Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.06.2016, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 24.06.2016, Qupperneq 20
„Ég verð að bæta úr þessu sem fyrst. Ég stefni á að fara allavega eitthvert norður í sumar en við ætlum að halda tónleika á Íslandi í júlí,“ segir Jökull Júlíusson, söngv- ari og gítarleikari hljómsveitar- innar Kaleo, þegar í ljós kemur að hann hefur aldrei komið í Vagla- skóg. Það sé auðvitað hneisa þar sem útsetning hljómsveitarinnar á hinu rómaða lagi Vor í Vaglaskógi bræddi hvert einasta hjarta lands- ins sumarið 2013 og má segja að það hafi markað upphafið að vel- gengni Kaleo. Drífurðu ekki hljómsveit- ina með þér í fellihýsi í skóginn? „Ætli það verði ekki meiri stemn- ing fyrir því að tjalda bara,“ segir hann sposkur. Eitt og hálft ár er síðan hljóm- sveitin flutti með manni og mús til Austin í Texas til að freista gæf- unnar og það hefur svo sannarlega tekist. Ný plata hljómsveitarinnar er að gera allt vitlaust. Rauk upp í fyrsta sæti í sjö löndum um leið og hún kom út og beint í 15. sæti á Billboard-listanum. Með læknateyMi í Málinu Velgengninni fylgir álag og það fékk Jökull sjálfur að reyna á dög- unum, þegar röddin gaf sig svo fresta þurfti tónleikum. „Ég sagði þeim að þetta myndi gerast ef þau bókuðu mig of þétt, þetta eru afleiðingarnar. Ég er með heilu læknateymin í bæði LA, Nashville og víðar og treysti þeim fullkomlega. Það voru engir hnútar á raddböndunum bara ofá- lag. Ég er allur að koma til og ætti að vera orðinn flottur fyrir tón- leikana í Gamla bíói í júlí, hlakka mikið til þeirra. Það hefði verið gaman að vera í toppstandi í út- gáfuvikunni í LA og NY en svona er þetta. Ég fékk nokkra aukadaga til að koma heim og hvílast,“ segir hann. „Við erum nýkomnir heim og maður er bara að kúpla sig niður eftir mikla keyrslu,“ segir Jökull, hann eigi sterkt bakland í fjölskyldunni heima. „Ég á þrjár systur, eina eldri og tvær yngri. Elsta systir mín gifti sig einmitt nýverið en ég komst ekki í brúðkaupið þar sem ég var á miðju tónleikaferða- lagi. Mér þykir ótrúlega miður að hafa misst af því, þetta er örugg- lega það versta sem ég hef gert af mér,“ segir hann og vill meina að hann sé yfirleitt góður bróðir og sonur. Hann hafi verið þægt barn. „Mamma myndi kannski lýsa mér sem „ákveðnum ungum manni“,“ segir hann sposkur. stefndi á fótboltann Tónlistaráhuginn kviknaði snemma og var Jökull farinn að æfa sig á píanó átta ára og leikur á gítar og píanó í dag ásamt því að syngja. Hann segist alæta á tónlist en þó höfði tónlist frá 6., 7. og 8. áratugn- um sérstaklega til hans. Uppá- haldshljómsveitirnar séu The Doors, Bítlarnir svo og Ray Charl- es. Hann sá sjálfan sig þó ekki fyrir sér sem tónlistarmann fyrr en fyrir fáeinum árum. „Ég hef alltaf verið mikill fót- boltaáhugamaður og ég held að mig hafi lengi vel langað til að verða íþróttamaður. Bæði spilaði ég þegar ég var yngri og fylgdist mikið með í sjónvarpi. Það hefur minnkað eftir að ég flutti út enda mikill tímamismunur og í raun sorglega lítill áhugi á fótbolta í Bandaríkjunum. Ég hef reynt að komast inn í íþróttamenninguna hér úti og hef fylgst með NBA og NFL. Ég fylgist að sjálfsögðu með EM í fótbolta. Við horfðum á fyrsta leikinn á bar á Manhattan og misst- um nánast af fluginu okkar því við gátum ekki sleppt seinni hálf- leik. Ég er gífur- lega ánægður og stoltur af frammistöðu liðsins í alla staði.“ Pollró- legur yfir Plöt- unniHvað þýða þessar móttökur sem platan fær fyrir ykkur? „Þetta hefur auð- vitað mjög jákvæð áhrif fyrir okkur úti og kemur sér mjög vel, sérstaklega þar sem að „Way Down We Go“ er á rosalegum skriði í út- varpi úti einnig. Þetta vinnur því vel saman. Við erum líka mjög spenntir fyrir Ameríku- og Evrópu- túr í haust,“ segir Jökull. Hljóm- sveitin virðist þó ekki láta vinsæld- irnar stíga sér til höfuðs, allavega fer Jökull að hlæja þegar hann er spurður hvort þeir séu búnir að „meikaða“. „Ætli það sé ekki fyrir aðra að dæma um það. Ég held að við séum alls ekkert að velta okkur of mikið upp úr því, hvað sem það þýðir eða stendur fyrir.“ segir hann en viður- kennir þó að hlutirnir gangi glimr- andi vel. „Við erum auðvitað í skýjunum yfir móttökunum sem við höfum fengið. Við erum sífellt að sjá aukn- ingu á tónleikum og útbreiðslu tón- listarinnar auk þess sem okkur hefur verið tekið frábærlega vel í útvarpi, ekki bara í Bandaríkjun- um heldur víðar í heiminum. Við gætum allavega ekki beðið um meira á stuttum tíma en að sjálf- sögðu er stefnan bara sett hærra í framhaldinu,“ segir hann og þakk- ar árangurinn þrotlausri vinnu. Hljómsveitarlífið í fyrirheitna landinu sé ekki eintómt partístand og stuð. „Partí og glamúr er vissulega hluti af þessu og stendur mönnum til boða. Þetta er aftur á móti líka mikil vinna og stífur fókus. Það eru alger forréttindi að tónlist- in manns nái útbreiðslu og maður geti unnið við það sem maður elsk- ar. Það kemur mér kannski mest á óvart hversu mikið af mismunandi fólki á öllum aldri tengir við tón- listina,“ segir Jökull. forðast „deniM on deniM“ Er kominn Texasbragur á þig? „Ég á reyndar ekki kúreka- hatt enn þá. Stígvél á ég en reyni að forð- ast „denim on denim,“ segir Jökull. „Það er að sjálf- sögðu hluti af þessu að spá í útlit- ið, sérstak- lega þegar við erum að koma svona mikið fram og erum með stílista nánast við hvert tilefni,“ segir hann. „Ég reyni líka að hreyfa mig nánast daglega en frítíminn er sorglega lítill og ég má þakka fyrir ef það er tími til þess.“ Hafa trú á sjálfuM sér Hvaða ráð áttu handa ungum krökkum sem eru að berja saman hljómsveit úti í bílskúr? „Trúið á sjálf ykkur og það sem þið eruð að gera. Það er fyrsta en líka mikil- vægasta skrefið.“ Hvar sérðu sjálfan þig eftir 10 ár? „Vonandi búinn að áorka því sem ég ætla mér og mögulega að stofna eða búinn að stofna fjöl- skyldu.“ heida@365.is Hljómsveitin á góðri stund í Napa Valley. „... með aðdáanda í Idaho þar sem við héldum tónleika Myndin er frá Hangout Fest í Alabama þar sem að Kaleo spilaði í síðasta mánuði.  „Þessi er tekin á tónleikum í Colorado nýverið. Stuttu seinna þurftum við að hætta að spila og rýma svæðið vegna eldinga.“  Það eru alger forréttindi að tónlistin manns nái útbreiðslu og maður geti unnið við það sem maður elskar. MyNdIr/KAleo fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 ↣ 2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R2 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ l í F S S T í l l 2 4 -0 6 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 D 2 -1 4 0 0 1 9 D 2 -1 2 C 4 1 9 D 2 -1 1 8 8 1 9 D 2 -1 0 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.