Fréttablaðið - 16.06.2016, Side 16

Fréttablaðið - 16.06.2016, Side 16
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Við í Samfylkingunni viljum leiða stærsta verkefni næsta kjörtímabils sem verður endurreisn heil-brigðisþjónustunnar. Við veljum leið samhjálpar, umhyggju og jöfnuðar í stað samkeppni um sjúklinga. Hrunið og kreppan sem henni fylgdi leiddi óhjá- kvæmilega til niðurskurðar í heilbrigðismálum, en hnignun heilbrigðiskerfisins hófst því miður löngu fyrir hrun. Skortur á fjárfestingum og rekstrarfé blasir við hvert sem litið er. Þótt sjúklingum hafi á sama tíma fjölgað vegna hækkandi aldurs þjóðarinnar, hefur upp- bygging sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva ekki fylgt þeirri þróun undanfarna áratugi. Aftur á móti hefur hlutur sjúklinga í rekstri kerfisins vaxið jafnt og þétt. En sjúklingar eiga ekki að þurfa að taka upp veskið þegar þeir þurfa á læknishjálp að halda, og Íslendingar munu seint sætta sig við lakari og dýrari þjónustu en þekkist hjá nágrannaþjóðum okkar. Þess vegna viljum við í Samfylkingunni að heilbrigðisþjónustan verði í framtíðinni gjaldfrjáls. Svo að heilbrigðisþjónustan verði betri viljum við jafnframt: l Efla heilsugæsluna um allt land l Hefja byggingu nýs Landspítala við Hring- braut l Eyða löngum biðlistum eftir nauðsynlegum að- gerðum hratt og örugg- lega l Uppbyggingu hjúkrunar- heimila fyrir aldraða og langveika þar sem búið er vel að fólki með pers- ónulegri þjónustu l Betra aðgengi að geð- og sálfræðiþjónustu með áherslu á börn og ungt fólk l Og lögfesta notenda- stýrða persónubundna aðstoð Markmiðið er skýrt því öll viljum við betri heilbrigðis- þjónustu, en það skiptir máli hvernig verkefnið verður leyst. Við vitum að með gildi og forgangsröðun Samfylk- ingarinnar – jafnaðarmannaflokks Íslands að leiðarljósi, munum við gera það vel. Leiðin að betri heilbrigðisþjónustu Skortur á fjárfestingum og rekstrarfé blasir við hvert sem litið er. Oddný Harðardóttir formaður Sam- fylkingarinnar Allt sem þú þar ... Gallup, janúar–mars 2016 íbúa á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 12–80 ára lesa Fréttablaðið daglega.* 59,5% Sá öldi myndi fara langt með að fylla sæti Laugardalsvallar tíu sinnum. Innanríkisráðuneytið hyggst gera afar miklar breytingar á lögum um mannanöfn. Manna-nafnanefnd og mannanafnaskrá verða einnig lagðar niður samkvæmt drögum að frum-varpi sem ráðuneytið kynnti í gær. Mark-miðið með núgildandi mannanafnalögum var meðal annars að vinna að „varðveislu íslenska mannanafnaforðans og íslenskra nafnasiða“. Breytingarnar koma ekki á óvart. Allt frá því Blær Bjarkardóttir vann dómsmál árið 2013 þar sem henni var heimilað að heita nafni sínu hefur umræð- an um lagaumhverfi mannanafna verið hávær, þó umræðan sé að sjálfsögðu mun eldri. Héraðsdómur sagði í máli Blævar að rétturinn til nafns félli undir vernd stjórnarskrárákvæðis um friðhelgi einkalífs. Þannig má aðeins takmarka réttinn til nafns með sérstakri lagaheimild ef brýna nauðsyn ber til. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær sagðist Guðrún Kvaran, formaður Íslenskrar málnefndar, hafa áhyggjur af því að sú venja að íslensk börn bæru föður- eða móðurnöfn sín sem kenninöfn myndi leggjast af. Nú þegar væri farið að örla á þessu, heilu fjölskyldurnar tækju sér sama millinafnið og slepptu föðurnafninu, þannig að millinafnið væri í raun orðið eftirnafn. Guðrún er einn ötulasti baráttumaður þjóðar- innar fyrir vernd íslenskrar tungu. Og það er skiljan- legt að breytingar þessar valdi henni og öðrum sem hafa áhyggjur af íslenskunni áhyggjum. Mögulega eru áhyggjurnar réttmætar og ef til vill munu þessar breytingar á nöfnum hafa enn meiri áhrif á íslensk- una en þessi. En þau áhrif eru ásættanlegur fórnarkostnaður vegna þeirrar mannréttindaverndar sem frum- varpið veitir. Réttindum einstaklinga til að velja sér og niðjum sínum nöfn er veittur skýr og afdráttar- laus forgangur fram yfir hagsmuni annarra af því að takmarka það frelsi. Flestar heimildir ríkisvaldsins til afskipta af mannanöfnum eru felldar niður, til samræmis við mannréttindaákvæðin. Með breyttri samfélagsgerð hefur því sjónarmiði vaxið ásmegin að réttur manns til að ráða sjálfur nafni sínu og barna sinna vegi þyngra en hagsmunir samfélagsins af því að takmarka þennan rétt. Nafn hvers manns hefur verið talið einn mikilvægasti þáttur sjálfsmyndar hans. Hingað koma útlendingar sem verða hluti af íslensku samfélagi, eignast börn og Íslendingar fæðast í útlöndum þar sem þeir mega heita það sem þeir vilja. Forsjárhyggja mannanafnalaganna er úrelt í því nútímasamfélagi sem við höfum komið okkur upp. Sé vilji fyrir því, sem líklegt má telja að sé, að varð- veita hefðir íslenskunnar sem snúa að mannanöfn- um munu Íslendingar gera það sjálfir, án hjálpar frá sérfræðingum í nefndum á vegum hins opinbera. Foreldrar íslenskra barna verða hin nýja manna- nafnanefnd. Hvað á barnið að heita? Forsjárhyggja mannanafna- laganna er úrelt í því nútímasam- félagi sem við höfum komið okkur upp. fagnaðarefni Það hefur stundum verið kvartað yfir því að lög og reglugerðir séu of íþyngjandi og eftirlitskerfið á Íslandi sé of stórt. Í einhverjum tilfellum á slík gagnrýni rétt á sér, en í öðrum ekki. Flestum er þó orðið löngu ljóst að lög um mannanöfn og störf manna- nafnanefndar eru barn síns tíma. Þess vegna er fagnaðar- efni að í innanríkisráðuneytinu hafi verið samið frumvarp þar sem helstu ákvæði manna- nafnalaga eru lögð af. Og það er enn mikilvægara að pólitískur stuðningur virðist ríkja um þessi lög. límd við sjónvarpið Yfir hásumarið leggst sam- félagið í dvala og fréttirnar verða minna spennandi, oft með örfáum undantekningum. Þegar Ólafur Ragnar Gríms- son tilkynnti í nýársávarpi að hann gæfi ekki kost á sér aftur í embætti forseta Íslands gerðu einhverjir sér vonir um að nú yrði breyting á. Í hönd færi spennandi kosningabarátta sem gaman yrði að fylgjast með. En allt frá því að Guðni Th. Jóhannesson gaf kost á sér hefur enginn vafi leikið á því að hann ætti kosningu í embættið vísa. Og öll spenna virðist á bak og burt. En guði sé lof fyrir knatt- spyrnulandsliðið, sem heldur okkur flestum límdum við sjón- varpið. jonhakon@frettabladid.is 1 6 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R16 s k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð I ð SKOÐUN 1 6 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 0 -D 5 E 0 1 9 C 0 -D 4 A 4 1 9 C 0 -D 3 6 8 1 9 C 0 -D 2 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.