Fréttablaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Þá fannst mér einmitt mjög gaman að fá tækifæri til að senda kveðju til lands- liðsins okkar fyrir leikinn.Alla daga fer ég er í garð-inn Europa Park og er í bíl í skrúðgöngu á leið-inni þangað. Sit þar með borðann minn og veifa til krakkanna,“ segir ungfrú EM, Arna Ýr Jónsdóttir, sem enn er í lukkunnar velstandi rétt hjá þýsku borginni Freiburg, sem ein- mitt er við landamæri Þýskalands og Frakklands, þar sem Evrópumeistara- mótið í knattspyrnu fer fram. Íslenska karlalandsliðið sneri aftur heim í gær eftir frækna fram- göngu á mótinu og má því segja að Arna Ýr standi vaktina fyrir Íslands hönd, verandi ungfrú EM. Þrátt fyrir að Ísland hafi lokið þátttöku sinni á mótinu er Arna Ýr í blússandi stuði og nóg fyrir hana að gera. „Ég kom hingað með það fyrir augum að vera í tvær vikur. Ég hef verið meðhöndluð eins og prinsessa allan tímann. Eftir að hafa verið í skrúðgöngunni fæ ég svo hádegismat, og fer aftur þaðan á minn bás þar sem risastórum skiltum með myndum af mér hefur verið komið fyrir. Þar sit ég og árita á spjöld með myndum af mér og fólk getur sömuleiðis fengið myndir af sér með mér. Á kvöldin, þegar leikir fara fram, er ég á aðal- hótelinu á sviði að gefa áritanir og sé svo auk þess um happdrætti og fleira skemmtilegt,“ útskýrir Arna Ýr, alsæl með hlutverkið. Þú ert þá væntanlega komin í frægra manna tölu í Freiburg, svona miðað við áganginn? „Já, það má eiginlega segja það. Það koma allir æðislega vel fram við mig og ég fæ að upplifa allt það besta,“ segir hún glöð í bragði. Þó svo að Arna Ýr kunni býsna vel við þá prinsessulegu með- höndlun sem hún fær, þá er hún afar ánægð með að fá tækifæri til að vera með svokallað „workshop“ sem ætluð eru börnum. „Ég fæ þá að kenna þeim ýmislegt, svo sem að mála, catwalk- ing-námskeið og fimleika,“ bendir hún stolt á, en sjálf er Arna Ýr fim- leikakennari og mikil íþróttakona. Þá er hún iðin við að grípa í pensilinn og er mikil listakona. En skyldi titillinn ungfrú EM skila henni einhverjum frekari tækifær- um að lokinni EM dvölinni? „Já, ég hef fengið rosalega mikið af smærri verkefnum og myndatökum. Verkefni tengd Íslandi hreinlega hlaðast inn og mikið af ljósmyndurum sem bjóða mér verkefni. Þetta er allt saman mjög skemmtilegt. Þá fannst mér einmitt mjög gaman að fá tækifæri til að senda kveðju til landsliðsins okkar fyrir leikinn á móti Frökkum. Eigendur Europa Park lögðu mikla áherslu á að ég myndi láta liðið vita að það ætti endilega að gera sér ferð í garðinn, þar sem allt yrði auðvitað í boði hússins. Maður finnur mikið fyrir því að allir elska Ísland núna.“ En hvernig er stemningin núna þegar Ísland er dottið út? „Hún er enn þá rosalega góð. Allir tala svo rosalega fallega um Ísland. Ég var beðin um að fara í viðtal bæði fyrir og eftir leikinn og það eina sem rætt var um, var hversu frábært liðið er og hversu flottir íslensku stuðnings- mennirnir voru,“ segir hún og ekki er annað að heyra en hún sé ansi stolt af samlöndum sínum. „Bróðir minn og kærasti eru að koma út til mín og við verðum hér saman þar til móti lýkur,“ segir hún að lokum, afar ánægð með lífið. gudrun@frettabladid.is miss em er alls ekki af baki dottin Þó svo íslenska karlalandsliðið hafi lokið þátttöku sinni á EM hefur ungfrú EM nóg að gera. „Það elska allir Ísland,“ segir Arna Ýr, pakkfull af þjóðarstolti. Hún hefur vart undan að veita eiginhandaráritanir og veifa úr skrúðgöngum. Örnu Ýr var gert að klæða sig upp fyrir leik Íslands gegn Frökkum á sunnudag. Sem hún og gerði. Arna Ýr hefur meira en nóg að gera við að árita fána og spjöld í skemmtigarðinum Europa Park. Flestir kannast við Smiðjuhverfið í Kópavogi þar sem göturnar eru nefndar eftir litum og fjöldinn allur af fyrirtækjum hefur aðsetur. Í kvöld má kynnast annarri hlið hverfisins þegar efnt verður til listahátíðarinnar SmiðjuFest. Að hátíðinni stendur fjöllista- hópurinn Bermúda sem hefur haft aðsetur í hverfinu og vinnur þar að listrænni rannsókn. Hópinn skipa Agnes Ársælsdóttir, Hrund Ingva- dóttir og Kristín Nanna Einarsdóttir. „Hugmyndin spratt eiginlega upp út frá Smiðjuhverfinu. Við erum allar úr hverfinu en höfum ekki gert okkur oft ferð þangað og ekki skilið það alveg,“ segir Agnes en óskipulag hverfisins vakti athygli þeirra. Hugmyndin að hópnum kviknaði eftir göngutúr og sóttu þær í kjölfarið um Skapandi sumarstarf í Kópavogi. „Við fórum í göngutúr inn í göturnar og sáum alls konar spennandi sjón- ræn mótív fyrir ljósmyndun. Það var upphafspunkturinn,“ segir Agnes. Í sumar hafa þær mest fengist við ljósmyndun og grafík en þær koma úr ólíkum áttum. „Ég er að læra myndlist í Listaháskólanum, Kristín er í bók- menntafræði og Hrund hefur verið að fást við ljósmyndun.“ Þegar Agnes er spurð að því hvort þær stöllur skilji hverfið betur eftir að hafa unnið þar í nokkrar vikur hlær hún. „Ég veit það ekki alveg. Það hefur allavega komið okkur á óvart hvað það er fjölbreytt og hvað það er einhvern veginn lítið skipulag hér,“ segir hún en nafn lista- hópsins segir hún tilkomið vegna þess að í Smiðjuhverfinu sé ekkert skipulag og fólk týnist þar í mismun- andi tímabeltum. Í kvöld verða ýmis atriði bæði úr Skapandi sumarstörfum og öðrum áttum. SmiðjuFest hefst klukkan 20.00 og verður á neðri hæð í Grárri götu. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. – gló koma allar úr hverfinu Hugmyndin að Bermúda kviknaði eftir göngutúr. MyND/JúLÍUS VALDIMARSSON Áreiðanleg vörn alla nóttina. Þú upplifir hreinleika og ferskleika þegar þú vaknar. Eini tíðatappinn með verndandi SilkTouch™ vængjum NÝJUNG! JJ 24 08 5 . j ú l í 2 0 1 6 Þ R I Ð j U D A G U R22 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð 0 5 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :5 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 E A -3 8 8 4 1 9 E A -3 7 4 8 1 9 E A -3 6 0 C 1 9 E A -3 4 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.