Fréttablaðið - 30.05.2016, Síða 13
Hverfið mitt – Hugmyndasöfnun
Hvernig getur þitt hverfi orðið enn betra? Núna getur þú komið þinni hugmynd á framfæri,
hvort sem hún er raunhæf eða ekki. Sendu inn tillögu á betrireykjavik.is fyrir 15. júní.
Nú er tækifærið til að skila inn betri tillögum
Rússíbana á Klambratún!
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Guðmundur
Andri
Thorsson
rithöfundur
Í dag Gegnum aldirnar hafa hetjurnar í sögunum okkar ekki verið goðar og sýslumenn, prestar
eða lögmenn heldur útilegumenn.
Grettir sem var gæfusnauður þrátt
fyrir gjörvileik, drenglyndur ofstopa-
maður, skáldmælt tröll. Og Fjalla-
Eyvindur sem stal osti frá förukonu
sem lagði á hann að hann myndi
aldrei óstelandi vera en mildaði álögin
með því að hann kæmist aldrei undir
manna hendur lengi í einu; og komst á
handahlaupum undan fráustu hestum;
hann var geðprýðismaður, glæsi-
menni og þjófur og við elskum hann
því að hann var konungur öræfanna;
hann var frjáls.
Þetta eru okkar menn. Við erum
þjóð sem borgum iðnaðarmönnum
svart og gefum aldrei undir nokkrum
kringumstæðum stefnuljós, bara af því
að maður fer ekki eftir reglum.
Þyrlufanginn
Við segjum sögur af afbrotamönn-
unum okkar, dáumst að þeim og
öfundum í aðra röndina af frelsi
og sérsmíðuðu siðakerfi; séu þetta
heiðarlegir og skemmtilegir þjófar og
samkvæmir sjálfum sér.
Það er þess vegna nokkuð vel af sér
vikið hjá þeim útrásarvíkingum sem
tekist hefur að koma lögum yfir, að
hafa hagað málum sínum svo að þeir
eru enn óvinsælustu menn landsins
– þótt þeir séu allir með „talsmann“.
Hver er munurinn á Ólafi Ólafsssyni
og Fjalla-Eyvindi? Til dæmis sá að fara
um á handahlaupum og þyrlu.
Á dögunum spurðist sem sagt til
Ólafs Ólafssonar í skemmtiflugi í þyrl-
unni sinni – hann á að heita í fangelsi
og hann fékk afskrifaða 64 milljarða
af skuldum sínum því hann væri ekki
borgunarmaður fyrir lánum sínum. En
fer sem sagt um á þyrlu.
Hvað eigum við eiginlega að gera við
þessa útrásarvíkinga? Skikka þá til að
vinna kauplaust í tvö ár fyrir mæðra-
styrksnefnd? Senda þá á sjóinn? Láta
þá dúsa í Drangey? Er engin leið til að
koma þeim í skilning um að þeir eru í
fangelsi og Páll Winkel er ekki hyskinn
húskarl að svíkjast um að skaffa
kavíarinn heldur fangavörðurinn
þeirra?
„Allt annar Óli“
Fangelsisvist er útlegðardómur. Dóm-
stólar kveða upp úrskurði um sekt eða
sýknu og dæma seka til fangelsisvistar.
Þegar komið er inn í fangelsi stígur
viðkomandi út úr samfélaginu og inn
í félagslegt tómarúm. Það er eflaust
þungbær reynsla en getur líka verið
mikilvægur tími til uppbyggingar sálar
og líkama; maður hlýtur að hugsa sitt
ráð. Þess er vænst að fangar átti sig á
villu síns vegar, geri yfirbót fyrir brot
sín, komi út í samfélagið aftur sem
nýjar manneskjur með sömu mögu-
leika og aðrir þegnar til að láta til sín
taka og gott af sér leiða.
Dómur er fallinn. Og við sem
álengdar stöndum dæmum ekki þegar
í fangelsi er komið. Það er ekki í okkar
verkahring. Viðkomandi greiðir skuld
sína við samfélagið innan fangelsis-
múranna, er ekki lengur í augsýn
okkar, ekki lengur hluti af okkur. Við
erum svo sem ekki öll líkleg til fjár-
glæpa eða annarra refsiverðra afbrota
– en syndlaus erum við heldur ekki,
eins og við vitum, og almennt er það
ekki til siðs að hreykja sér yfir brota-
menn og fanga heldur hugsum við flest
hlýlega til þeirra og vonum að þeim
auðnist að finna rétta braut í lífinu.
Sumum hrífumst við af – frá Gretti og
til Lalla Johns. En það voru menn sem
tóku afleiðingum gjörða sinna án þess
að víkjast undan eða koma sök yfir á
aðra; hefðu aldrei staðið í svo hlálegum
vörnum eins og að tala um að það hafi
verið „annar Lalli Johns“ sem gerði
þetta …
Því miður er engu líkara en að fanga-
vist útrásarvíkinganna ætli að vera eins
og viðskiptaferill þeirra; þar voru við-
skiptin í aflandsfélögum og þess ævin-
lega gætt að koma aldrei fram undir
réttu nafni en slóðin rækilega falin og
viðskiptin eiginlega stunduð af nokk-
urs konar hliðarsjálfi, gervimanni, sem
borgaði skuldirnar – eða öllu heldur
borgaði ekki neitt og fór á hausinn og
gufaði þá upp. Eins virðist það með
fangavistina; þeir eru í fangelsi en samt
ekki: sjálfir bara uppi í sumarbústað
(sem er í eigu gervimanns) í náðum,
að monta sig í þyrlunni eða aka um á
montbílum, fara í líkamsrækt eða nudd
eða halda fundi og stunda viðskipti,
skella sér á reiðnámskeið eða á tón-
leika með Elton John – eða hvað það
nú er sem þessir menn gera – á meðan
fangavistin er afplánuð á nokkurs
konar aflandsfélagastigi. Engu líkara en
að þeir hafi stofnað eignarhaldsfélag
utan um fangavistina; og í fangelsinu
einhver „allt annar Óli“.
Það er náttúrlega mjög þægilegt. En
þeir geta ekki vænst þess að komast
út úr hlutverki skúrksins í sögunni á
meðan málum er svo háttað. Og það er
erfitt hlutskipti til lengdar.
Af-lands-plánun
Við erum
þjóð sem
borgum
iðnaðar-
mönnum
svart og
gefum aldrei
undir nokkr-
um kringum-
stæðum
stefnuljós,
bara af því að
maður fer
ekki eftir
reglum.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 3 0 . M a Í 2 0 1 6
3
0
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
9
2
-8
5
B
4
1
9
9
2
-8
4
7
8
1
9
9
2
-8
3
3
C
1
9
9
2
-8
2
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K