Fréttablaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 4
Hlíðasmára 8 | Skipholti 70 | Spönginni 13
Sími 554 7200 | hafid@hafid.is |
Fiskur vikunnar
Allur steinbítur,
ferskur og kryddlegin
1.690 kr. kg.
30. maí – 3. júníH
AFIÐ
FISKVERS
LU
N
10
ára
Viðskipti Öll vinnsla fyrirtækisins
Mjólku flyst í mjólkursamlag Kaup-
félags Skagfirðinga á Sauðárkróki
og í afurðastöð MS í Búðardal innan
tíðar. Framleiðslu Mjólku verður
hætt í Hafnarfirði en starfsmenn
við framleiðslu fengu uppsagnar-
bréf vegna þessa í apríl.
Árið 2009 keypti Kaupfélag
Skagfirðinga, Mjólku og þar með
sósuframleiðsluna Vogabæ sem
framleiðir E. Finnsson sósur og
Vogaídýfur. Kaupfélag Skagfirðinga
á tíu prósenta hlut í MS, stærsta
mjólkursamlagi landsins á móti 90
prósenta hlut Auðhumlu sem er
samvinnufélag bænda í mjólkur-
framleiðslu. Í úrskurði Samkeppnis-
eftirlitsins árið 2009 kom fram að
afar náið samstarf væri á milli MS og
KS en Þórólfur Gíslason kaupfélags-
stjóri væri varaformaður stjórnar
MS og hefði tímabundið verið annar
forstjóri MS. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins var hann settur sem
slíkur til að „taka til í rekstrinum“.
Þegar Kaupfélag Skagfirðinga
keypti Mjólku árið 2009 sagði í
úrskurði Samkeppniseftirlitsins að
með samrunanum hefðu fyrirtækin
KS og MS nærri 100 prósenta mark-
aðshlutdeild á mjólkurmarkaði. Svo
sagði: „Í ljósi þessa og með hliðsjón
af stöðunni á markaðnum telur
Samkeppniseftirlitið að samruninn
raski samkeppni í skilningi 17. gr.
samkeppnislaga og er samruninn
andstæður markmiði samkeppnis-
laga.“ Undanþága í búvörulögum
gerði það þó að verkum að Sam-
keppniseftirlitið gat ekki gripið inn
í. Þó kom fram í úrskurðinum að líta
beri á KS og MS sem einn og sama
aðilann í viðskiptalegu tilliti.
Síðan þá hefur vörumerkið
Mjólka verið til húsa í Hafnarfirði.
Framleiðsla fetaosts Mjólku flyst
innan tíðar í starfsstöð MS í Búðar-
dal og aðrar vörur verða framleiddar
í mjólkursamlagi KS á Sauðárkróki.
Leifur Grímsson, framkvæmdastjóri
Mjólku, segir að þrátt fyrir þetta sé
Mjólka enn í samkeppni við MS.
„Mjólka er í raun bara vörumerki
núna. Þetta bara snýst um hagræð-
ingu og þess háttar.“
Leifur segir að fyrirkomulagið sé
ekki villandi fyrir neytendur og það
sé ekki svo að verslun við Mjólku sé
í raun verslun við MS. „Neytendur
eru alls ekki að versla við þann
sama, hvað meinarðu? Þó að KS
eigi í MS þá erum við í samkeppni
við þá, alveg klárt. Hins vegar varð-
andi fetaostinn þá er það rétt að
við framleiðum hann í verksmiðju
MS í Búðardal. Við leigjum okkur
aðstöðu þar og ráðum bara fólk til
að framleiða hann þar.“
Hann segir KS ráðast í breyting-
arnar til að nýta fjárfestingu sína
betur. „Mjólka er og verður í sam-
keppni við MS, það er bara þannig.“
Starfsmenn á lager og í markaðs-
málum Mjólku hafa í einhverjum
tilfellum tækifæri til að starfa áfram
hjá fyrirtækinu. Starfsmenn í fram-
leiðslu fengu hins vegar uppsagnar-
bréf í apríl eins og áður segir. Björn
Valur Ellertsson hefur starfað í fram-
leiðslu hjá Mjólku og Vogabæ í fjór-
tán ár. „Það eru ekki allir ánægðir
með þetta. Þeir voru að reyna að fá
flest af þessu starfsfólki til að koma
með norður og prófa. Þeir hjá KS
voru búnir að bjóðast til þess að
fólk fengi frítt húsnæði og laun í
þrjá mánuði á meðan fólk væri að
átta sig á því hvort það vildi vera
þarna eða ekki, en ég held að það sé
enginn að fara þarna norður með
þeim,“ segir Björn.
Hann segir að það hafi ekki staðið
til hjá sér að skipta um vinnu þegar
flutningurinn kom upp. „Það er kurr
í starfsfólkinu.“ snaeros@frettabladid.is
Mjólka lokar og fer undir þak KS og MS
Búið er að segja upp starfsfólki Mjólku en starfsemi fyrirtækisins flytur á Sauðárkrók og í Búðardal. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins
segir að um hagræðingu hjá Kaupfélagi Skagfirðinga sé að ræða. Kurr er í starfsfólki Mjólku sem þarf nú að finna sér nýja vinnu.
Fetaostur Mjólku verður eftirleiðis framleiddur hjá MS í Búðardal. Að sögn Leifs Grímssonar framkvæmdastjóra mun Mjólka
leigja þar aðstöðu og ráða sér starfsfólk til að sinna framleiðslunni. FréttABLAðið/Pjetur
Undanþága búvörulaga í bága við samkeppni
Í úrskurði Samkeppniseftirlitsins árið 2009 segir að líta beri á
MS og KS sem einn og sama aðilann í viðskiptalegu tilliti. Seta
kaupfélagsstjórans í stjórn MS, staða hans sem tímabundinn
forstjóri MS og markaðsráðandi staða fyrirtækjanna brjóti allt
gegn samkeppnislögum.
Sökum ákvæða búvörulaga gildi þessi meginsjónarmið hins
vegar ekki um afurðastöðvar í mjólkuriðnaði.
71. grein búvörulaga hljómar svo: „Þrátt fyrir ákvæði sam-
keppnislaga er afurðastöðvum í mjólkuriðnaði heimilt að
sameinast, gera með sér samkomulag um verkaskiptingu milli
mjólkursamlaga að því er varðar framleiðslu einstakra mjólkur-
vara og hafa með sér annars konar samstarf til þess að halda niðri kostnaði
við framleiðslu, geymslu og dreifingu mjólkurafurða.“
Neytendur eru alls
ekki að versla við
þann sama, hvað meinarðu?
Þó að KS eigi í MS þá erum
við í samkeppni
við þá, alveg
klárt.
Leifur Grímsson,
framkvæmdastjóri
Mjólku
kosningar Forsetaframbjóðendurnir
Davíð Oddsson og Guðni Th. Jóhann-
esson, sem mælast efstir í skoðana-
könnunum, mættust í Eyjunni á Stöð
2 í gær og er óhætt að segja að nýr tónn
hafi verið sleginn í kosningabarátt-
unni.
Davíð Oddsson var í nær stöðugri
sókn og veittist að Guðna. Þar snerist
gagnrýnin meðal annars til afstöðu
Guðna til Icesave-samningsins.
Davíð vísaði í gamla grein frá 2009 og
sagði hana sýna að Guðni hefði verið
hlynntur því að greiða upp „skuldir
óreiðumanna.“ Þegar Guðni neitaði
fyrir slíkt sakaði Davíð hann um að
reyna að hlaupast frá því að greina
þjóðinni frá afstöðu sinni.
„Hvar ættum við að hefja
umræðuna um Icesave,“ spurði Guðni
á móti. „Eigum við að hefja hana í
blaði Reykjavík Grapevine frá 2009
eða eigum við að hefja hana með því
að ræða það hvernig eftirlitsstofnanir
brugðust hér? Hvernig margir ráða-
menn fögnuðu því sem var í gangi og
kölluðu það tæra snilld? Mér finnst
þetta ósanngjarnt.“
Davíð beindi næst spjótum sínum
að Guðna vegna afstöðu hans til
stjórnarskrárbreytinga og sakaði hann
um að vilja „kollvarpa“ henni. Guðni
sagðist eingöngu mæla með ákvæði í
stjórnarskrá sem leyfir almenningi að
koma að ákvörðunum með kosningu.
„Þú ert staðinn að því að reyna að
hlaupa frá öllu saman,“ sagði Davíð.
„Hefur þú enga sómakennd?“
spurði Guðni þá og sagðist eingöngu
tala um endurbætur á stjórnarskránni.
Viðtalið má finna í heild sinni á
Visir.is – bös, ebg
Forsetaframbjóðendur tókust á um Icesave og stjórnarskrána
Davíð Oddsson og Guðni th. jóhannesson tókust á í eyjunni sem er í umsjá Björns
inga Hrafnssonar. FréttABLAðið/AntOn
3 0 . m a í 2 0 1 6 m Á n U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
3
0
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
9
2
-8
5
B
4
1
9
9
2
-8
4
7
8
1
9
9
2
-8
3
3
C
1
9
9
2
-8
2
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K