Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 8
Háskólatorgi www.boksala.is s. 5 700 777 www.facebook.com/boksala Útsala á erlendum bókum og völdum kaupfélagsvörum út maí í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi. Útsala 50-70% afsláttur umhverfismál Íslensk stjórnvöld ættu í ljósi skuldbindinga sam- kvæmt nýjum loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna að taka alvar- lega til skoðunar að lögfesta sjötta viðauka við Marpol-samninginn – alþjóðasamning um varnir gegn mengun frá skipum. Þar er fjallað um takmörkun á útblæstri, losun á sorpi og efnaúrgangi í sjó. Þetta kemur meðal annars fram í minnisblaði Gísla Gíslasonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, um útblástur og landtengingar skipa sem hann kynnti á fundi stjórnar 13. maí. Í ljósi samningsins verða Íslend- ingar að draga úr notkun jarðefna- eldsneytis um 350 til 400 þúsund tonn á næstu fimmtán árum en þetta verður ekki gert nema með verulegum fjárfestingum í raf- magni. Í þessu samhengi rekur Gísli tæknilegar lausnir við að koma á landtengingum skipa sem hægt er að koma á nú þegar og getur minnkað notkun á jarðefnaelds- neyti og dregið úr útblæstri. Í víðara samhengi segir Gísli að stærsta aðgerðin við að draga úr útblæstri skipa sé sjötti viðauki Marpol-samningsins – sem hefur skilað markverðum árangri innan sérstakra svæða (ECA) þar sem takmarkanir á útblæstri eru í gildi. Sífellt fleiri lönd hafa skoðað lög- festingu viðaukans og fyrir liggja hugmyndir um útvíkkun svæðanna með því að ný hafsvæði falli undir ákvæði hans. En hugmyndir um að ákvæðin gildi á hafsvæðinu við Ísland hafa ekki verið viðraðar, þó Ísland sé aðili Marpol-samningsins síðan 1985. Allir viðaukar samningsins utan þess sjötta hafa öðlast gildi hér. Gísli gerir að tillögu sinni að umhverfislögsaga Íslands verði gerð að ECA-svæði, þannig að skip sem sigla innan efnahagslögsögu Íslands verði að uppfylla strangar reglur um efnainnihald eldsneytis. „Verndun umhverfislögsögu Íslands er gríðarlega mikilvægt verkefni til verndunar á lífríki sjáv- ar við Ísland. Ferillinn er sá að Við- auki VI er fyrst innleiddur en hann leyfir í dag 3,5 prósent brennistein þ.e. svartolíu eins og hann er í dag. Um leið og hann hefur verið innleiddur er hægt að taka næsta skref, sem er að fá umhverfislög- sögu Íslands (200 mílur) sam- þykkta sem ECA-svæði þar sem hæsta leyfilega magn brennisteins í eldsneyti er 0,1% (það sama og er leyfilegt í höfnum). Þetta þýðir að einungis megi nota skipagas- olíu (Marine Gas Oil) eða vistvænt eldsneyti á svæðinu,“ skrifar Gísli og áréttar að verið sé að vinna gegn súrnun sjávar og að efnaúrgangur frá óhreinum eldsneytisbruna fari í hafið – sem er risavaxið hagsmuna- mál fyrir Ísland. „Lítil almenn umræða hefur átt sér stað um aðkomu Íslands að regluverki viðaukans sem myndi takmarka verulega eða banna notkun á svartolíu sem eldsneyti á skip, en áskilja að nota hreinna eldsneyti,“ bætir Gísli við. Minnisblaðið hefur verið sent Sigrúnu Magnúsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, með fullum stuðningi stjórnar Faxaflóahafna. svavar@frettabladid.is Banna ætti bruna svartolíu við Ísland Ísland ætti að fullgilda viðauka alþjóðasamnings um takmörkun á útblæstri skipa innan íslenskrar landhelgi. Með því yrði tekið stórt skref til að vernda umhverfislögsögu Íslands og viðkvæmt lífríki innan hennar. Lítil umræða sögð vera um aðkomu Íslands að regluverki. Háspennutengingum þarf að koma upp í stærstu höfnum sem taka á móti skemmtiferðaskipum – ríkið þarf að koma að slíku verkefni. Fréttablaðið/VilHelm Verndun umhverfis- lögsögu Íslands er gríðarlega mikilvægt verk- efni til verndunar á lífríki sjávar við Ísland. Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna Auðvelt að uppfylla ströng skilyrði? l Eimskip og Samskip uppfylla Viðauka VI við Marpol-samninginn, enda sigla skip félaganna innan ECA-svæða í Norður Evrópu að stórum hluta – en brenna svartolíu utan þeirra. l Sama gildir um stór skemmtiferðaskip sem sigla frá Ameríku og Evrópu. l Íslenski fiskiskipaflotinn brennir að mestu léttari skipaolíu (Marine diesel oil) þó einhver skip brenni svartolíu enn þá. l Með endurnýjun skipaflotans er mjög horft til að skipin brenni eldsneyti sem uppfyllir Viðauka VI – t.d. á það við um öll nýjustu skip HB Granda. ferðaþjónusta Bílastæðagjald hefur verið lagt á við Þingvelli til þess að mæta auknum fjölda ferða- manna. Einar Á. E. Sæmundsen, fræðslufulltrúi Þingvalla, segir að bílastæðin séu svo yfirfull að sam- hliða gjaldtökunni þurfi nú starfs- fólk til að stýra umferð um bíla- stæðin og aðstoða ferðafólk. „Þetta er í góðum framgangi skul- um við segja. Það sem kemur okkur jákvæðast á óvart er að ferðamenn eru ekkert ragir við að borga stöðu- mælagjöld. Við höfum varla hitt mann sem hefur muldrað yfir því,“ segir Einar. Samkvæmt reglugerð forsætis- ráðuneytisins kostar 500 krónur fyrir fólksbíl að leggja við Þingvelli. Jeppar greiða 750 krónur og hóp- ferðabílar greiða á bilinu 1.500 til 3.000 krónur.   Raðir hafa myndast við greiðslu- vélarnar og þegar Fréttablaðið bar að garði í dag hafði önnur vélin af tveimur bilað á efra stæði Þing- valla. „Við höfum verið að keyra þetta af stað síðan í síðustu viku. Við höfum líka verið að læra á nýja rútínu með þessu, hvernig tækin virka úti á vettvangi, og reynt að skynja hvernig þetta leggst í ferða- menn,“ segir Einar. Starfsfólk hefur þurft að aðstoða ferðamenn vegna kortavandræða og við að skilja fyrirkomulagið. „Þetta hefur gengið alveg ágætlega gagnvart öllum sem vilja koma og borga. Það virðist ekki vera nein hindrun fyrir ferðamenn og aðra að borga en það hafa verið net truflanir að hrjá okkur á Þing- völlum almennt og það hefur verið að stríða okkur inn á milli.“ Eins og áður segir hefur ekki komið til vandræða við að fá fólk til að borga. „Maður var búinn undir það ef menn færi að reka í rogastans yfir þessu en við höfum engan hitt sem hefur kvartað yfir því.“ – snæ Enginn ferðamaður mótmælt bílastæðagjaldi á Þingvöllum Þingmaðurinn róbert marshall minntist á raðir við gjaldtækin á miðvikudag. Þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í gær, sunnudag, var það sama uppi á teningnum og ein vélin biluð. Fréttablaðið/anton brink Bretland Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, segir að gangi Bretland úr Evrópusamband- inu (ESB) muni skapast meiriháttar efnahagsleg vandamál í kjölfarið í landinu. „Ef við kjósum að ganga úr sam- bandinu munum við finna fyrir efnahagslegum áhrifum þess án tafar og áralangri óvissu,“ sagði Blair. Blair segir að áhrifin muni sjást beint á atvinnu fólksins í landinu og lífskjörum. Í skoðanakönnun sem gerð var fyrir The Observer meðal hagfræð- inga kom fram að 88 prósent þeirra sem svöruðu telja að kjósi Bretar að ganga úr ESB muni það hafa skaðleg áhrif á efnahag landsins. Hagfræðingarnir svöruðu því að mikil óvissa gæti skapast innan hagkerfisins sem myndi leiða til minnkandi fjárfestinga. Kosið verður um áframhaldandi aðild Bretlands að ESB þann 23. júní næstkomandi. - þv Útganga úr ESB efnahagslegt stórslys Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun er meirihluti breta andvígur því að ganga úr eSb. Fréttablaðið/ePa 3 0 . m a í 2 0 1 6 m á n u d a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 3 0 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 9 2 -A D 3 4 1 9 9 2 -A B F 8 1 9 9 2 -A A B C 1 9 9 2 -A 9 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.