Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 13
Hverfið mitt – Hugmyndasöfnun Hvernig getur þitt hverfi orðið enn betra? Núna getur þú komið þinni hugmynd á framfæri, hvort sem hún er raunhæf eða ekki. Sendu inn tillögu á betrireykjavik.is fyrir 15. júní. Nú er tækifærið til að skila inn betri tillögum Rússíbana á Klambratún! H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Gegnum aldirnar hafa hetjurnar í sögunum okkar ekki verið goðar og sýslumenn, prestar eða lögmenn heldur útilegumenn. Grettir sem var gæfusnauður þrátt fyrir gjörvileik, drenglyndur ofstopa- maður, skáldmælt tröll. Og Fjalla- Eyvindur sem stal osti frá förukonu sem lagði á hann að hann myndi aldrei óstelandi vera en mildaði álögin með því að hann kæmist aldrei undir manna hendur lengi í einu; og komst á handahlaupum undan fráustu hestum; hann var geðprýðismaður, glæsi- menni og þjófur og við elskum hann því að hann var konungur öræfanna; hann var frjáls. Þetta eru okkar menn. Við erum þjóð sem borgum iðnaðarmönnum svart og gefum aldrei undir nokkrum kringumstæðum stefnuljós, bara af því að maður fer ekki eftir reglum. Þyrlufanginn Við segjum sögur af afbrotamönn- unum okkar, dáumst að þeim og öfundum í aðra röndina af frelsi og sérsmíðuðu siðakerfi; séu þetta heiðarlegir og skemmtilegir þjófar og samkvæmir sjálfum sér. Það er þess vegna nokkuð vel af sér vikið hjá þeim útrásarvíkingum sem tekist hefur að koma lögum yfir, að hafa hagað málum sínum svo að þeir eru enn óvinsælustu menn landsins – þótt þeir séu allir með „talsmann“. Hver er munurinn á Ólafi Ólafsssyni og Fjalla-Eyvindi? Til dæmis sá að fara um á handahlaupum og þyrlu. Á dögunum spurðist sem sagt til Ólafs Ólafssonar í skemmtiflugi í þyrl- unni sinni – hann á að heita í fangelsi og hann fékk afskrifaða 64 milljarða af skuldum sínum því hann væri ekki borgunarmaður fyrir lánum sínum. En fer sem sagt um á þyrlu. Hvað eigum við eiginlega að gera við þessa útrásarvíkinga? Skikka þá til að vinna kauplaust í tvö ár fyrir mæðra- styrksnefnd? Senda þá á sjóinn? Láta þá dúsa í Drangey? Er engin leið til að koma þeim í skilning um að þeir eru í fangelsi og Páll Winkel er ekki hyskinn húskarl að svíkjast um að skaffa kavíarinn heldur fangavörðurinn þeirra? „Allt annar Óli“ Fangelsisvist er útlegðardómur. Dóm- stólar kveða upp úrskurði um sekt eða sýknu og dæma seka til fangelsisvistar. Þegar komið er inn í fangelsi stígur viðkomandi út úr samfélaginu og inn í félagslegt tómarúm. Það er eflaust þungbær reynsla en getur líka verið mikilvægur tími til uppbyggingar sálar og líkama; maður hlýtur að hugsa sitt ráð. Þess er vænst að fangar átti sig á villu síns vegar, geri yfirbót fyrir brot sín, komi út í samfélagið aftur sem nýjar manneskjur með sömu mögu- leika og aðrir þegnar til að láta til sín taka og gott af sér leiða. Dómur er fallinn. Og við sem álengdar stöndum dæmum ekki þegar í fangelsi er komið. Það er ekki í okkar verkahring. Viðkomandi greiðir skuld sína við samfélagið innan fangelsis- múranna, er ekki lengur í augsýn okkar, ekki lengur hluti af okkur. Við erum svo sem ekki öll líkleg til fjár- glæpa eða annarra refsiverðra afbrota – en syndlaus erum við heldur ekki, eins og við vitum, og almennt er það ekki til siðs að hreykja sér yfir brota- menn og fanga heldur hugsum við flest hlýlega til þeirra og vonum að þeim auðnist að finna rétta braut í lífinu. Sumum hrífumst við af – frá Gretti og til Lalla Johns. En það voru menn sem tóku afleiðingum gjörða sinna án þess að víkjast undan eða koma sök yfir á aðra; hefðu aldrei staðið í svo hlálegum vörnum eins og að tala um að það hafi verið „annar Lalli Johns“ sem gerði þetta … Því miður er engu líkara en að fanga- vist útrásarvíkinganna ætli að vera eins og viðskiptaferill þeirra; þar voru við- skiptin í aflandsfélögum og þess ævin- lega gætt að koma aldrei fram undir réttu nafni en slóðin rækilega falin og viðskiptin eiginlega stunduð af nokk- urs konar hliðarsjálfi, gervimanni, sem borgaði skuldirnar – eða öllu heldur borgaði ekki neitt og fór á hausinn og gufaði þá upp. Eins virðist það með fangavistina; þeir eru í fangelsi en samt ekki: sjálfir bara uppi í sumarbústað (sem er í eigu gervimanns) í náðum, að monta sig í þyrlunni eða aka um á montbílum, fara í líkamsrækt eða nudd eða halda fundi og stunda viðskipti, skella sér á reiðnámskeið eða á tón- leika með Elton John – eða hvað það nú er sem þessir menn gera – á meðan fangavistin er afplánuð á nokkurs konar aflandsfélagastigi. Engu líkara en að þeir hafi stofnað eignarhaldsfélag utan um fangavistina; og í fangelsinu einhver „allt annar Óli“. Það er náttúrlega mjög þægilegt. En þeir geta ekki vænst þess að komast út úr hlutverki skúrksins í sögunni á meðan málum er svo háttað. Og það er erfitt hlutskipti til lengdar. Af-lands-plánun Við erum þjóð sem borgum iðnaðar- mönnum svart og gefum aldrei undir nokkr- um kringum- stæðum stefnuljós, bara af því að maður fer ekki eftir reglum. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 3 0 . M a Í 2 0 1 6 3 0 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 9 2 -8 5 B 4 1 9 9 2 -8 4 7 8 1 9 9 2 -8 3 3 C 1 9 9 2 -8 2 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.