Fréttablaðið - 05.07.2016, Side 16
Volkswagen hefur sagt að fyrir
tækið þurfi að reisa eigin raf
hlöðuverksmiðju til að uppfylla
þörfina fyrir stóraukna fram
leiðslu Volkswagenbílafjölskyld
unnar á rafmagnsbílum og tengil
tvinnbílum. Nýjustu fréttir úr
þeirra herbúðum herma að Kína
sé líklegasti staðurinn til að reisa
slíka verksmiðju. Volkswagen
ætlar að kynna 30 nýja bíla sem
drifnir eru áfram að hluta eða öllu
leyti með rafmagni á næstu tíu
árum.
3 milljónir rafmagnsbíla eftir 10 ár
Eftir 10 ár gerir Volkswagen
ráð fyrir að selja þrjár milljón
ir bíla sem ganga fyrir rafmagni
á hverju ári. Það liggur því ljóst
fyrir að eftirspurnin eftir rafhlöð
um verður gríðarleg hjá Volks
wagen en fyrirtækið vill ekki
þurfa að treysta á aðra framleið
endur til að uppfylla þessa þörf.
Ein af ástæðum þess að líklegt sé
að Volkswagen byggi eigin raf
hlöðuverksmiðju í Kína er sú að
hún yrði að helmingi fjármögnuð
af Shanghai Automotive sem einn
ig nýti sér smíði rafhlaða í henni.
Volkswagen vill ekki vera háð raf
hlöðuframleiðslu Panasonic, Sam
sung eða LG Chem og hyggst
lækka framleiðslukostnað raf
hlaðanna með mjög stórri verk
smiðju, líkt og Tesla er að byggja í
Nevada fyrir sína bíla.
Rafhlöðuverksmiðja
Volkswagen líklegast í Kína
Ford Focus RS er bæði ógnaröflugur og stórkostlegur akstursbíll.
Brimborg hefur nú afhent fyrsta
Ford Focus RS bílinn, en þessi
gerð Focus er öflugasta gerð bíls
ins og heil 350 hestöfl. Verð þessa
bíls er tiltölulega hófsamt fyrir
svo öflugan bíl, eða 6.990.000 kr.
og erfitt hér á landi að finna svo
öflugan bíl á svo lágu verði af
nokkurri bílgerð. Ford Focus RS
hefur fengið frábæra dóma bíla
blaðamanna um allan heim og
því lék greinarritara forvitni á að
vita hvort fótur væri fyrir þeim
dómum og fékk því að reyna grip
inn. Sem dæmi hefur bílablað Top
Gear valið hann sem besta bíl árs
ins af árgerð 2016 og átti ekkert
nema fín orð til að lýsa bílnum.
Vélin gerð til að snúast hratt
Fyrir það fyrsta er bíllinn afar
mikið fyrir augað og krafturinn
skín af honum. Þegar í hann er
sest er alveg ljóst að þá á að halda
ökumanni á sínum stað við akst
urinn því sætin njörva ökumann
niður og ekki veitir af þegar af
stað er farið. Afl bílsins er hrein
lega hlægilegt og gaman að láta
hann snúast rösklega. Afl vélar
innar, sem er 2,3 lítra Eco Boost
vél með forþjöppu, kemur ekki í
ljós við lágan snúning en þegar
hún er látin snúast rösklega
kemur gríðarlegt afl í ljós og þess
ari vél er ætlað að snúast hratt
og á mjög háum snúningi er hún
öskrandi kraftaköggull. Yndislegt
er að láta bílinn fara hratt í beygj
ur með sitt fjórhjóladrif, enda
ekkert vit að beina svo miklu afli
á annan öxul bílsins.
Liggur eins og klessa
Ford Focus RS liggur eins og
klessa og stýringin er mjög ná
kvæm. Ford hefur lukkast
einkar vel að stilla stýringu
þessa bíls og breið dekk hans
gera það að verkum að hann
missir afar seint grip. Brems
ur bílsins eru einnig mjög góðar
og ekki veitir af. Fjöðrun bíls
ins er fremur hörð en ekki þó
það hörð að óþægilegt sé. Þarna
hefur Ford einnig fundið góðan
milliveg og hægt er að aka bíln
um eins og hverjum öðrum borg
arbíl á þægilegan hátt en þegar
skal á honum tekið er hann tilbú
inn til þess í einu og öllu. Brim
borg hefur einnig hafið innflutn
ing á minni bróður RS en sá ber
stafina ST og er 250 hestöfl.
Hann er einnig á fínu verði fyrir
svo öflugan bíl, en eðlilega eftir
bátur þess gríðaröfluga. Verð
hans er 5.390.000 kr.
Framleiðir Ford enn öflugri Focus?
Svo mikil er eftirspurnin eftir
kraftatröllinu Ford Focus RS að
fyrirtækið þarf að auka við fyrir
ætlaða framleiðslu sína á bílnum.
Mest er eftirspurnin eftir bíln
um í Bretlandi og þar ætlaði Ford
að selja 4.000 bíla en þarf að auka
hana um minnst 1.000 bíla. Lang
ur biðlisti er þar eftir bílnum og
þeir sem panta hann núna þurfa
líklega að bíða í 12 til 14 mánuði
eftir að fá hann afhentan. Ford er
að íhuga að framleiða enn öflugri
gerð Ford Focus, þ.e. RS500 og ef
af því verður mun sá bíll verða
sneggsti fjöldaframleiddi stall
bakur í heimi.
Fyrsti 350 hestaFla
Ford Focus rs kominn
á göturnar hérlendis
Ford hefur ekki undan að framleiða Focus RS, slík er
eftirspurnin eftir þessum fjórhjóladrifna kraftabíl.
Nissan Skyline bíll Tómasar er einstakur söfnunargripur.
Aðeins eitt eintak er til hér á landi
af söfnunarbílnum Nissan Skyline
af gerðinni R34 og eigandi hans
er Tómas Kristjánsson. Þetta er
bíll sem kom til landsins í mars
2006 eftir að hafa verið tíu mán
uði á leið frá Japan, þar af um sex
mánuði í Bretlandi til að fá Evr
ópuvottun. Þá var hann keyrð
ur 67.000 kílómetra en í dag um
112.000 km. Það telst ekki mikil
keyrsla á ári, sem títt er með svo
verðmæta söfnunargripi. Bíllinn
er 18 ára gamall og er töluvert af
hlutum í honum sem eru langt á
undan sinni samtíð. Vél, drif og
gírkassi í þessum bíl eru allt gríð
arlega sterkir hlutir og þótt aflið
sé nægt þá hefur ekkert bilað í
þessum bíl síðan hann var flutt
ur inn, annað en venjulegir við
haldshlutir eins og bremsur og
slíkt. Það hefur líka verið mikið
aðhald með öllum hlutum í þess
um bíl. Vélin er ekki farin að leka
neinni olíu og hún er yfirleitt það
hrein að þegar eigandinn tappar
af honum olíunni getur hann notað
hana á aðra bíla sína. Það eru
innan við 10 Skyline bílar á land
inu og þetta er sá eini sem er R34
módelið. Flestir eru af eldri R33
gerð og örfáir af R32 gerð.
280 hestöfl frá verksmiðju en öflugri
Bíllinn er gefinn upp 280 hest
öfl frá verksmiðju. Hann kom til
landsins frá Japan fyrir rúmum
tíu árum og hefur eigandi hans
keyrt hann rúmlega 40.000 kíló
metra á þeim tíma, sem ekki telst
mikið. Undanfarin ár hefur hann
verið keyrður innan við 1.000 km
á ári en samt alltaf skipt um olíu
á vorin. Bíllinn hefur verið tek
inn af númerum og geymdur inni
í bílskúr yfir vetrarmánuðina
og alltaf verið svampþveginn og
bónaður reglulega. Skipt var um
tímareim og allar aðrar reimar í
90.000 km.
Ótrúlega tæknivæddur þó 18 ára sé
Tómas á alla orginal hluti sem
hafa verið teknir úr bílnum, en
ýmsu góðgæti hefur verið bætt
við hann. Meðal þess er nýtt
þriggja tommu pústkerfi, K&N
olíusía, boost controller, AX53B70
túrbína og 18 tommu Enkeiálfelg
ur. Bíllinn er með afturhjólastýr
ingu sem eykur akstursgetu bíls
ins og minnkar mjög beygjuradí
us hans. Tiptronicskipting með
skiptitökkum er í stýri bílsins og
hann er ótrúlega fullkominn bíll
miðað við það að hann var fram
leiddur fyrir 18 árum. Þetta ein
tak er nánast í fullkomnu ástandi
og eins og nýr að sjá og allt virkar
í bílnum. Hér er því um afar verð
mætt eintak af bílnum að ræða.
eini nissan skyline
r34 bíll landsins
Það verður ekki bara nýr Audi
SQ7 sem fær 48 volta forþjöppu
til aflaukningar dísilvélarinnar
sem er í bílnum. Það mun nýr
Audi SQ5 einnig fá og með henni
gæti bíllinn orðið allt að 390 hest
öfl. Líklegra er þó talið að 365
hestöfl verði látin duga. Í dag má
kaupa Audi SQ5 plus með dísil
vél og tveimur forþjöppum sem
er 335 hestöfl og er hann aðeins
5,1 sekúndu í 100 km hraða. Því
má búast við því að nýi SQ5 verði
sneggri en 5 sekúndur í 100 km/
klst. Nýr Audi SQ5 verður ekki
með tveimur forþjöppum held
ur einni en þar sem hún er svo
öflug með sín 48 volt þá spraut
ar hún svo miklu lofti til vélar
innar og ein slík dugar. Ekki er
þó von á nýjum Audi SQ5 fyrr en
árið 2018, enda stutt síðan Audi
hóf að bjóða SQ5 plus bílinn. Svo
virðist sem Audi, sem er í eigu
Volkswagen, muni enn um sinn
veðja á dísilvélatækni í suma bíla
sína þrátt fyrir dísilvélasvindl
Volkswagen og þá andstöðu sem
myndast hefur hjá sumum bíl
kaupendum í garð dísilvéla.
Audi SQ5 fær 48 volta
forþjöppu líkt og SQ7
Mikið er spáð í eftirköst brott
hvarfs Bretlands úr Evrópusam
bandinu varðandi bílaiðnaðinn
og svartsýnustu raddir spá allt
að einni milljón bíla minni sölu
nýrra bíla í heiminum á þessu
ári og þeim tveimur næstu. LMC
Auto motive spáir því að bílasala
muni minnka um 120.000 bíla
bara í Bretlandi í ár og á næstu
tveimur árum hafi brotthvarf
Breta úr ESB þau áhrif að 400.000
færri bílar seljist hvort árið. Þá er
búist við því að bílaframleiðendur
muni halda aftur af fjárfesting
um og ráðningum nýs starfsfólks
í kjölfar brotthvarfsins. Evercore
ISI gerir ráð fyrir að hagnaður
bílaframleiðenda minnki um allt
að 1.100 milljarða króna vegna
þessa á næstu tveimur árum.
Evercore ISI á von á 14 prósenta
minni bílasölu í Bretlandi á næsta
ári en spáð hafði verið áður og
ástæða þess sú að fólk leggur ekki
í miklar fjárfestingar á óvissu
tímum í efnahagsmálum. Búist
er við því að bílafyrirtækin PSA
PeugeotCitroën, Volkswagen og
Ford verði fyrir mestum búsifj
um af ákvörðun Breta. Allir bíla
framleiðendur hafa áhyggjur af
brotthvarfi Bretlands úr Evrópu
sambandinu og flestir forstjórar
þeirra hafa viðrað áhyggjur sínar
í fjölmiðlum.
Spá allt að 1.000.000 bíla
minni sölu vegna Brexit
Audi SQ5 fær allt að 390 hestafla vél.
bílar
Fréttablaðið
2 5. júlí 2016 ÞRIÐJUDAGUR
0
5
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:5
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
A
-5
B
1
4
1
9
E
A
-5
9
D
8
1
9
E
A
-5
8
9
C
1
9
E
A
-5
7
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
4
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K