Fréttablaðið - 24.06.2016, Blaðsíða 24
Fjölskyldupitsa
pitsudeig
2 ½ dl volgt vatn
25 g þurrger
2 tsk. hunang
2 msk. ólífuolía
350-400 g brauðhveiti
Leysið gerið upp í volgu vatni og
það er afar mikilvægt að gerið sé
volgt. Bætið hunangi saman við og
hrærið vel í. Þegar byrjar að freyða
í skálinni er gerið klárt. Blandið olíu
og hveitinu saman við í hrærivél-
arskál. Þið getið auðvitað hnoð-
að deigið í höndunum en mér
finnst langbest að nota hnoðarann
á hrærivélinni, það ferli tekur um
það bil 4-6 mínútur. Deigið er til-
búið þegar það er orðið að kúlu og
klístrast ekki við hrærivélarskálina.
Setjið viskastykki yfir skálina og
leyfið deiginu að hefa sig í klukku-
stund.
tillögur að áleggi:
Hakkaðir tómatar eða
pitsusósa
Rifinn ostur
Ananas
Skinka
Hráskinka
Rjómaostur
Sveppir
Bananar
Salt og pipar
Klettasalat
Skerið hráefnið niður í litla bita, það
fer eftir smekk hvers og eins hvað
fer ofan á pitsuna. Gaman er að
bera áleggið fram í litlum skálum og
leyfa hverjum og einum að setja á
sinn helming.
Bakið pitsuna í 8-10 mínútur við
220°C eða þar til osturinn er gull-
inbrúnn.
Besta skúFFukakan
1 bolli = 2,5 dl
3 bollar hveiti
2 bollar sykur
3 egg
2 bollar Ab-mjólk
1 bolli olía
5-6 msk. kakó
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
2 tsk. vanilludropar
Blandið öllum hráefnum saman og
hrærið í nokkrar mínútur eða þar
til deigið verður slétt og fínt. Hell-
ið deiginu í bökunarform eða ofn-
skúffu. Bakið við 175°C í 20 mín-
útur. Mikilvægt að fylgjast með og
stinga gaffli í kökuna til þess að at-
huga hvort hún sé tilbúin, pass-
ið ykkur á því að baka ekki of lengi.
Kælið kökuna smávegis áður en þið
setjið á hana kremið.
súkkulaðikrem
230 g smjör
500 g flórsykur
150 g súkkulaði, brætt
3 msk. kakó
1 egg
2 tsk. vanilludropar
1-2 msk. uppáhellt kaffi
Þeytið saman smjör og flórsykur
þar til blandan verður létt og ljós,
bræðið súkkulaði og bætið saman
við. Þeytið áfram og bætið hinum
hráefnunum saman við, bragðbætið
með vanillu og ef til vill kaffi. Þegar
kremið er orðið silkimjúkt þá er það
tilbúið. Skreytið kökuna gjarnan með
ferskum berjum og öðru skrauti.
lamBaspjót með
kóríandersósu
600 g lambalundir
Grillspjót
2-3 msk. ólífuolía
2 msk. smátt saxaður
kóríander
2 hvítlauksrif
1 msk. smátt saxaður chili
Leggið grillspjótin í kalt vatn í að
minnsta kosti hálftíma áður en þið
notið þau.
Saxið niður kóríander, hvítlauk og
chili og blandið saman við olíu.
Kryddið til með salti og pipar. Legg-
ið kjötið í marineringuna, best í 2-3
klst.
Þræðið kjötið upp á grillpinna og
grillið eða steikið á pönnu í 3-4 mín-
útur á hvorri hlið.
Berið fram með æðislegri jógúrt-
sósu.
jógúrtsósa með
kóríander
1 dós grískt jógúrt
Handfylli kóríander
½ rauður chili
Safi úr hálfri sítrónu
Salt og pipar
1 hvítlauksrif
Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél
eða maukið með töfrasprota. Gott
er að kæla sósuna í um það bil hálf-
tíma áður en þið berið hana fram.
uppskriFt að Fullkominni helgi
Sjónvarpskokkurinn Eva Laufey Hermannsdóttir og ungu aðstoðarkokkarnir hennar í þáttunum Það er leikur að læra,
sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfruðu fram þrjá frábæra rétti sem gaman væri að gera um helgina.
Fjölskyldupítsan getur verið mjög fjölbreytt.
Girnileg lambaspjót með kóríandersósu.Skúffukakan er góður endapunktur á flottri máltíð.
Matargleði
Evu Laufeyjar
Hermannsdóttur
2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R6 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
2
4
-0
6
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
D
1
-E
C
8
0
1
9
D
1
-E
B
4
4
1
9
D
1
-E
A
0
8
1
9
D
1
-E
8
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K