Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.06.2016, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 16.06.2016, Qupperneq 42
Ég stofnaði hátíðina Reykja-vík Midsummer Music árið 2012, svo hún er að fara fram í fimmta sinn – ótrúlegt hvað tíminn líður,“ segir Víkingur Heiðar Ólafs- son píanóleikari brosandi. „Nú er fólk líka farið að reikna með hátíð- inni og spyrja um hana, svo hún er búin að festa sig í sessi. Hugmyndin er rosalega einföld. Hún er sú að fá íslenska og erlenda topp listamenn og leiða þá saman í einu besta tón- listarhúsi Evrópu á bjartasta árstíma. Svo er ég alltaf að leika mér með þema, í ár er hugmyndin „wande- rer“ eða ferðalangur og allt hverfist um hann. Við förum út í náttúruna, út í heim og út í geim.“ Sumir flytjendurnir sem komnir eru til landsins eiga líka óvenju- legar ferðasögur úr fortíðinni eins og Víkingur Heiðar lýsir. „Rússneski fiðluleikarinn Viktoria Mullova flúði Sovétríkin 1983, skömmu eftir að hafa unnið stærstu fiðlukeppni heims. Hún skildi Stradivari-fiðlu eftir á hótelherbergi í Finnlandi, flúði til Svíþjóðar, kallaði sig Miss Smith og fékk hæli í Bandaríkjunum þar sem henni var í raun boðið beint í partí í Hvíta húsið til Ronalds Reag- an. Svo varð hún bara einn frægasti tónlistarmaður heims og tákn fyrir sigur vestursins gegn austrinu. Mullova kom til Íslands fyrir 30 árum og það er gaman að geta sýnt henni Hörpu og hvernig allt hefur breyst hér. Hún kemur fram á hátíð- artónleikum í Eldborgarsalnum 17. júní, sem bera yfirskriftina Söngvar förusveins, ásamt fleiri snillingum.“ Einn þeirra sem syngja í Eldborg- inni að kvöldi þjóðhátíðardagsins er hinn góðkunni Kristinn Sig- mundsson sem flytur meðal annars verk eftir Schubert og Mahler. „Kristinn hefur aldrei komið fram á hátíðinni minni áður þó það sé kært með okkur bæði í músíkinni og persónulega,“ segir Víkingur Heiðar glaðlega. Vissulega er mikil vinna að koma svona hátíð á koppinn, það viður- kennir tónlistarmaðurinn. „Þetta er rosalegt batterí, miðað við hvað undirbúningsteymið er fámennt, en það er ekkert einsdæmi á Íslandi. Ég er með aðra hátíð úti í Svíþjóð og kringum hana er her manns en hér eru örfáar manneskjur að gera allt af lífi og sál, þar á meðal er konan mín, Halla Oddný Magnúsdóttir. Ég er sjálfur að stafla stólum milli þess sem ég æfi og reyni að gæta þess að allt gangi upp. Venjulega er ég auð- vitað hinum megin við borðið, lista- maður sem mætir þar sem búið er að bóka allt og þarf bara að hugsa um músíkina,“ segir hann og bætir við: „En það er alveg element í mér sem nýtur þessa brjálæðis þó ég gæti ekki hugsað mér að standa í því nema einu sinni á ári.“ Ýmsir þeirra sem koma að utan á hátíðina eru vinir Víkings Heiðars sem hann hefur unnið með úti. „Það eru allir svo uppnumdir yfir Íslandi og Hörpu og öllu hér svo það gefur mér líka orku. Ég er ekki að ýkja þegar ég segi að ég sef svona fjóra og hálfan tíma á nóttu um þessar mundir og þarf alltaf minni og minni svefn, músíkin er svo geggjuð og spenningur listafólksins eykst eftir því sem á líður vikuna. Birtan er líka svo mögnuð. Ég held hátíðina á þessum árstíma til að tryggja að ég sé alltaf á Íslandi um sumarsólstöð- ur og í Hörpu með músíköntunum – það verður ekki betra.“ Dagskrá hátíðarinnar má skoða á rmm.is. Hinn frjálsi förusveinn er í forgrunni hátíðarinnar Reykjavík Midsummer Music, tónlistarhátíðin hans Víkings Heiðars Ólafssonar, hefst í dag og stendur til sunnudags. Þemað er ferðalangur og efnisskráin fer með okkur um heillandi lendur tónlistarinnar. „Halla Oddný er bæði eiginkona mín og aðstoðarkona við undirbúning hátíðarinnar,“ segir Víkingur Heiðar. Hér stilla þau hjónakornin sér upp í gluggum Hörpu. Fréttablaðið/antOn brink Þeir voru að æfa, meistararnir, Víkingur Heiðar og kristinn Sigmunds. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 1 6 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R30 M e n n I n G ∙ F R É T T A B L A ð I ð menning 1 6 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 C 0 -D 0 F 0 1 9 C 0 -C F B 4 1 9 C 0 -C E 7 8 1 9 C 0 -C D 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.