið að hækka um eitt prósent á ári og séð var fram á að þróunin yrði þannig áfram. Núna sjáum við að að sú spá er ekki að rætast. Lára G. Sigurðar- dóttir, fræðslustjóri Krabbameinsfélags Íslands. lögreglUMÁl Alþjóðalögreglan Interpol lýsir eftir Íslendingnum Jóni Valdimar Jóhannssyni vegna afplán- unar dóms. Í tilkynningu Interpol kemur fram að hann hafi gerst sekur um stórfellda líkamsárás, en það eru íslensk yfirvöld sem lýsa eftir honum. Jón Valdimar er 32 ára gamall og samkvæmt upplýsingum Interpol er hann 87 kíló að þyngd og 1,76 metrar að hæð. Árið 2008 hlaut Jón Valdimar 30 daga skilorðsbundinn dóm á Íslandi fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Interpol biðlar til þeirra sem hafa upplýsingar um Jón Valdimar að hafa samband við lögregluyfirvöld. – þv Interpol lýsir eftir Íslendingi Jón Valdimar Jóhannsson 3 0 . M a Í 2 0 1 6 M Á n U D a g U r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð 3 0 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 9 2 -7 1 F 4 1 9 9 2 -7 0 B 8 1 9 9 2 -6 F 7 C 1 9 9 2 -6 E 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.