Fréttablaðið - 30.08.2016, Blaðsíða 4
LANGTÍMALEIGA
Núna er rétta tækifærið til að gera langtímaleigusamning hjá Átak bílaleigu.
Þeir sem gera langtímasamning til 24 mánaða eða lengur fyrir 10. september
fá 30% afslátt af fyrsta mánuðinum og 10.000 kr. eldsneytisinneign hjá Olís.
Bifreiðagjöld • tryggingar • sumardekk • vetrardekk • þjónustuskoðanir
dekkjaskipti • olíuskipti • hefðbundið viðhald • 2.000 km á mánuði.
30%
30% afsláttur af
fyrsta mánuðinum
10.000 kr. inneign á
eldsneyti hjá Olís
10Þús. kr.INNIFALIÐ Í ÞJÓNUSTUNNI
Knarrarvogi 2 • 104 Reykjavík • Sími: 554 6040 • atak@atak.is • www.atak.is
Þú færð alþrif á bílnum einu sinni í mánuði
NÚNA ER RÉTTA TÆKIFÆRIÐ
Orkumál Hörður Arnarson, for-
stjóri Landsvirkjunar, telur að
athugasemdum Landsvirkjunar
við tillögur verkefnisstjórnar um
þriðja áfanga rammaáætlunar hafi
ekki verið svarað.
Hörður segist ekki skilja af hverju
tillögurnar hafi verið unnar í tíma-
þröng.
Verkefnisstjórn þriðja áfanga
rammaáætlunar skilaði á föstudag
umhverfis- og auðlindaráðherra til-
lögum sínum að flokkun virkjunar-
kosta. Um er að ræða fyrsta skiptið
sem lögð er fram tillaga unnin í
samræmi við lög um rammaáætlun
sem tóku gildi að fullu árið 2013.
„Í þessu ferli erum við að taka sem
þjóð mjög mikilvægar ákvarðanir
um nýtingu og vernd auðlindanna.
Verkefnisstjórn hefur þurft að vinna
vinnu sína í tímaþröng sem hefur
haft veruleg áhrif á vinnu þeirra
og ekki hefur náðst að skoða mjög
mikilvæg atriði sem snúa að sam-
félagi og efnahag,“ segir Hörður.
„Einnig kemur það sterkt fram
hjá faghópi fjögur að þetta sé ekki
í samræmi við hvernig aðrar þjóðir
vinni að svona ákvörðunum,“
bætir Hörður við
Stefán Gíslason, formaður verk-
efnisstjórnar, viðurkenndi í sam-
tali við RÚV að rammaáætlun
hefði verið unnin í tímaþröng.
Hörður segist ekki skilja af
hverju liggi á að taka svona
umfangsmiklar ákvarðanir um
flokkunina, það sé ljóst að þrýst-
ingurinn komi ekki frá Lands-
virkjun.
„Við teljum að það vanti inn
í þessar tillögur. Vissulega var
ágætt að flokka einhverja kosti en
við þessar aðstæður hefði verið
skynsamlegra að fjölga kostum í
biðflokki og gefa aðilum færi á að
vinna greiningar sem snúa að áhrif-
um á samfélag og efnahag áður en
svona umfangsmiklar ákvarðanir
eru teknar,“ segir forstjóri Lands-
virkjunar. – sg
Forstjóri Landsvirkjunar gagnrýnir tímaþröng við rammaáætlun
DANmÖrk Tap Dana vegna þátttöku
í fjárhættuspilum hjá hinum ýmsu
fyrirtækjum hefur vaxið um 20 pró-
sent á fimm árum. Tapið nemur nú
um 9 milljörðum danskra króna á
ári, að sögn danska ríkisútvarpsins.
Danskar getraunir reyna nú að ná
til þeirra sem tapa mest og hringja í
þá en alls nam tap Dana vegna spila
hjá dönskum getraunum 4,7 millj-
örðum danskra króna í fyrra. – ibs
Hringja í tapara
Danir tapa og tapa í spilum.
Ekki hefur náðst að
skoða mjög mikil-
væg atriði sem snúa að
samfélagi og
efnahag.
Hörður Arnarson,
forstjóri Lands-
virkjunar
FjÖlmiðlAr Hafliði Helgason hefur
verið ráðinn ritstjóri efnahags- og
viðskiptafrétta hjá Fréttastofu 365.
Hann mun annast ritstjórn Mark-
aðarins, fylgiblaðs Fréttablaðsins
um viðskipti og efnahagsmál, ásamt
fleiru. Hafliði var í hópi fyrstu blaða-
manna Fréttablaðsins við stofnun
þess árið 2001 og starfaði þar óslitið
til ársins 2007. Hann var ritstjóri
Markaðarins, fylgiblaðs Fréttablaðs-
ins um viðskipti frá stofnun blaðsins
árið 2005.
Frá 2007 hefur Hafliði unnið að
ýmsum verkefnum tengdum fjár-
festingum, nú síðast sem sérfræð-
ingur hjá Framtakssjóði Íslands frá
árinu 2012. Hann er með MBA-gráðu
frá Háskólanum í Reykjavík og á að
baki nám í blaðamennsku í Svíþjóð
og heimspeki við Háskóla Íslands.
Hafliði snýr
aftur til 365
VelFerðArmál Nær allir leikskóla-
stjórar og aðstoðarleikskólastjórar
hittust á óformlegum fundi í leik-
skólanum Rauðhól í Norðlingaholti
í gær til að ræða fjárhagsstöðu leik-
skóla borgarinnar. Fyrirvarinn var
naumur en hitinn í fólki var mikill.
„Það eru allir búnir að fá sig full-
sadda af niðurskurði. Nú ætlum við
að reyna að stöðva þessa vitleysu.
Við erum algjörlega komin inn að
beini,“ segir Guðrún Sólveig, leik-
skólastjóri á Rauðhól.
Undanfarna daga hafa leikskóla-
stjórar komið fram í fjölmiðlum og
sagt fjárhagsstöðu leikskóla aldrei
hafa verið jafn slæma. Frá hruni hafi
leikskólar verið sveltir og að í ár hafi
staðan verið sérlega erfið eftir enn
meiri niðurskurð í málaflokknum.
Í síðustu viku tók steininn úr
þegar rekstrarniðurstöður fyrir árið
2015 voru kynntar með þeim skila-
boðum til leikskólastjóra að spara
þurfi enn meira, þar sem leikskólar
taka tapið frá fyrra ári með sér inn
í nýtt ár.
„Það er mikil samstaða og sam-
hugur meðal stjórnenda. Nú ætlum
við að ganga fram og skrifa ályktun
um málið. Það er í vinnslu í þessum
töluðum orðum,“ segir Guðrún Sól-
veig.
Leikskólastjórar ætla svo að
afhenda borgarstjóra ályktunina
klukkan ellefu í dag í ráðhúsinu.
En gerir Guðrún ráð fyrir að álykt-
un muni hafa áhrif? „Við gerum ráð
fyrir að hlustað verði á okkur, við
erum ekki vön að standa upp og
vera með læti. En nú er okkur nóg
boðið,“ svarar Guðrún.
Leikskólastjórar vilja að hætt
verði við þá ákvörðun að leikskólar
fari inn í nýtt rekstrarár með skuldir
fyrra árs á bakinu.
„Og að leikskólar fái það fjár-
magn sem þeir þurfa fyrir eðlilegan
rekstur,“ segir Guðrún og nefnir
dæmi um alls kyns sparnað síðustu
átta árin sem hefur laskað starf leik-
skólanna. Helst hefur verið skorið
niður í stærstu kostnaðarliðunum,
í mat og starfsmannahaldi.
„Við reynum að ráða starfsfólk í
eldhúsið sem kann að nýta allt. Við
notum til að mynda hafragrautinn
í brauðið. Svo skerum við niður
þar sem við getum. Fyrir rúmu ári
hættum við til að mynda að gefa
börnunum lýsi. Þar spöruðum við
einhverja þúsundkalla. Við þurfum
nefnilega að horfa í hverja einustu
krónu.“
Guðrún Sólveig viðurkennir að
mikil þreyta sé komin í starfsfólk
leikskóla en einnig miklar áhyggjur
af starfinu og börnunum.
„Sífellt fleiri börn eru hér lengri
daga en á meðan er verið að skerða
gæðin. Starfsmenn reyna að gera
eins vel og þeir geta. Þótt við séum
undirmönnuð og undir miklu álagi
reynum við að ná öllum í fang og
knúsa alla eins mikið og við getum
í stað þess að vera í streitu og hraða.
En nú erum við komin að þolmörk-
um,“ segir Guðrún Sólveig.
erlabjorg@frettabladid.is
Rísa upp og „stöðva vitleysuna“
Leikskólastjórar í Reykjavík funduðu í gær í þeim tilgangi að reyna að „stöðva vitleysuna“ sem þeir segja
niðurskurð til leikskóla vera. Borgarstjóra afhent ályktun í dag. Allir orðnir fullsaddir, segir leikskólastjóri.
Krakkarnir á Rauðhóli léku sér úti í blíðunni í gær. Á leikskólanum eru 212 börn og þarf að skera þar niður um sjö milljónir á
næsta ári. Leikskólastjórinn er ráðþrota. FRéttabLaðið/EyþóR
Við gerum ráð fyrir
að hlustað verði á
okkur, við erum ekki vön að
standa upp og vera með læti.
En nú er okkur
nóg boðið.
Guðrún Sólveig,
leikskólastjóri
Rauðhóls
Hafliði
Helgason,
nýráðinn ritstjóri
Markaðarins
3 0 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ r i ð j u D A g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t A B l A ð i ð
3
0
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
6
5
-1
9
5
4
1
A
6
5
-1
8
1
8
1
A
6
5
-1
6
D
C
1
A
6
5
-1
5
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
3
2
s
_
2
9
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K