Fréttablaðið - 24.06.2016, Side 4
AlmAnnAvArnir „Slökkviliðsstjór-
inn fór vel yfir þetta með okkur á
fundinum og sagði að hann hefði
ekki gripið til þessara breytinga án
þess að vera fullviss um að öryggi
verði tryggt,“ segir Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri, sem er stjórnar-
formaður slökkviliðsins á höfuð-
borgarsvæðinu.
Nýtt skipulag, sem felst í færri
mönnum á vöktum í sumar, var
kynnt stjórninni í fyrradag en
Fréttablaðið hefur síðustu daga
viðrað áhyggjur slökkviliðsmanna
vegna manneklu og vanbúnaðs
slökkviliðsins.
„Stjórnin tekur þessar áhyggjur
mjög alvarlega og ákvað því að
láta vinna áhættumat á þessu nýja
skipulagi,“ segir Dagur, en ekki
er á döfinni að auka fjármagn til
slökkviliðsins og bendir Dagur á í
því samhengi að ekki megi gleyma
nýrri stöð sem opnuð var nýlega og
að slökkviliðsmönnum hafi fjölgað
um fjórtán í fyrra.
Slökkviliðið fær ekki meiri peninga
Slökkviliðsmenn segja álagið vegna
manneklu skapa hættu en stjórnarfor-
maðurinn treystir að öryggi sé tryggt.
Fréttablaðið/SteFán
Heimildarmaður Fréttablaðsins
innan slökkviliðsins bendir aftur á
móti á að nýju starfsmennirnir hafi
rétt svo náð upp í starfsmannaveltu
og á sama tíma hafi sjúkraflutn-
ingum fjölgað gífurlega. Þá skjóti
skökku við að byggja nýja stöð fyrir
um milljarð sem hýsi eingöngu tvo
menn og það vanti allan búnað þar
til að bregðast við eldsvoða. Segir
heimildarmaðurinn þetta lýsa
vel því óskipulagi sem ríki innan
slökkviliðsins. – ebg
Stjórnin tekur
þessar áhyggjur
mjög alvarlega og ákvað því
að láta vinna
áhættumat á
þessu nýja
skipulagi.
Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri
KjArAmál Sveitarfélög landsins
hyggjast kafa ofan í orsök kynbund-
ins launamunar starfsmanna þeirra
í kjölfar niðurstöðu nýrrar kjara-
könnunar félagsmanna Bandalags
íslenskra háskólamanna. Könnunin
sýndi að kynbundinn launamunur
hefur rokið upp í sveitarfélögum
landsins, utan Reykjavíkurborgar,
milli áranna 2014 og 2015, úr átján
prósentum í 29 prósent.
Fo r sv a r s m e n n S a m b a n d s
íslenskra sveitarfélaga telja
ástandið alvarlegt og munu gera
úttekt á áhrifum starfsmats á launa-
mun kynjanna í haust.
Sérstakar kannanir um kyn-
bundinn launamun hafa ekki verið
gerðar innan Sambands íslenskra
sveitarfélaga. „Við erum að skoða
núna okkar gögn og erum búin
að óska eftir fundi með BHM. Við
munum taka næstu daga í að fara
yfir þetta. Við viljum greina þessa
stöðu vel. Við lítum þetta mjög
alvarlegum augum,“ segir Inga Rún
Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs
sambandsins.
„Það var gerður kjarasamningur
í apríl við öll félögin í BHM um að
fara í starfsmat, í apríl var stigið
fyrsta skrefið í því. Þetta var allt
saman skoðað og algjörlega stokkað
upp á nýtt og sú aðgerð hefur örugg-
lega haft mjög jákvæð áhrif varð-
andi launamun kynjanna, þetta var
í gangi á sama tíma og könnunin var
gerð,“ segir Inga Rún.
„Við munum líka gera könnun á
því hvernig það hefur raungerst. Við
munum gera nákvæma úttekt á því
í október.“
Svör fengust ekki í tæka tíð um
kynbundinn launamun innan sveit-
arfélaga sem haft var samband við
nema frá Akureyrarbæ og Garðabæ.
Á Akureyri verður gerð rannsókn í
haust sem nær þá yfir öll stéttarfélög
starfsmanna. Ekki var marktækur
kynbundinn munur á heildarlaunum
karla og kvenna hjá Garðabæ sam-
kvæmt könnun sem gerð var árið
2014. Við skoðun innanhúss í gær
er ekki um kynbundin launamun að
ræða hjá Garðabæ samkvæmt upp-
lýsingum frá starfsmannahaldi. – sg
Grafast fyrir um kynbundinn launamun innan sveitarfélaganna
BretlAnd Aðildarsinnar höfðu
nauman meirihluta í fyrstu tölum úr
þjóðaratkvæðagreiðslu um Brexit,
hvort Bretland ætti að skilja sig frá
Evrópusambandinu í gær. Kjörsókn
var áætluð nálægt 70 prósentum.
Í Newcastle voru 50,7 prósent fylgj-
andi aðild og 49,3 prósent á móti. Þá
lágu fyrir niðurstöður frá Gíbraltar og
Orkneyjum, en þar voru fleiri fylgj-
andi aðild líkt og búist hafði verið við.
Fyrir kosningarnar höfðu sér-
fræðingar spáð því að ef kjörsókn
væri lítil yrði líklegra að aðskilnaðar-
sinnar bæru sigur úr býtum. „Þeir sem
líklegastir eru til að mæta á kjörstað
eru eldri, hvítir kjósendur Íhalds-
flokksins og þeir kjósa helst á móti
aðild að sambandinu,“ sagði Baldur
Þórhallsson stjórnmálafræðingur við
fréttastofu í gær.
Fyrstu tölur höfðu ekki borist þegar
Fréttablaðið fór í prentun og voru
engar útgönguspár gerðar. Endanleg
niðurstaða var hins vegar væntanleg
um klukkan sex í morgun. Skoðana-
kannanir bentu til einkar spennandi
kosninga og höfðu lengi gert.
Blaðamaður Fréttablaðsins í Lund-
únum sagði litla sem enga hátíðar-
stemningu á götum borgarinnar í
gær þrátt fyrir að það væri kjördagur.
Mikið hafi rignt, bæði í Lundúnum og
um allt Suðaustur-Bretland.
Þeir Lundúnabúar sem blaðamað-
ur náði tali af á götum borgarinnar í
gær voru einna helst skelkaðir enda
mikið undir. Ef Bretar hafna aðskiln-
aði er óvíst að annað tækifæri fáist til
þess að kjósa um aðskilnað frá Evr-
ópusambandinu. Það hefur þó einu
sinni verið gert áður en ráðist var í
sambærilega þjóðaratkvæðagreiðslu
árið 1975.
Breska pundið sem og fjármála-
markaðir hafa sveiflast eftir skoð-
anakönnunum síðustu vikur. Betur
gengur og gengið er hærra þegar
Evrópusinnar eru í meirihluta í
könnunum en gengið hefur sveiflast
niður á við þegar aðskilnaðarsinnar
virðast fleiri. Þóra Helgadóttir, sem
situr í fjármálaráði breska þingsins,
sagði allflesta hagfræðinga sammála
um að Brexit yrði slæmt fyrir hag-
kerfið. „Í raun og veru hef ég ekki séð
hagfræðing sem mælir með því að við
förum úr sambandinu,“ sagði Þóra í
gær.
Nigel Farage, formaður Sjálf-
stæðisflokks Bretlands (UKIP), sagði
allt benda til þess að Bretar hefðu
kosið gegn aðskilnaði. „Það lítur út
fyrir að Evrópusinnar vinni með
minnsta mun. Hvorki ég né UKIP
erum þó að fara neitt og flokkurinn
mun halda áfram að styrkjast í fram-
tíðinni,“ sagði Farage í gær. Farage
hefur barist fyrir Brexit í um tvo ára-
tugi. „Hvort sem þið hatið hann eða
elskið hann, þá er þetta dagur Nigels
Farage. Án hans hefði ekki verið hægt
að kjósa um aðskilnað,“ segir í fyrir-
sögn fréttar Telegraph frá því í gær.
Nokkrir Bretar lýstu á samfélags-
miðlum áhyggjum af því að kosn-
ingasvindl væri í uppsiglingu, því
eingöngu hafi verið boðið upp á að
fylla út kjörseðla með blýanti en ekki
penna. Frá þessu greindi The Guardi-
an. Talskona kosningastjórnarinnar
sagði þó ekkert í lögum kveða á um
penna eða blýanta. „Kjósendum er
velkomið að koma með sína eigin
penna,“ sagði hún. thorgnyr@frettabla-
did.is, kristjanabjorg@frettabladid.is
Aðildarfólk yfir í fyrstu tölum
Kosið var um Brexit í gær. Nigel Farage, leiðtogi UKIP, gerði frekar ráð fyrir ósigri. Mikil rigning hafði áhrif á
framkvæmd kosninganna og nokkrir kjósendur lýstu yfir áhyggjum sínum af kosningasvindli.
tesopi fyrir slaginn Hægt var að kjósa á mörgum kjörstöðum í bretlandi í gær. Hér er til að mynda þvottahús í Headington
nærri Oxford nýtt sem kjörstaður. Umsjónarmenn bíða fyrstu kjósenda í gærmorgun. nOrdicpHOtOS/aFp
Það lítur út fyrir að
Evrópusinnar vinni
með minnsta mun. Hvorki
ég né UKIP erum þó að fara
neitt og flokkurinn mun
halda áfram að styrkjast í
framtíðinni.
Nigel Farage, for-
maður Sjálfstæðis-
flokks Bretlands
Þetta var allt
saman skoðað og
algjörlega stokkað upp á
nýtt og sú aðgerð hefur
örugglega haft mjög jákvæð
áhrif varðandi
launamun
kynjanna
Inga Rún Ólafs-
dóttir, sviðsstjóri
kjarasviðs Sambands
íslenskra sveitarfélaga
jApAn Veruleg ógn stafar af Norður-
Kóreumönnum. Þetta er mat Gen
Nakatani, varnarmálaráðherra
Japans. Norður-Kóreumenn skutu í
gær á loft tveimur eldflaugum með
nokkurra klukkustunda millibili og
náði sú seinni að fljúga um 400 kíló-
metra í um þúsund kílómetra hæð.
„Þessar eldflaugar eru veruleg ógn
við öryggi Japans,“ sagði Nakatani á
blaðamannafundi í gær.
Hershöfðingjaráð Suður-Kóreu-
manna sendi út yfirlýsingu í gær
þar sem Suður-Kórea og Bandaríkin
eru sögð starfa að greiningu á seinni
eldflauginni og því hvort skotið geti
talist vel heppnað. Ef það væri raunin
teldust það góðar fréttir fyrir Norður-
Kóreumenn sem hafa klúðrað fjórum
skotum undanfarna mánuði.
Samkvæmt Marshall-stofnun-
inni ættu langdrægustu eldflaugar
Norður-Kóreumanna, Taepodong 2,
að geta flogið um 8.000 kílómetra og
myndu þá ná alla leið til Íslands. – þea
Japanar vara
við Norður–
Kóreumönnum
viðsKipti Stjórnir Sameinaða líf-
eyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs
hafa samþykkt að hefja formlegt
samrunaferli með það að markmiði
að bera sameiningu sjóðanna undir
atkvæði á aukaársfundum í haust.
Stjórnir beggja sjóða staðfestu þetta
í dag í ljósi niðurstöðu könnunar-
viðræðna sem hófust í maí.
Framundan er að staðfesta trygg-
ingafræðilegar forsendur, fara yfir
eignir og eignamat og gera áreiðan-
leikakönnun hjá báðum sjóðum.
Þá þarf að samþætta samþykktir
sjóðanna og fjalla um ýmsa aðra
þætti. – jhh
Sameinaði og
Stafir sameinast
Langdrægustu eldflaugar
Norður-Kóreumanna gætu
náð til Íslands.
2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö s t U d A G U r4 F r é t t i r ∙ F r é t t A B l A ð i ð
2
4
-0
6
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
D
1
-F
B
5
0
1
9
D
1
-F
A
1
4
1
9
D
1
-F
8
D
8
1
9
D
1
-F
7
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K