Fréttablaðið - 05.07.2016, Side 12
Í dag
22.00 Borgunarmörkin
Borgunarbikar karla:
19.15 Fram - Selfoss
Borgunarbikar kvenna:
19.15 Breiðablik - HK/Víkingur
19.15 Stjarnan - Haukar
Strákunum okkar fagnað sem hetjum á Arnarhóli
Þakklæti Íslenska landsliðið í fótbolta, leikmenn og starfsfólk fékk höfðinglegar móttökur við komuna til Íslands í gær. Fjöldi fólks kom saman á
Arnarhóli til að hylla strákana okkar sem gerðu gott mót á EM í Frakklandi. Íslensku leikmennirnir þökkuðu sömuleiðis fyrir þann mikla stuðning
sem þeir fengu á EM, bæði hjá þeim sem sóttu leikina í Frakklandi og þeim sem fylgdust með heima á Íslandi. FréttaBlaðið/Hanna
golf „Það er mikill heiður að Ísland
fái að halda Evrópumót landsliða.
Hér eru allir fremstu áhugakylfingar
álfunnar mættir til þess að spila.
Hérna eru allir atvinnumenn fram-
tíðarinnar,“ segir landsliðsþjálfar-
inn Úlfar Jónsson en mótið var
formlega sett í gærkvöld og byrjað
var að spila í dag.
Alls eru 20 þjóðir mættar til
Íslands vegna mótsins. Keppnis-
fyrirkomulagið á EM er með þeim
hætti að leiknar eru 36 holur fyrstu
tvo keppnisdagana og telja fimm
bestu skor af alls sex í hverri umferð.
Þjóðunum er að því loknu skipt
upp í A-, B- og C-riðil þar sem leikin
er holukeppni. Í A-riðli leika þjóð-
irnar sem enduðu í 1.-8. sæti í högg-
leiknum, í B-riðli leika þjóðirnar í
sætum 9.-16. og í C-riðli leika þjóð-
irnar sem eru þar fyrir neðan.
renna blint í sjóinn
Landsliðsþjálfarinn segir að vissu-
lega renni hann nokkuð blint í
sjóinn með styrkleikann á liðunum
en engu að síður setur liðið markið
hátt.
„Það er alltaf erfitt að segja hvað
sé raunhæft. Við höfum samt undir-
búið okkur vel og liðið lítur vel út.
Við erum ánægðir með stelpurnar
sem eru í mjög góðum gír. Ef við
spilum samkvæmt getu þá eigum
við ágæta möguleika á því að kom-
ast í A-riðil. Markmiðið er að sjálf-
sögðu sett þangað,“ segir Úlfar og
hann vonast til þess að heimavöllur-
inn hjálpi þó svo aðeins sé búið að
breyta vellinum.
„Það er helst að veðrið er ekki
að hjálpa okkur. Það er allt of gott
veður,“ segir Úlfar og hlær við. „Það
er leikið á öðrum teigum en stelp-
urnar eru vanar. Völlurinn hefur
verið lengdur og er um 500 metrum
lengri. Má segja að það sé leikið
af gulum teigum. Það er nýtt fyrir
þær en við höfum náð að undirbúa
okkur vel þannig að ég held að við
höfum ákveðið forskot þar. Ef þær
halda sínu striki og leika sitt golf
getur ýmislegt gott gerst.“
Undirbúningur fyrir mótið hefur
gengið vel að sögn Úlfars og liðið
náð talsvert að spila saman.
„Það er búið að vera mikið að
gera undanfarnar vikur hjá stelp-
unum. Það hefur verið sveitakeppni,
Íslandsmót í holukeppni og fleira.
Það hefur mætt mikið á stelpunum.
Undirbúningurinn hjá okkur hófst
í maí og fram í júní. Upp á síðkastið
höfum við aftur verið að æfa saman.
Fara yfir völlinn og búa til leikskipu-
lag,“ segir þjálfarinn og bætir við að
það sé mjög góður mórall í liðinu.
„Þær eru alltaf að keppa við hverja
aðra og þekkjast mjög vel þessar
stelpur. Þetta er virkilega flottur
hópur sem gaman er að vinna með.
Við höfum verið að hittast á vell-
inum og borða svo saman.“
Flottar fyrirmyndar
Það er mikil gróska í íslensku
kvennagolfi og íslenskir kven-
kylfingar sífellt að ná betri árangri.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er til að
mynda að taka þátt á Evrópumóta-
röðinni.
„Svo er Valdís Þóra Jónsdóttir í
næstu mótaröð fyrir neðan. Þær
eru flottar fyrirmyndir fyrir hinar
stelpurnar. Sýna að þetta sé hægt.
Það er búið að ryðja brautina. Það
eru ungar og flottar stelpur að koma
upp. Við erum með U-18 ára lið í
Ósló þar sem þær fá flotta reynslu.
Þar eru líka mikil efni og yngsta
stelpan í liðinu þar er bara 14 ára,“
segir Úlfar en hann gleðst líka yfir
því að breiddin sé sífellt að verða
meiri.
„Það eru miklir möguleikar fyrir
stelpur sem vilja leggja á sig af
fullum krafti. Það eru tækifæri fyrir
þær. Að komast í landsliðið eða í
góðan háskóla í Bandaríkjunum.“
Umgjörðin í kringum golfíþrótt-
ina á Íslandi hefur batnað mikið á
síðustu árum og það á stóran þátt í
því hversu vel gengur að framleiða
efnilega kylfinga.
„Það hefur mikið breyst og til að
mynda í þjálfun þjálfara. Það eru
miklu fleiri þjálfarar PGA-mennt-
aðir í dag en voru. Svo hefur æfinga-
aðstaðan batnað og æfingarnar hafa
líka aukist. Á síðustu tíu árum er
algengt að boðið sé upp á æfingar
í að minnsta kosti tíu mánuði á
ári. Það er meira en til að mynda
á Norðurlöndunum. Við erum því
mjög framarlega í þjálfun okkar
barna og unglinga sem og afreks-
fólks. Umgjörðin er til staðar og
það er mikill metnaður í golfhreyf-
ingunni.“ henry@frettabladid.is
Það er allt of gott veður
Evrópumót kvennalandsliða í golfi hefst á Urriðavelli í dag. Þetta er stærsta alþjóðlega golfmót sem hefur
verið haldið á Íslandi. Landsliðsþjálfarinn, Úlfar Jónsson, setur markið hátt fyrir mótið stóra.
Íslenska kvennalandsliðið. Frá vinstri: ragnhildur Kristinsdóttir, anna Sólveig
Snorradóttir, Sunna Víðisdóttir, Berglind Björnsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir
og Signý Árnórsdóttir. mynd/GSÍ
Borgunarbikar karla
8 liða úrslit
Þróttur- FH 0-3
0-1 Þórarinn Ingi Valdimarsson (21.), 0-2
Þórarinn Ingi (48.), 0-3 Kristján Flóki Finn-
bogason (54.).
Borgunarbikar kvenna
8 liða úrslit
ÍBV- Selfoss 5-0
1-0 Rebekah Bass (24.), 2-0 Cloe Lacasse
(41.), 3-0 Lacesse (45.), 4-0 Lacesse (56.), 5-0
Sigríður Lára Garðarsdóttir, víti (80.).
Þór/Ka - Fylkir 1-0
1-0 Sandra Stephany Maria Gutiérrez (13.).
DUrANt VALDi GoLDEN StAtE
Kevin Durant, einn allra besti
leikmaður NBA-deildarinnar
undanfarin ár, greindi frá því í
gær að hann væri á leið til Golden
State Warriors frá oklahoma
City thunder. Durant, sem hefur
fjórum sinnum orðið stigakóngur
í NBA, var samningslaus og því
frjálst að semja við hvaða lið sem
er í NBA. Fjölmörg kepptust um að
tryggja sér þjónustu Durants sem
valdi að lokum Golden State sem
tapaði fyrir Cleveland Cavaliers í
úrslitum NBA í síðasta mánuði. Lið
Golden State virkar ansi óárenni-
legt en þar hittir Durant fyrir
skytturnar öflugu Stephen Curry
og Klay thompson auk Draymons
Green. talið er að Durant, sem var
valinn verðmætasti leikmaður
NBA-deildarinnar 2014, skrifi
undir tveggja ára samning við
Golden State að verð-
mæti 54,3 milljónir
dollara.
Falleg stund á Arnarhóli.
#takkstrákar #TakkLars
#TakkHeimir Algjörlega
magnaðir allir með tölu.
Takk fyrir mig.
Hörður Magnússon
@HoddiMagnusson
MEiStArArNir BætA Við SiG
Englandsmeistarar Leicester ætla
ekki að gefa neitt eftir á næsta
tímabili en þeir hafa verið duglegir
að styrkja sig í sumar. Leicester er
nú komið langt með að tryggja sér
þjónustu nígeríska framherjans
Ahmed Musa sem hefur leikið
með CSKA Moskvu undanfarin
ár. talið er að Leicester greiði 16,6
milljónir punda fyrir Musa sem
verður þá dýrasti leikmaður í sögu
félagsins. Musa skoraði 53 mörk
í 164 leikjum fyrir CSKA Moskvu
en hann varð þrisvar rússneskur
meistari með liðinu.
5 . j ú l í 2 0 1 6 Þ R I Ð j U D A g U R12 s p o R t ∙ f R É t t A B l A Ð I Ð
sporT
0
5
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:5
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
A
-3
3
9
4
1
9
E
A
-3
2
5
8
1
9
E
A
-3
1
1
C
1
9
E
A
-2
F
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
4
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K