Fréttablaðið - 16.06.2016, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 16.06.2016, Blaðsíða 52
Myndbandið er eiginlega eins og nútímaút-gáfa af Palli var einn í heim-inum, nema nú er Palli fullorðin glamúrkona sem lifir mjög hátt. Við skyggnumst inn í mjög glæsilegt líf manneskju sem utan frá virðist lifa fullkomnu lífi, en undir niðri er hún bara ein og einmana. Hún virðist alltaf vera að bíða eftir einhverjum sem kemur ekki. Við vorum að nálgast þetta út frá því sjónarhorni hvað fólk er dug- legt að láta líf sitt líta miklu betur út en það í alvöru er. En ég vil ekki segja hvernig þetta endar – það er tvist!“ segir Hildur Kristín Stefánsdóttir sem sendir frá sér sitt annað lag og myndband sem sólótónlistarkona, en það er lagið Bumpy road. Hvar er myndbandið tekið upp? „Við fengum lánað ótrúlegt hús í Keflavík sem margir þekkja sem kastalahúsið. Við sáum það bara á Airbnb og urðum alveg heillaðar. Eigendurnir voru svo elskulegir að lána okkur húsið og það kom ótrú- lega vel út.“ Hvaða fólk er með þér í að gera myndbandið? „Ég fékk einvalalið hæfileikaríkra kvenna til að gera myndbandið. Leikstjóri myndbands- ins er Svanhildur Gréta Kristjáns- dóttir og Birta Rán Björgvinsdóttir sá um myndatöku, klippingu og eftirvinnslu. Svo sáu góðar vinkour mínar um förðun, hár og stíliseringu og ég er ótrúlega sátt við útkomuna. Allt myndbandið er unnið af konum og mér finnst skemmtilegt að vekja athygli á því að hið sama var uppi á teningnum í síðasta myndbandi. Eins og tónlistarheimurinn er kvik- myndaiðnaðurinn líka frekar karl- lægur og mér finnst mikilvægt að taka þátt í að breyta því og gefa hæfi- leikaríkum konum fleiri tækifæri.“ Hvernig er svo lagið, er þetta hress smellur eins og I‘ll walk with you eða ertu kannski komin yfir í ballöðurn- ar? „Bumpy road er hress smellur en konum tækifæri Hildur gefur út hressan sumarsmell sem fær örugglega að hljóma yfir nokkur sólböð í sumar. Það má sjá glitta í bolinn sem listakonan Sunna Ben hannaði fyrir Hildi. FréttaBlaðið/Hanna Það er mikill glamúr í gangi í myndbandinu hennar Hildar. Mynd/Birta rán BjörgvinSdóttir Ekki er allt sem sýnist í glyskenndu lífi sumra – þannig má kannski útleggja boð- skapinn í myndbandinu við Bumpy road. Mynd/Birta rán BjörgvinSdóttir Eins og tónlistar- hEimurinn Er kvikmyndaiðnaðurinn líka frEkar karllægur og mér finnst mikilvægt að taka þátt í að brEyta því og gEfa hæfilEikaríkum konum flEiri tækifæri. gefur hæfileikaríkum Söngkonan Hildur gefur út nýtt tónlistarmyndband í dag en hún vakti talsverða athygli með laginu I'll walk with you fyrr á þessu ári. Að myndbandinu koma einungis konur en Hildur segir að það sé liður í því að breyta karllægu landslaginu í tónlistarheiminum. með fallegum og hvetjandi boðskap. Ég samdi lagið sem einhvers konar pepp til mín þegar ég var á erfiðum stað. Nafnið á laginu vísar í holóttan veg sem er samlíking fyrir lífið sjálft. Lífið er holóttur vegur, maður fer alltaf upp og niður, kannski einmitt þegar maður býst ekki við því, en eina leiðin til að halda áfram er að að fara aftur upp. Halldór Eldjárn, sem margir þekkja úr hljómsveitinni Sykur, pródúseraði lagið með mér og það var frábært að vinna með honum, ég held að við höfum klárlega náð því besta fram úr hvort öðru. Svo kom bróðir hans, Úlfur Eldjárn, og spilaði á saxófón sem setti ótrúlega flottan blæ á lagið.“ Hvað er svo fram undan? „Sum- arið verður fullt af skemmtilegum tónleikum hjá mér og ég get ekki beðið eftir að fá að spila lögin mín fyrir sem flesta. I'll walk with you fékk svo frábærar viðtökur að það er ótrúlega gaman að fylgja því eftir. Ég er búin að vera mjög dugleg að vinna í tónlistinni síðasta hálfa árið þannig að ég er komin langleiðina með EP plötu, sem er næsta stóra markmið hjá mér. Ég stefni á að gefa hana út með haustinu, sem undirbúning fyrir Iceland Airwaves og veturinn. Ég ákvað að gera eitthvað meira úr útgáfunni á Bumpy road og frum- sýna í leiðinni nýja línu af Hildar- vörum. Ég fékk góðvinkonu mína Sunnu Ben, myndlistarkonu og DJ, til að hanna fyrir mig myndskreyt- ingu og lét svo prenta stutterma- boli, derhúfur og kaffibolla. Mér fannst mikilvægt að hafa eina vöru sem fólk hefur enga afsökun fyrir að kaupa ekki. Það nota ekkert allir hvíta boli eða derhúfur en það nota allir bolla! Ég er ótrúlega ánægð með útkomuna og er alveg alvar- lega að íhuga að brjóta regluna að listamaður megi ekki ganga í eigin hljómsveitarbolum!“ Á Facebook-síðu Hildar má svo  finna frekari  upplýsingar um Hildar-vörurnar. stefanthor@frettabladid.is Bomberar hafa verið áberandi um nokkurt skeið. Helst svartir þá eða hermannagrænir. Nú er lag að skella sér í liti, karlar og konur. trendið Allir bomberarnir 1 6 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R40 L í F I ð ∙ F R É T T A B L A ð I ð Lífið 1 6 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 C 0 -E E 9 0 1 9 C 0 -E D 5 4 1 9 C 0 -E C 1 8 1 9 C 0 -E A D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.