Fréttablaðið - 24.06.2016, Síða 22
Ég hef verið að
semja mjög
háværa tónlist undanfarið
svo þetta verður kær-
komin hvíld fyrir mig, ekki
síður en áheyrendur
Sacha Bernardson
Þeir sem sjá fram á að fara yfir um
af spennu á kosninganótt geta leit-
að skjóls í Listastofunni á Hring-
braut 119 þar sem tónlistarmað-
urinn Sacha Bernard son stendur
fyrir viðburði sem hann kallar
„Music to sleep to“ þar sem hann
hyggst bjóða gestum og gangandi
að leggja sig og jafnvel sofa alla
nóttina við róandi tóna. Sacha er
frá Bayonne í Suðvestur-Frakk-
landi en verður í Reykjavík í sjö
mánuði til að sinna list sinni.
Hann lætur vel af dvöl sinni
hér en lætur truflast af björtu
nóttunum. „Ég sakna stjarn-
anna og tunglsins. Veturinn
er í meira uppáhaldi hjá mér,
þegar allur dagurinn er eins og
ein löng morgun stund og himinn-
inn er á litinn eins og perlumóðir.“
Hann segir loftslagið á heimaslóð-
um hans vera svipað allan ársins
hring. „Ég er ekki vanur árstíðum
og finnst þetta beina samband við
veðrið heillandi. Svo þoli ég ekki
of mikinn hita svo Ísland hentar
mér mjög vel.“ Sacha hefur alltaf
samið tónlist og alltaf tengt hana
því sjónræna. „Ég er líka graf-
ískur hönnuður og finnst gaman
að blanda þessu tvennu saman og
vinn helst með hljóð úr umhverf-
inu og röddina í mér sem ég blanda
saman í tölvu. Fyrir mér er tónlist
samspil milli flytjenda og áhorf-
enda og ég velti mikið fyrir mér
hvernig ég get fengið áheyrendur
til að sýna viðbrögð.“
Tónlist til að sofna út frá eða
Music to fall asleep to er lokakafl-
inn í þriggja daga tónlistarviðburði
sem hófst í gær með fyrirlestri þar
sem Sacha kynnti tónlistarsköp-
un sína og aðferðir. Í kvöld eru
svo tónleikar þar sem hann leikur
með hljómsveitinni The Mermaids
eða Hafmeyjunum en hana skipa
Sunna Friðjónsdóttir, Dagný Lilja
Snorradóttir, Martina Kašparová
og Camilla Fièvre D’Archer. Tón-
leikarnir hefjast klukkan sjö og
verður órafmögnuð tónlist fyrst
á dagskrá en skipt yfir í raftón-
list klukkan níu. Flutt verður tón-
list af væntanlegri plötu Sacha sem
heitir Rockall en áður hefur hann
sent frá sér sex plötur auk þess að
semja tónlist við kvikmyndir og
ýmsa listræna viðburði.
Á laugardagskvöldið lofar
Sacha afslappaðri stemmingu.
Gestum er boðið að hreiðra um sig
í sýningarrýminu þar sem hátölur-
um hefur verið komið fyrir á víð
og dreif. Á hálftíma fresti breyt-
ist tónlistin og þannig langar lista-
manninn að búa til stemmingu
sem er í senn dáleiðandi og heil-
andi. Gestum býðst að blanda sér
í hljóðheiminn með því að leika á
ásláttar hljóðfæri eða spinna með
rödd en allt þarf að sjálfsögðu að
vera í lágstemmdara lagi. „Ég hef
verið að semja mjög háværa tónlist
með miklum og sterkum áslætti
og stórum kórum undanfarið svo
þetta verður kærkomin hvíld fyrir
mig, ekki síður en áheyrendur,“
segir Sacha að lokum.
Viðburðurinn hefst klukkan tíu
annað kvöld og stendur til sex í á
sunnudagsmorgun. Áhugasömum
er bent á að koma með svefnpoka
en dýnur og koddar verða á staðn-
um. brynhildur@365.is
LúLLað við Ljúfa
tóna í Listastofu
Tónlistarmaðurinn Sacha Bernardson býður gestum og gangandi í
rólegt og afslappað náttfatapartí aðfaranótt sunnudags.
Sacha Bernardson frá Suður-Frakklandi býður Íslendingum að slaka á við undirleik
ljúfra tóna enda ekki vanþörf á fyrir átök mánudagsins. Mynd/Anton Brink
Ótrúlega góður og sumarlegur
kjúklingur í satay-sósu beint af
grillinu. Mjög góður réttur með
salati og léttur í maga. Það er auð-
velt að gera sína eigin satay-sósu
eða öllu heldur hnetusósu. Þegar
kjúklingurinn er eldaður má taka
hann af spjótunum og setja í heitt
flatbrauð, líkt og naan-brauð.
Síðan er sósu bætt við, límónu-
safa og góðu salati. Þessi uppskrift
dugar fyrir fjóra.
4 kjúklingabringur
Satay-sósa (hnetusósa)
1 ¼ dl hnetusmjör
2 msk. sítrónusafi
2 msk. hunang
2 msk. sojasósa
¼ tsk. chili-sósa
1 tsk. cumin (ekki kúmen)
1 tsk. þurrkað kóríander
Skerið kjúklingabringurnar í
strimla eftir endilöngu. Leggið tré-
pinna í kalt vatn í 30 mínútur.
Blandið öllu sem á að fara í hnetu-
sósa saman og penslið kjúklinga-
strimlana með sósunni. Geymið
hluta hennar. Grillið kjötið í um það
bil tvær mínútur á hvorri hlið.
Með þessu er hægt að hafa hrís-
grjón eða brauð, hnetusósu og
sterka chili-sósu.
flatbrauð
Það er frábært að setja grillaðan
kjúkling í heitt flatbrauð, líkt og
tortilla-brauð. Einfalt er að gera
slíkt brauð.
200 g hveiti
¼ salt
100 ml volgt vatn
2 msk. olía
Setjið hveiti, olíu og salt í stóra
skál. Bætið vatni saman við smátt
og smátt á meðan deigið er hnoð-
að. Ef deigið er of blautt er meira
hveiti bætt saman við. Látið deig-
ið hvíla í hálftíma áður en því er
skipt niður í litla hluta og flatt út.
Uppskriftin er fjögur stór flat-
brauð. Setjið olíu á pönnu og steik-
ið brauðið þar til það lyftir sér og
brúnast. Um það bil tvær mínútur.
Einnig má steikja brauðið á útigrill-
inu. Gott er að pensla brauðið með
hvítlauksolíu á meðan það er heitt.
KjúKlingur í
hnetusósu
Ljúffengur kjúklingur í hnetusósu.
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið: Mán. - fimmt. kl. 09-18 / Föst. 09-17.
Lokað á laugardögum í sumar.
INNRÉTTINGAR
DANSKAR
Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM,
FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUM OG EININGUM,
GEFA ÞÉR ENDALAUSA MÖGULEIKA Á
AÐ SETJA SAMAN ÞITT EIGIÐ RÝMI.
STERKAR OG GLÆSILEGAR
2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R4 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
2
4
-0
6
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
D
2
-0
0
4
0
1
9
D
1
-F
F
0
4
1
9
D
1
-F
D
C
8
1
9
D
1
-F
C
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K