Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 10
3 0 . m a í 2 0 1 6 m Á N U D a G U R10 f R é t t i R ∙ f R é t t a B L a ð i ð ALICANTE Netverð á mann frá kr. 9.900 aðra leið m/sköttum og tösku.Flugsæti Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra .Frá kr. 9.900 Aðra leið m/sköttum og tösku fLóttameNN Yfir þrettán þúsund flóttamönnum hefur verið bjargað úr bátum á Miðjarðarhafinu í síðast- liðinni viku. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sagði frá því í gær að minnst sjö hundruð væri saknað í Miðjarðarhafinu. Um er að ræða fólk sem var á þremur skipum sem fórust á leið frá Líbíu til Ítalíu á síðustu dögum. Fjöldinn allur af flóttamönnum freistar þess að ferðast sjóleiðina frá Afríku til Evrópu og eru bátarnir oftar en ekki yfirfullir og ekki traustir. Hlýnandi veður á svæðinu er talið orsaka mikla fjölgun þeirra flótta- manna sem ferðast yfir hafið. Hátt í tvö hundruð þúsund flótta- menn hafa komið til Evrópu frá Afríku og Mið-Austurlöndum það sem af er árinu. - þv Sjö hundraða saknað í Miðjarðarhafi Hlýnandi veður er talið orsaka mikla fjölgun flóttamanna sem ferðast yfir hafið. SkóLamÁL Ef ekkert verður að gert mun grunnskólakennurum fækka verulega á næstu árum og mikill skortur á grunnskólakennurum er líklegur eftir fimmtán ár. Eftir þrjá- tíu ár hefur fjöldi réttindakennara helmingast frá því sem nú er. Þetta kemur fram í niðurstöðum Helga Eiríks Helgasonar meistara- nema og Stefáns Hrafns Jónssonar, prófessors við Háskóla Íslands. Þeir kynntu frumniðurstöður á ráðstefnu um íslenska þjóðfélags- fræði á Akureyri nú fyrir skömmu. Rannsóknin fjallar um samsetn- ingu grunnskólakennara á Íslandi og var skoðað hvernig þróun stétt- arinnar verði á næstu árum og ára- tugum. Kemur þar fram að árið 2031 verði grunnskólakennarar líklega 6.880 og árið 2051 verði þeir aðeins 3.689. „Það þarf að taka þessar vís- bendingar mjög alvarlega. Með réttum aðgerðum má minnka veru- lega líkur á því að alvarlegur kenn- araskortur verði í framtíðinni,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara. Samkvæmt Hagstofu Íslands var árið 2011 alls 4.531 starfandi í grunnskólum landsins með kennsluréttindi. Á sama tíma voru 9.327 Íslendingar með réttindi sem grunnskólakennarar. Samband íslenskra sveitarfélaga áætlar að eftirspurn eftir grunnskólakenn- urum aukist um tíund á næstu tutt- ugu árum. „Í ljósi þess að um helmingur grunnskólakennara starfar við grunnskólakennslu má leiða að því líkur að strax árið 2031 verði orðinn mikill skortur á réttinda- kennurum fyrir grunnskóla að öðru óbreyttu,“ segir Stefán Hrafn. Árið 2012 tóku gildi ný lög um kennslu í grunnskóla. Til að fá leyfisbréf sem grunnskólakennari þarf fólk að klára fimm ára háskóla- nám í stað þriggja ára áður. Veruleg fækkun varð á fjölda útskrifaðra í kjölfarið. Árið 2015 útskrifuðust 87 einstaklingar með háskólapróf og leyfisbréf sem grunnskólakennari. „Fátt ef nokkuð bendir til að fjöldi útskrifaðra kennara komi til með að aukast á næstu árum,“ segir Stefán Hrafn. Ólafur segir ekki duga að ræða um stöðu kennara, nú þurfi stjórn- málamenn að láta verkin tala. „Kennarastarfið þarf að verða álit- legra en það er í dag. Það gerum við með því að laga starfsaðstæður kennara og stórbæta laun. Þegar Stefnir í 60 prósenta fækkun kennara á næstu áratugum Ef ekkert verður að gert mun kennurum fækka svo mjög á næstu áratugum að það jaðri við hættuástand. Grunnskólakennurum gæti fækkað stórlega verði ekkert að gert. Hér má sjá bekkjarkennara taka á móti nemendum sínum í þriðja bekk. Fréttablaðið/GVa 3.689 verða kennarar árið 2051 6.880 verða kennarar árið 2031 9.327 voru kennarar árið 2011 Má leiða að því líkur að strax árið 2031 verði orðinn mikill skortur á réttindakennurum fyrir grunnskóla. Stefán Hrafn Jóns- son, prófessor við Háskóla Íslands Enn þá hefur enginn flokkur eða stjórn- málaafl sett menntun barnanna okkar í forgang. Það er löngu tímabært að hætta að tala um þetta í fínum ræðum og koma þessu í framkvæmd. Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara borin eru saman þau störf sem krefjast háskólamenntunar eru kennarar á þó nokkuð lægri laun- um en sambærilegar stéttir,“ segir Ólafur. „Þetta er þótt stjórnmálamenn og aðrir tali um það á hátíðarstund- um að við þessu verði að bregðast. Þetta eru orðin tóm og enn þá hefur enginn flokkur eða stjórnmálaafl sett menntun barnanna okkar í forgang. Það er löngu tímabært að hætta að tala um þetta í fínum ræðum og koma þessu í fram- kvæmd.“sveinn@frettabladid.is kaNaDa Ríkisstjórn Justins Trud- eau, forsætisráðherra Kanada, kynnti í apríl frumvarp sem gerir það löglegt að svipta sig lífi með hjálp lækna. Frumvarpið liggur nú fyrir kanadíska þinginu. Samkvæmt frumvarpinu verður fólki með ólæknanlega sjúkdóma eða varanlega fötlun gert kleift að binda enda á líf sitt með aðstoð lækna, kjósi það svo. Í júní í fyrra féll dómur í hæsta- rétti Kanada þar sem bann við líknardrápi var talið brjóta gegn stjórnarskrárvörðum réttindum einstaklinga. Dómstóllinn gaf þing- inu frest til 6. júní í ár til að breyta löggjöfinni. Að öðrum kosti gæti fólk með alvarlega og ólæknandi sjúkdóma farið fram á líknardráp. Ekki ríkir einhugur um málið en frumvarpið verður að hljóta sam- þykki á báðum stigum þingsins til að ná fram að ganga.  – þv Stefna að lögleiðingu líknardráps Justin trudeau, forsætisráðherra Kanada. Fréttablaðið/EPa StjóRNSýSLa Ólöf Nordal innan- ríkisráðherra hefur skipað Ársæl Guðmundsson í embætti skóla- meistara Borgarholtsskóla frá 1. júlí. Ingi Bogi Bogason, aðstoðarskóla- meistari og starfandi skólameistari, sendi starfsmönnum skólans til- kynningu um þetta í gær. Tíu sóttu um stöðuna og var upphaflega gert ráð fyrir að Illugi Gunnarsson, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, myndi skipa í hana frá 1. apríl. Ársæll hefur starfað undanfarið sem verkefnastjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og vegna tengsla hans við ráðuneytið var ákveðið að innanríkisráðherra skipaði í stöðuna. – jhh Ársæll skipaður í embætti skólameistara 3 0 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 9 2 -A 8 4 4 1 9 9 2 -A 7 0 8 1 9 9 2 -A 5 C C 1 9 9 2 -A 4 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.