Fréttablaðið - 24.06.2016, Page 20
„Ég verð að bæta úr þessu sem
fyrst. Ég stefni á að fara allavega
eitthvert norður í sumar en við
ætlum að halda tónleika á Íslandi í
júlí,“ segir Jökull Júlíusson, söngv-
ari og gítarleikari hljómsveitar-
innar Kaleo, þegar í ljós kemur að
hann hefur aldrei komið í Vagla-
skóg. Það sé auðvitað hneisa þar
sem útsetning hljómsveitarinnar á
hinu rómaða lagi Vor í Vaglaskógi
bræddi hvert einasta hjarta lands-
ins sumarið 2013 og má segja að
það hafi markað upphafið að vel-
gengni Kaleo.
Drífurðu ekki hljómsveit-
ina með þér í fellihýsi í skóginn?
„Ætli það verði ekki meiri stemn-
ing fyrir því að tjalda bara,“ segir
hann sposkur.
Eitt og hálft ár er síðan hljóm-
sveitin flutti með manni og mús til
Austin í Texas til að freista gæf-
unnar og það hefur svo sannarlega
tekist. Ný plata hljómsveitarinnar
er að gera allt vitlaust. Rauk upp
í fyrsta sæti í sjö löndum um leið
og hún kom út og beint í 15. sæti á
Billboard-listanum.
Með læknateyMi í Málinu
Velgengninni fylgir álag og það
fékk Jökull sjálfur að reyna á dög-
unum, þegar röddin gaf sig svo
fresta þurfti tónleikum.
„Ég sagði þeim að þetta myndi
gerast ef þau bókuðu mig of þétt,
þetta eru afleiðingarnar. Ég er
með heilu læknateymin í bæði
LA, Nashville og víðar og treysti
þeim fullkomlega. Það voru engir
hnútar á raddböndunum bara ofá-
lag. Ég er allur að koma til og ætti
að vera orðinn flottur fyrir tón-
leikana í Gamla bíói í júlí, hlakka
mikið til þeirra. Það hefði verið
gaman að vera í toppstandi í út-
gáfuvikunni í LA og NY en svona
er þetta. Ég fékk nokkra aukadaga
til að koma heim og hvílast,“ segir
hann. „Við erum nýkomnir heim
og maður er bara að kúpla sig
niður eftir mikla keyrslu,“ segir
Jökull, hann eigi sterkt bakland í
fjölskyldunni heima.
„Ég á þrjár systur, eina eldri
og tvær yngri. Elsta systir mín
gifti sig einmitt nýverið en ég
komst ekki í brúðkaupið þar sem
ég var á miðju tónleikaferða-
lagi. Mér þykir ótrúlega miður að
hafa misst af því, þetta er örugg-
lega það versta sem ég hef gert af
mér,“ segir hann og vill meina að
hann sé yfirleitt góður bróðir og
sonur. Hann hafi verið þægt barn.
„Mamma myndi kannski lýsa mér
sem „ákveðnum ungum manni“,“
segir hann sposkur.
stefndi á fótboltann
Tónlistaráhuginn kviknaði snemma
og var Jökull farinn að æfa sig á
píanó átta ára og leikur á gítar og
píanó í dag ásamt því að syngja.
Hann segist alæta á tónlist en þó
höfði tónlist frá 6., 7. og 8. áratugn-
um sérstaklega til hans. Uppá-
haldshljómsveitirnar séu The
Doors, Bítlarnir svo og Ray Charl-
es. Hann sá sjálfan sig þó ekki
fyrir sér sem tónlistarmann fyrr
en fyrir fáeinum árum.
„Ég hef alltaf verið mikill fót-
boltaáhugamaður og ég held að
mig hafi lengi vel langað til að
verða íþróttamaður. Bæði spilaði
ég þegar ég var yngri og fylgdist
mikið með í sjónvarpi. Það hefur
minnkað eftir að ég flutti út enda
mikill tímamismunur og í raun
sorglega lítill áhugi á fótbolta í
Bandaríkjunum. Ég hef reynt að
komast inn í íþróttamenninguna
hér úti og hef fylgst með NBA og
NFL. Ég fylgist að sjálfsögðu með
EM í fótbolta. Við horfðum á fyrsta
leikinn á bar á Manhattan og misst-
um nánast af fluginu okkar
því við gátum ekki
sleppt seinni hálf-
leik. Ég er gífur-
lega ánægður
og stoltur af
frammistöðu
liðsins í alla
staði.“
Pollró-
legur yfir
Plöt-
unniHvað
þýða þessar
móttökur sem
platan fær fyrir
ykkur?
„Þetta hefur auð-
vitað mjög jákvæð áhrif fyrir
okkur úti og kemur sér mjög vel,
sérstaklega þar sem að „Way Down
We Go“ er á rosalegum skriði í út-
varpi úti einnig. Þetta vinnur því
vel saman. Við erum líka mjög
spenntir fyrir Ameríku- og Evrópu-
túr í haust,“ segir Jökull. Hljóm-
sveitin virðist þó ekki láta vinsæld-
irnar stíga sér til höfuðs, allavega
fer Jökull að hlæja þegar hann er
spurður hvort þeir séu búnir að
„meikaða“.
„Ætli það sé ekki fyrir aðra að
dæma um það. Ég held að við séum
alls ekkert að velta okkur of mikið
upp úr því, hvað sem það þýðir eða
stendur fyrir.“ segir hann en viður-
kennir þó að hlutirnir gangi glimr-
andi vel.
„Við erum auðvitað í skýjunum
yfir móttökunum sem við höfum
fengið. Við erum sífellt að sjá aukn-
ingu á tónleikum og útbreiðslu tón-
listarinnar auk þess sem okkur
hefur verið tekið frábærlega vel í
útvarpi, ekki bara í Bandaríkjun-
um heldur víðar í heiminum. Við
gætum allavega ekki beðið um
meira á stuttum tíma en að sjálf-
sögðu er stefnan bara sett hærra í
framhaldinu,“ segir hann og þakk-
ar árangurinn þrotlausri vinnu.
Hljómsveitarlífið í fyrirheitna
landinu sé ekki eintómt partístand
og stuð.
„Partí og glamúr er vissulega
hluti af þessu og stendur mönnum
til boða. Þetta er aftur á móti líka
mikil vinna og stífur fókus. Það
eru alger forréttindi að tónlist-
in manns nái útbreiðslu og maður
geti unnið við það sem maður elsk-
ar. Það kemur mér kannski mest á
óvart hversu mikið af mismunandi
fólki á öllum aldri tengir við tón-
listina,“ segir Jökull.
forðast „deniM on deniM“
Er kominn Texasbragur á þig?
„Ég á reyndar ekki kúreka-
hatt enn þá. Stígvél á
ég en reyni að forð-
ast „denim on
denim,“ segir
Jökull. „Það
er að sjálf-
sögðu hluti
af þessu að
spá í útlit-
ið, sérstak-
lega þegar við erum að koma svona
mikið fram og erum með stílista
nánast við hvert tilefni,“ segir
hann. „Ég reyni líka að hreyfa mig
nánast daglega en frítíminn er
sorglega lítill og ég má þakka fyrir
ef það er tími til þess.“
Hafa trú á sjálfuM sér
Hvaða ráð áttu handa ungum
krökkum sem eru að berja saman
hljómsveit úti í bílskúr? „Trúið á
sjálf ykkur og það sem þið eruð að
gera. Það er fyrsta en líka mikil-
vægasta skrefið.“
Hvar sérðu sjálfan þig eftir 10
ár? „Vonandi búinn að áorka því
sem ég ætla mér og mögulega að
stofna eða búinn að stofna fjöl-
skyldu.“ heida@365.is
Hljómsveitin á góðri stund í Napa Valley.
„... með aðdáanda í Idaho þar sem við héldum tónleika
Myndin er frá Hangout Fest í Alabama þar sem að Kaleo spilaði í síðasta mánuði.
„Þessi er tekin
á tónleikum
í Colorado
nýverið. Stuttu
seinna þurftum
við að hætta að spila
og rýma svæðið vegna
eldinga.“
Það eru alger forréttindi að tónlistin manns nái útbreiðslu og maður geti unnið við það sem maður elskar. MyNdIr/KAleo
fólk er kynningarblað sem
býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í
blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn
efnis: sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir,
vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447,
Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage,
johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
↣
2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R2 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ l í F S S T í l l
2
4
-0
6
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
D
2
-1
4
0
0
1
9
D
2
-1
2
C
4
1
9
D
2
-1
1
8
8
1
9
D
2
-1
0
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K