Fréttablaðið - 16.06.2016, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 16.06.2016, Blaðsíða 14
„Við erum með fjöregg í hönd- unum,“ segir Bjarney Harðardóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþró- unar 66°Norður. Fyrirtækið er níu- tíu ára og hefur þróast með Íslend- ingum og þeim áskorunum sem við sem þjóð höfum tekist á við. „Það má samt segja að við séum níutíu ára gamalt frumkvöðlafyrirtæki,“ bætir hún við því fyrirtækið hefur þurft að aðlaga sig ört með aukinni þátttöku á erlendum markaði með vörur sínar. Helgi Rúnar Óskarsson og Bjarney keyptu, um árið 2012, Sjóklæðagerð- ina. Helgi Rúnar er forstjóri fyrirtæk- isins. Sjóklæðagerðin á vörumerkin 66°Norður og Rammagerðina. Gleymum ekki sjómönnum „Það sem er ávallt í huga mér er að þær ákvarðanir sem við tökum í dag byggi undir að fyrirtækið lifi næstu hundrað árin. Í því samhengi skiptir máli að við vöndum til verka og höldum áfram að fjárfesta í grunn- stoðum fyrirtækisins . Við berum ríka ábyrgð og berum virðingu fyrir sögunni,“ segir Bjarney og minnir á að fyrirtækið framleiði enn sjó- fatnað á íslenska flotann. „Við byggjum á þeirri arfleifð Sjó- klæðagerðarinnar sem var að vernda Íslendinga fyrir erfiðum aðstæðum og gleymum ekki þeim sjómönnum sem fóru til sjós á opnum bátum. Merkið hefur svo þróast með Íslendingum en við höldum fast í kjarnann,“ segir hún. Falsanir ógna Bjarney segir falsanir helst ógna ímynd vörumerkisins. „Það er mikið um falsanir í heiminum, þessi stóru merki, á borð við Moncler, verða fyrir þeim í miklum mæli. Við höfum fengið ágjöf á vörumerkið og þurft að verja peningum í það að verja það. En það er bara veruleiki sem við erum í núna á erlendum markaði,“ segir Bjarney. Fyrirtækið framleiddi allar sínar vörur á Íslandi í 76 ár. Nú er fram- leiðslan nærri öll erlendis, langmest í Evrópu, Lettlandi, en dúnvörur fyrirtækisins eru framleiddar í Kína og eitthvað af ullarvörunum. „Við fluttum alla framleiðsluna út. Efnahagsumhverfið á Íslandi var orðið þungt í vöfum, bankarnir vildu ekki lána. Þá var kostnaður- inn jafnmikill og verð varanna. Við brugðumst við því og fluttum allt til Lettlands, þekkingu, tæki og tól. Erum með reynslumikið fólk frá Íslandi sem stýrir framleiðslunni.“ Framleiða í Kína og Lettlandi Í Lettlandi eru þrjár verksmiðjur í eigu fyrirtækisins og Bjarney segir 90 prósent af vörulínum framleiðsl- unnar verða til þar. „Það skiptir okkur máli að eiga þessar verksmiðj- ur og stýra þeim, það hefur mikið að segja í allri hönnunar-, þróunar- og hugmyndavinnu,“ segir hún. „En alla dúnvöru framleiðum við í Kína, þeir eru með mjög sérhæfðar og góðar verksmiðjur. Við kaupum vottaðan dún frá Þýskalandi sem við flytjum til Kína. Þá flytjum við íslenska ull frá Ístex til Kína og framleiðum úr henni ullarvörur, til dæmis ullarpeysuna margumræddu sem Ragnheiður Elín Árnadóttir afhenti borgarstjóra Chicago í vor.“ Þarf hugarfarsbreytingu Bjarney segir umhugsunarvert hversu mikla gagnrýni peysan fékk á Íslandi. „Þarna vorum við að vinna með Ístex og nota íslenskt hráefni og langaði að gera okkar hönnun á íslenskri peysu úr ull undir vöru- merki 66°Norður í fyrsta skipti. Í mínum huga var verið að gefa borg- arstjóranum gjöf frá einu elsta vöru- merki okkar Íslendinga, vöru sem er hönnuð á Íslandi, úr íslenskri ull. Umræðan er skökk, í Danmörku hefði þetta ekki gerst. Danir eru óhræddir við að framleiða hönnun sína erlendis. Þeir standa með hönnun og hugviti. Enda er sú grein að vaxa um 30 til 40 prósent á ári í útflutningi hjá þeim. Það gerum við oft ekki,“ segir Bjarney og segist halda að það þurfi að verða ákveðin hugarfarsbreyting sem yrði iðnað- inum til framdráttar. „Við eigum mikil tækifæri þarna, erum með stóran hóp af hönnuðum, hand- verksfólki á Íslandi sem er í fremstu röð í heiminum.“ Fela ekki erlenda framleiðslu „Við eigum að fjárfesta í listum, hönnun og hugviti. Við eigum að vinna með styrkleika okkar. Fjórða stoðin á eftir orkunni, fiskinum og ferðaþjónustunni undir okkar sam- félag getur verið hönnun og hand- verk. Danir gætu verið okkar fyrir- mynd, dönsk hönnun er alþjóðlega viðurkennd og eftirsótt. Það er kom- inn markaður fyrir íslenska hönnun og handverk sem hefur aldrei verið áður. Við verðum að sérhæfa okkur í gæðum hönnunar og framleiðslu,“ segir Bjarney. „Við viljum til dæmis ekki fela það að við framleiðum vörur okkar erlendis. Við viljum frekar vera stolt af hönnuninni, gæðunum, hugvitinu og erlendu samstarfsfólki okkar sem vinnur sem eitt lið í framleiðslunni. Við erum íslenskt vörumerki hvort sem vörur okkar eru framleiddar hér heima eða ytra. Við viljum vanda til verka og veljum vandlega okkar samstarfsaðila. Við þurfum að tryggja gæðin og magnið. Hér á Íslandi er nær engin framleiðsla lengur, það er engin fjárfesting í greininni. Verði hún, þá finnst mér að hún eigi að byggjast á sérhæfingu. Einhverju sérstöku, byggt á hugviti. Við keppum ekki við bestu verk- smiðjur heims.“ Vilja skapa spennandi störf Fyrirtækið hefur fjölgað stöðugild- um um 43 prósent á síðustu fjórum árum „ Við viljum skapa spennandi störf á Íslandi, við höfum verið að ráða listamenn, tæknifólk, hönnuði, klæðskera, markaðsfólk og verk- fræðinga svo einhverjir séu nefndir, við erum með fólk á öllum aldri og af alls konar þjóðerni. Við erum með sex konur í framkvæmdastjórn og það sem er kannski óvanalegt er að þrjár þeirra eru undir þrjátíu ára að aldri,“ segir hún frá. Níutíu ára frumkvöðlafyrirtæki Íslendingar ættu að sérhæfa sig í hönnun og hugviti fremur en að keppa í framleiðslu við bestu verksmiðjur heims. Bjarney Harðar- dóttir, markaðsstjóri 66°Norður, segist stolt af erlendri framleiðslu fyrirtækisins. Fyrirtækið þurfi að tryggja bæði gæði og magn. Bjarney Harðardóttir markaðsstjóri í nýrri og glæsilegri verslun fyrirtækisins á Laugavegi. FréttaBLaðið/anton BrinK Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16 Mercedes-Benz Ljúfir gæðabílar – en smá notaðir Kíktu á úrvalið á www.notadir.is www.notadir.is GL 350 4MATIC Árgerð 2012, ekinn 26 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 211 hö. Búnaður: Nálgunarvarar, LED innilýsing, On/Off Road pakki með lágu drifi, 19“ álfelgur, skrautlistar o.fl. Verð 11.990.000 kr. Afb./mán. 101.200 kr.* B 220 CDI Árgerð 2014, ekinn 33 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 170 hö. Búnaður: Leðuráklæði, ljósapakki,hiti í framsætum, 16“álfelgur, bakkmyndavél o.fl. Verð 4.490.000 kr. Afb./mán. 37.500 kr.* E 220 CDI Árgerð 2014, ekinn 12 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 170 hö. Búnaður: LED dagljósabúnaður, Metallic lakk, Artico leður, nálgunarvarar, Avantgarde útfærsla o.fl. Verð 7.650.000 kr. Afb./mán. 64.500 kr.* *Mánaðargreiðsla m.v. 50% útborgun og lán í 84 mánuði. Vextir 9,25%, árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,9–10,98% Viðskipti Umræðan er skökk, í Danmörku hefði þetta ekki gerst. Danir eru óhræddir við að framleiða hönnun sína erlendis. Bjarney Harðardóttir, markaðsstjóri 66°Norður 1 6 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R14 F R é T T I R ∙ F R é T T A B L A ð I ð 1 6 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 0 -D A D 0 1 9 C 0 -D 9 9 4 1 9 C 0 -D 8 5 8 1 9 C 0 -D 7 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.