Fréttablaðið - 24.06.2016, Page 32

Fréttablaðið - 24.06.2016, Page 32
Fótbolti Það var ekki lítill þáttur sem varamennirnir áttu í 2-1 sigri Íslands á Austurríki þegar liðin mættust á þjóðarleikvangi Frakka, Stade de France, á miðvikudags- kvöldið. Íslenska þjóðin sameinaðist í siguröskri á fjórðu mínútu upp- bótartíma leiksins þegar Arnór Ingvi Traustason náði að koma boltanum í netið eftir sendingu Theodórs Elmars Bjarnasonar. Báðir voru varamenn í leiknum, rétt eins og Sverrir Ingi Ingason. Þjálfararnir Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson ákváðu því að stóla á unga og fríska fætur í þessum aðstæðum. Aðrir kostir voru til að mynda reynsluboltarnir Eiður Smári Guðjohnsen og Emil Hallfreðsson sem komu báðir inn á í leiknum gegn Ungverjalandi. Hrikalega stoltir „Við erum hrikalega stoltir af þessum strákum,“ sagði Heimir Hallgríms- son við Fréttablaðið í gær og átti þá við alla leikmenn íslenska landsliðs- hópsins. Hann lofaði hugar far leik- mannanna, sem sást best á þeim þremur sem komu inn á. „Þeir voru „kúl“ og kraftmiklir. Við þurft- um ferska fætur inn á þessum tíma. Svo var sterkt að fá Sverri Inga þarna inn í teiginn þegar Austur ríki var byrjað að dæla boltum þar inn. Hann kom með mikil- væga skalla í burtu. Við erum mjög ánægðir með þá og allan hóp- inn.“ Báðir jafn þreyttir Þreytumerkin voru augljós á íslenska liðinu enda hefur byrjunar lið Íslands verið eins alla keppnina hingað til og svo sem ekki útlit fyrir að það muni endilega breytast fyrir leikinn gegn Englandi í 16-liða úrslitunum á mánudag. „Þeir sem komu inn á í leiknum í gær komu inn með kraft og voru klókir. Ég verð að hrósa öllum leik- mönnunum, þeir vörðust vel allan leikinn og tóku vel á því frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu,“ sagði Lagerbäck í gær. Sóknarmennirnir Jón Daði Böðv- arsson og Kolbeinn Sigþórsson fóru báðir af velli í leiknum. Lagerbäck sagði að Jón Daði hefði farið fyrr af velli til að halda Kolbeini inn á eins lengi og mögulegt er. „Kolbeinn er mjög mikilvægur í að verjast föstum l e i kat r i ð u m því hann getur unnið skallaeinvígin. En þetta var 50-50 ákvörð- un því þeir voru báðir jafn þreyttir,“ sagði Lagerbäck og brosti. Fyrstu mótsleikirnir Það má sjá hér til hliðar hversu góð áhrif vara- mennirnir þrír höfðu á leik íslenska liðsins eftir innkomu þeirra. Þeir voru aðeins búnir að spila í samtals fjórar mínútur og 53 sekúndur áður en það kom að leiknum á Stade de France en þess ber einnig að geta að Arnór Ingvi og Sverrir Ingi voru að spila sína fyrstu mótsleiki. Þeir höfðu aðeins áður komið við sögu í vináttu- landsleikjum. En þeir sýndu að þeir geta vel staðist álagið sem fylgir því að spila á stóra sviðinu og það gæti reynst dýrmætt í leikn- um mikil væga gegn Englandi í Nice á mánu- dag. Í dag 19.05 Haukar - Keflavík Sport 2 19.30 Breiðablik - Valur Sport 22.00 Pepsi-mörkin Sport 19.15 Víking. R. - Víking. Ó. Víkin 19.15 FH - Fylkir Kaplakrikav. 20.00 Breiðablik - Valur Kópavog. 20.00 Þróttur R. - Fjölnir Þróttarav. Búinn að horfa á sigur- markið í lýsingu @Gummi- Ben 20x í dag. Það fram- kallar ennþá bros og nokkur tár. Teitur Örlygsson @teitur11 EM2016 http://www.seeklogo.net Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@365.is Arnór Ingvi Traustason fagnar hér sigurmarki sínu á móti Austurríki sem kom eftir 14 mínútna leik í hans fyrsta leik á Evrópu- móti. Kraftur úr óvæntri átt Skiptingar þjálfara íslenska landsliðsins í sigurleiknum á Austurríki í París á miðvikudagskvöldið gengu fullkomlega upp. Heimir Hallgrímsson segir þá „kúl“ og kraftmikla stráka sem hann sé afar stoltur af. ✿ Varamenn íslenska landsliðsins í sigrinum á Austurríki KoM inn á 71. Mínútu Theódór Elmar Bjarnason LéK í 23:33 mínúTuR4:53 16 sinnum með boltann Vann tæklingar 2|3 3 heppnaðar hreinsanir Heppnaðar sendingar 5|7 Stoðsending fyrir sigurmark mínútur á Em fyrir leikinn Arnór Ingvi Traustason KoM inn á 80. Mínútu LéK í 14:28 mínúTuR0:00 12 sinnum með boltann 2 heppnaðar hreinsanir Heppnaðar sendingar 3|4 Sigurmark mínútur á Em fyrir leikinn Sverrir Ingi Ingason KoM inn á 86. Mínútu 4 sinnum með boltann 3 heppnaðar hreinsanir Fór í 3 skallaeinvígi LéK í 08:03 mínúTuR0:00 mínútur á Em fyrir leikinn FRéTTABLAðIð/SILjA STráKArNIr SpILA Í METz oG GáTU VErIð óHEppNArI Íslenska karlalandsliðið í hand- bolta verður í B-riðli á Heims- meistaramótinu í Frakklandi í janúar en dregið var í riðlana í gær. Íslenska liðið hefði getað verið óheppnara með riðil en hann er engu að síður mjög krefjandi. Ísland er með Spáni, Slóveníu og Makedóníu í riðli en einnig Afríku- þjóðunum Túnis og Angóla. riðill Íslands verður spilaður í Metz sem er borg í Norður-Frakklandi við landamæri Lúxemborgar. Frakkar völdu sér erfiðan riðil og spila ekki í parís heldur í Nantes. Þeir eru með póllandi, rússlandi og Noregi í riðli. Guð- mundur Guðmundsson og lærisveinar hans í danska lands- liðinu eru í riðli með Katar, Svíþjóð og Egyptalandi en þeir spila í parís. Síðasti riðillinn þar sem eru lið eins og Þýskaland, Ungverjaland og Króatía fer síðan fram í rouen. ÍSLENDINGAr Fá AðEINS ÞrJú ÞúSUND MIðA á LEIKINN Það verða miklu fleiri Englend- ingar en Íslendingar á leik Íslands og Englands í sextán liða úrslitum Evrópumótsins í fótbolta í Frakk- landi á mánudaginn. Íslendingar fá aðeins þrjú þúsund miða á leikinn en völlurinn tekur tæplega 36 þúsund manns í sæti. Íslendingar fengu því aðeins átta prósent af miðum í boði. Pepsi-deild karla í fótbolta Stjarnan - íBV 1-0 1-0 Arnar Már Björgvinsson (29.). Stjörnumenn höfðu ekki unnið deildarleik síðan 12. maí og aðeins fengið tvö stig út úr fjórum síðustu leikjum. Fengu þrjú stig en líka tvö rauð spjöld því Rúnar Páll Sig- mundsson var rekinn upp í stúku og Guð- jón Baldvinsson fékk beint rautt spjald. KR - íA 1-2 1-0 Kennie Knak Chopart (53.), 1-1 Garðar Gunnlaugsson, víti (83.), 1-2 Garðar (90.+3). Þetta var fimmta tap KR-liðsins í síðustu sex leikjum í deild og bikar. Fyrsti deildar- sigur Skagamanna síðan 12. maí. Efst FH 17 Fjölnir 16 Breiðablik 15 Stjarnan 14 Víkingur Ó. 14 ÍBV 13 neðst Valur 10 KR 9 Víkingur R. 8 ÍA 7 Þróttur 7 Fylkir 2 2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S t u D A G u R20 S P o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð sport 2 4 -0 6 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 D 2 -1 4 0 0 1 9 D 2 -1 2 C 4 1 9 D 2 -1 1 8 8 1 9 D 2 -1 0 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.