Fréttablaðið - 30.08.2016, Blaðsíða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Ég er mjög ánægð með þetta, ég hef fengið endalaust af skila-boðum frá Pólverjum sem eru
afar stoltir. Fólk er greinilega ánægt
með að í ungfrú Íslandi renni pólskt
blóð,“ segir Anna Lára Orlowa,
nýkrýnd ungfrú Ísland 2016. Hún
hreppti hnossið á laugardaginn var
er fegurðardrottning Íslands var
valin í Hörpu.
Þegar blaðamaður náði í skottið
á henni var hún einmitt nýskriðin
af líkamsræktaræfingu en hún gefur
ekkert eftir í þeim efnum þó svo að
keppnin sé afstaðin.
„Ég var búin að hugsa mér að næla
mér í titilinn Miss Peoples Choice, ég
ætti mesta sénsinn þar. Maður veit
aldrei eftir hverju dómararnir eru
að leita,“ segir hún og skellir upp úr,
alsæl að sjálfsögðu með að hafa farið
heim með aðalkórónu kvöldsins.
„Svo nú fer ég út til Washing-
ton 18. nóvember en Miss World
keppnin fer fram þar mánuði síðar,“
segir þessi fallegasta kona landsins
og undirstrikar að ekki sé tími til að
slaka á úr þessu.
Anna Lára er sjálf tuttugu og
tveggja ára gamall Breiðhyltingur
sem starfar í félagsmiðstöðinni
Miðbergi í Breiðholti. Hún er fædd
og uppalin hér á landi, en foreldrar
hennar eru þau Sigurður Rúnar Guð-
mundsson og Elísabet Orlowska.
Aðspurð út í pólsku ræturnar, sem
hún er afar stolt af, segir hún: „Við
höfum alltaf farið út í þrjá mánuði
á ári og mamma hefur alltaf verið
hörð á að ég tali málið. Ég hef aldrei
verið feimin við að vera Pólverji eins
og margir. Mér fannst keppnin því
gott tækifæri til að standa upp fyrir
útlendinga á Íslandi, en hér eru for-
dómar gagnvart útlendingum stað-
reynd. Ég þekki það alveg sjálf, þó að
ég taki það ekki inn á mig og finni
minna fyrir því núna kannski.“
Anna Lára segist vissulega hafa
hugsað um þá staðreynd að í topp-
sætum keppninnar hafi ekki farið
mikið fyrir fegurðardrottningum
með blandað bakland hingað til.
„Ég pældi mikið í þessu áður en ég
tók þátt og hugsaði mikið um að
ef ég gæti unnið keppnina, gæti ég
kannski fengið fólk til að breyta
hugsunarhættinum,“ bendir hún
á og heldur áfram: „Mig langaði
að nýta mér tækifærið og beina
sjónum að því að við erum öll eins,“
segir hún blátt áfram. Henni tókst
sannarlega vel upp eins og innboxið
hennar á Fésbókinni hefur gefið til
kynna, en það nánast svignar undan
hvatningarorðum. „Nú langar mig
að halda áfram að vinna með góð-
gerðarmálin, og horfi til ungra
stúlkna. Ég get vel séð fyrir mér að
fara af stað með styrktarnámskeið
fyrir þann hóp,“ segir þessi kjarna-
kona að lokum.
gudrun@frettabladid.is
Stefndi á að verða
vinsælasta stúlkan
Anna Lára Orlowska var valin ungfrú Ísland 2016 síðasta laugardag.
Hún hefur ekki undan að svara stoltum Pólverjum sem gleðjast yfir
að loks sé pólskt blóð í æðum handhafa þessarar nafnbótar.
Orlowurnar eins og Anna Lára kallar þær mæðgur.
APPLE TV 4 Á 0 KR.
með 12 mánaða áskrift að völdum sjónvarpspökkum 365
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á 365.IS
365 SJÓNVARP Í APPLE TV
TILBOÐINU
LÝKUR EFTIR
1 DAG!
heiðurstónleikar
Bryndís Ásmunds
ásamt hljómsveit
miðasala á midi.is
2. september
Græni Hatturinn
3. september
Gamla Bíó
Anna Lára er afar spennt fyrir framhaldinu sem handhafi titilsins. Hún ætlar að nýta sér hann til góðs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
3 0 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R26 L í f I Ð ∙ f R É t t A B L A Ð I Ð
3
0
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
6
5
-1
4
6
4
1
A
6
5
-1
3
2
8
1
A
6
5
-1
1
E
C
1
A
6
5
-1
0
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
2
9
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K