Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 6
BLT samloka & Coke ........................ Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 PREN TU N .IS kr.12 90 á virkum dögum í Björnsbakarí Dalbraut 1 Mótmæla með glamúr og gleði Samfélag Aðeins lítill hluti af ger- endum í kynferðisbrotamálum sem eru á aldrinum 15 til 18 ára sækir sálfræðimeðferð á vegum Barna- verndarstofu. Sérstaklega verður að skrá geranda til meðferðar og hún er honum eða fjölskyldu hans ekki að kostnaðarlausu. Þetta kemur fram í meistararitgerð Klöru Óðinsdóttur við lagadeild Háskóla Íslands. „Ef börnin koma úr slæmum heim- ilisaðstæðum þá eru litlar líkur á að málið fari eitthvert,“ segir Klara. Þetta er vegna þess að foreldrar barnungra gerenda geta hafnað sálfræðimeðferð eða sleppt því að sækjast eftir henni. Rannsókn Klöru beindist að kyn- ferðisbrotamönnum á aldrinum 15 til 18 ára og þeim úrræðum sem þeim bjóðast eða þeir eru beittir í refsiskyni. Eins og Fréttablaðið hefur áður fjallað um er hópurinn að mestu leyti strákar en rannsóknir sýna að allt að þriðjungur kynferðisbrota sé framinn af einstaklingum undir sjálf- ræðisaldri. Klara segir að réttarkerfið geri ekki ráð fyrir því að hægt sé að dæma unga gerendur til meðferðar. „Algengasta refsingin í dag er skilorðsbundið fangelsi. Sakborningar upplifa jafn- vel að þeir hafi sloppið og þolendur upplifa að brot þeirra séu órefsuð. Ég mæli með því að það verði hægt að dæma gerendur til sálfræðiþjónustu eða í stuðningshópa. Ég legg til að eitt af þessum úrræðum verði tekið upp í refsivörslukerfinu,“ segir Klara. Stuðningshópana, eða samtalshóp- ana, hefur Klara skoðað en fyrirmynd þeirra er í Kanada og Bretlandi. Eftir því sem næst verður komist hafa þeir gefið góða raun. „Kynferðisbrot eru þau sem snerta fólk einna mest og fólk upplifir þau jafnvel sem ógeðfelldustu brotin. Það er hætt við því að kynferðisbrota- menn séu einangraðir og útskúfaðir í samfélaginu sem virðist vera áhættu- þáttur í því að þeir brjóti af sér aftur. Það er mjög mikilvægt að endurhæfa þá og enduraðlaga að samfélaginu.“ Eins og áður segir fellur kostnaður við sálfræðimeðferð á fjölskyldur gerenda. Leiða má líkur að því að sú staðreynd hafi einhver áhrif í því að frá 2009 til 2013 fengu 53 börn sálfræðiþjónustu á vegum barna- verndaryfirvalda vegna óæskilegrar kynferðislegrar hegðunar. Á sama tíma kemur fram í ársskýrslu barna- verndar 2012 til 2013 að um fjörutíu til fimmtíu tilvik komi upp á ári þar sem einstaklingur á aldrinum tíu til átján ára sýnir af sér óviðeigandi kyn- ferðislega hegðun í garð annars barns. „Þegar verið er að breyta úrræðum og refsingum í kynferðisbrotum verður að taka tillit til þolenda og taka upplifun þeirra meira til greina en hefur verið gert. Það þarf að leita lausnar sem stuðlar að því að rétt- lætistilfinningu þolenda sé fullnægt og sem hjálpar geranda.“ snaeros@frettabladid.is Barnungir gerendur borga sjálfir meðferð Ekki er hægt að dæma unga kynferðisbrotamenn til sálfræðimeðferðar. Skil- orðsbundið fangelsi er algengasta refsingin. Meðferð er undir foreldrum komin. Þegar verið er að breyta úrræðum og refsingum í kynferðisbrotum verður að taka tillit til þolenda og taka upplifun þeirra meira til greina en hefur verið gert. Klara Óðinsdóttir lögfræðingur Brasilía Þátttakendur í Gay Pride í stærstu borg Brasilíu, Sao Paulo, nýttu tækifærið og mótmæltu nýjum tímabundnum forseta landsins, Michel Temer, í göngunni í gær. Þetta er tuttugasta Gay Pride-hátíð borgarinnar en þema hennar er: „Lög um kynvitund, STRAX! Allir saman gegn transfóbíu.“ Stanslaus mót- mæli hafa verið í Brasilíu síðan forsetinn tók við embættinu þann 13. maí síðastliðinn. NordicPhotos/AFP 3 0 . m a í 2 0 1 6 m Á N U D a g U R6 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð 3 0 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 9 2 -9 9 7 4 1 9 9 2 -9 8 3 8 1 9 9 2 -9 6 F C 1 9 9 2 -9 5 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.