Fréttablaðið - 16.06.2016, Síða 17
Fimm karlar og fjórar konur bjóðast nú til að gegna embætti forseta Íslands næstu
fjögur ár. Frambjóðendurnir níu
virðast hafa býsna ólíkar hugmynd
ir um hlutverk forsetans. Misræmið
virðist stafa m.a. af því að gildandi
stjórnarskrá frá 1944 kveður ekki
skýrt á um hlutverk og valdsvið
forsetans heldur býður hún upp á
mistúlkanir og er því meingölluð
og mætti nefna marga fleiri galla til
sögunnar.
Málskotsrétturinn
Ólíkar hugmyndir um valdsvið
forsetans komu skýrt fram 2004
þegar forseti Íslands beitti mál
skotsrétti sínum í fyrsta sinn með
því að vísa umdeildum fjölmiðla
lögum í þjóðaratkvæði. Þennan rétt
vissu flestir að forsetinn hefur skv.
26. grein stjórnarskrárinnar þótt
málskotsrétturinn lægi óvirkj
aður fyrstu 60 ár lýðveldistímans.
Lögfræðingar og aðrir stigu ýmsir
fram 2004 líkt og varðhundar fyrir
stjórnmálaflokkana á Alþingi til
að vefengja málskotsrétt forsetans.
Það var þó einmitt til höfuðs
flokkunum á Alþingi að málskots
rétturinn var að gefnu tilefni settur
í stjórnarskrána 1944 að frumkvæði
Sveins Björnssonar síðar forseta
Íslands til að tryggja almannahag
og til að skerpa valdmörk og efla
mótvægi (e. checks and balances).
Nú hefur málskotsréttinum verið
beitt þrisvar. Nýja stjórnarskráin
sem kjósendur samþykktu 2012
kveður skýrt á um málskotsrétt for
setans og einnig til frekara öryggis
um rétt 10% kjósenda til að skjóta
lögum frá Alþingi í þjóðaratkvæði.
Um málskotsréttinn er enginn
ágreiningur meðal frambjóðend
anna níu.
Einn gegn átta
Í ljósi þessarar sögu vekur það
athygli að flestir forsetaframbjóð
endurnir nú ef Sturla Jónsson vöru
bílstjóri er undan skilinn virðast
ekki líta svo á að forseti Íslands
geti lagt fram frumvörp á Alþingi.
Enginn frambjóðandi nema Sturla
hefur fjallað um málið eða lýst
áhuga á því. E.t.v. halda þau eins og
varðhundarnir frá 2004 að forset
inn hafi ekki slíka heimild og þess
vegna hafi henni aldrei verið beitt.
Sé svo fara þau villur vegar. Þetta er
rétt hjá Sturlu. Hér eru rökin.
Forsetinn getur lagt fram
frumvörp
Skoðum málið lið fyrir lið. Að sönnu
eru smíðagallar á gömlu stjórnar
skránni og valda því að stundum
þarf að lesa saman greinar til að
komast að kjarna máls. Einmitt
þessi samlestrarþörf virtist rugla
suma í ríminu 2004 og veitti um leið
vatni á myllu þeirra sem tortryggðu
málskotsréttinn. Greinar Reynis
Axelssonar stærðfræðings í Morgun
blaðinu 2004 tóku öðrum greinum
fremur af tvímæli um málskots
réttinn enda er ekki lengur um hann
deilt. Lagaprófessorarnir Eiríkur
Tómasson og Sigurður Líndal tóku í
sama streng og Reynir.
Í 25. gr. stjórnarskrárinnar
stendur: „Forseti lýðveldisins getur
látið leggja fyrir Alþingi frumvörp til
laga og annarra samþykkta.“ Þetta
getur varla skýrara verið. Sumir
segja: Já, en í 13. grein stendur:
„Forsetinn lætur ráðherra fram
kvæma vald sitt.“ Eðlilegt virðist þó í
samræmi við rök Reynis Axelssonar
varðandi málskotsréttinn að líta svo
á að 13. greinin eigi ekki við hér þar
eð rétturinn til að leggja frumvörp
fyrir Alþingi felur ekki í sér vald.
Eðlileg túlkun 13. greinar er að ráð
herrar með ráðuneytisstarfsmenn á
sínum snærum geti létt undir með
forsetanum með því að sjá um fram
kvæmdaratriði fyrir hann.
Vilji menn túlka 13. greinina svo
bókstaflega að forsetinn geti ekkert
gert nema fyrir atbeina ráðherra
þótt sú túlkun stangist á við grund
vallaratriði stjórnskipunarinnar skv.
stjórnarskránni með málskotsrétti
auk annars, þá sér stjórnarskráin
við því þar eð í 15. grein hennar
segir: „Forsetinn skipar ráðherra
og veitir þeim lausn.“ Sumir virðast
líta svo á að í stjórnskipun Íslands
sé óskráð þingræðisregla, jafnsett
skriflegri stjórnarskrá, og sú regla
þrengi svigrúm forseta m.a. til að
skipa ráðherra eftir eigin höfði þótt
það standi skýrum stöfum í 15.
greininni. Þessi óskráða regla, sé hún
til staðar, er skálkaskjól þeirra sem
hafna öllu aðhaldi að Alþingi og var
m.a. til hennar vísað þegar menn
þrættu fyrir málskotsréttinn 2004.
Nýrri grein, nr. 38, var bætt í
stjórnarskrána 1991 þegar deilda
skipting Alþingis var afnumin en
þar segir: „Rétt til að flytja frum
vörp til laga og tillögur til ályktana
hafa alþingismenn og ráðherrar.“
Þessi réttur nær augljóslega einnig
til utanþingsráðherra. Þar sem
38. grein tryggir rétt ráðherra (og
alþingismanna!) til að flytja frum
vörp til laga, þá hlýtur 25. greinin
að fjalla um eitthvað annað en
38. grein. Með öðrum orðum: 25.
greinin getur ekki verið bundin við
heimild til ráðherra að leggja fram
frumvörp til laga fyrir hönd forseta.
Þess vegna þarf að skilja og túlka 25.
greinina eins og hún er orðuð, þ.e.
sem heimild eða rétt forseta til að
leggja fyrir Alþingi frumvörp til laga.
Já, forsetinn getur lagt fram
frumvörp
Í þessu ljósi sjáum við að forseti
Íslands hefur heimild eða rétt
skv. stjórnarskránni frá 1944 til
að leggja frumvörp fyrir Alþingi á
eigin spýtur. Kjósi forsetinn eigi
að síður að leita eftir atbeina ráð
herra og takist honum ekki að fá
sitjandi ráðherra til að flytja fyrir
sig frumvarp skv. 38. grein, þá getur
hann einfaldlega skipað nýjan
ráðherra skv. 15. grein til að flytja
frumvarpið. Lýsi þingið svo sem
lög leyfa (en ekki stjórnarskráin,
ekki enn) vantrausti á nýskipaðan
ráðherra við slíkar kringumstæður
til að aftra honum frá að leggja fram
frumvarp forsetans, brýtur þingið
gegn stjórnarskránni, þ.e. þeirri
grein hennar, 25. grein, sem veitir
forsetanum heimild til að leggja
frumvörp fyrir Alþingi.
Forseta Íslands er því heimilt skv.
gildandi stjórnarskrá að leggja m.a.
nýju stjórnarskrána sem kjós
endur samþykktu með tveim þriðju
hlutum atkvæða í þjóðaratkvæða
greiðslunni 2012 fyrir Alþingi, t.d.
að loknum þingkosningum í haust
verði Alþingi sjálft ekki fyrra til.
Forsetinn og stjórnarskráin
Um málskots-
réttinn er
enginn ágrein-
ingur meðal frambjóðend-
anna níu.
Sundlaug Kópavogs er ein besta laug höfuðborgarsvæðisins. Hún er 50 metra löng, undir
beru og frísku lofti, aðstaða til
fyrirmyndar og starfsfólk greið
vikið og viðmótsþýtt. Undanfarin
ár hefur viðskiptavinum staðið til
boða árskort á hagstæðu verði sem
innifelur aðgang að lauginni og
líkamsrækt í kjallara laugarinnar.
Þá aðstöðu alla hef ég og hundruð
annarra laugargesta nýtt til ánægju
og heilsubótar þar til 31. maí.
Samkvæmt tilkynningu í anddyri
laugarinnar hefur samningi við Gym
ehf., sem sá um líkamsræktarað
stöðu Sundlaugar Kópavogs, verið
rift og þeim gert að fjarlægja öll tæki
og tól án tafar. Handhöfum árskorta
Sundhallar Kópavogs er boðið að
fara í svokallað Sporthús, annars
staðar í Kópavogi, til líkamsræktar
og þar ku ekki vera nein sundlaug.
Í samræðum við starfsfólk kom
fram að það sé einnig alls óvíst að
korthafar geti áfram fengið aðgang
að sundlauginni. Það sem eftir lifir
gildistíma útgefinna korta er því í
raun tapað fé korthafa.
Það gerast kaup á eyrum landsins
alla daga árið um kring og ekkert
við það að athuga. Stundum þarf
að endurnýja húsnæði og sinna við
haldi og það er heldur ekkert við það
að athuga. Það sem er athugavert við
þessi eyrarviðskipti öll er að laugar
gestir með gild árskort sitja eftir með
skarðan hlut. Við erum rekin upp úr
eins og eitthvað hafi fundist á floti í
lauginni.
Mitt árskort gildir til september
loka 2016. Nú „býðst“ mér að fara í
Sporthúsið í hinum enda Kópavogs
til líkamsræktar og hef enga mögu
leika á laugarferð. Ég set „býðst“
innan gæsalappa því í raun eru þetta
afarkostir, taktu þennan kost eða
tapaðu peningum þínum ella.
Þetta er ekki hvorki Sundlaug
Kópavogs né Gym ehf til sóma. Sem
tryggur og ánægður viðskiptavinur
Sundlaugar Kópavogs fram að þessu
geri ég kröfu um að Sundlaug Kópa
vogs bjóði korthöfum að velja einn
eftirfarandi valkosta:
l Að fá andvirði eftirstandandi gild
istíma útgefinna árskorta endur
greitt.
l Að eftirstandandi gildistími árs
korts gangi upp í nýtt árskort að
laug og líkamsrækt þegar líkams
ræktaraðstaðan opnar í haust
(með nýjum rekstraraðila).
l Að andvirði eftirstandandi gildis
tíma árskorts gangi upp í árskort
að lauginni.
Að lokum skora ég á forstöðu
menn Sundlaugar Kópavogs að falla
ekki í þá gryfju að vísa allri ábyrgð
á „undirverktaka“, ég keypti mitt
árs kort af Sundlaug Kópavogs og
stunda mína líkamsrækt í Sundlaug
Kópavogs og mæti í Sundlaug Kópa
vogs á morgnana. Því vil ég að Sund
laug Kópavogs leysi þetta mál í sátt
við trygga viðskiptavini sína. Og til
marks um hvað mér er hlýtt til Sund
laugar Kópavogs kemur heiti hennar
alls 13 sinnum fyrir í þessari grein!
Það kann að vera gott að búa í
Kópavogi en að óbreyttu er vont að
eiga viðskipti í Kópavogi, sérstak
lega ef maður skiptir við Sundlaug
Kópavogs.
Er kúkur í Sundlaug
Kópavogs?
Lárus Jón
Guðmundsson
sundlaugargestur
Það sem eftir lifir gildistíma
útgefinna korta er því í raun
tapað fé korthafa.
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
Final_Wrangler_SS16_CLP_700x1000mm_10mmbleed.indd 1 10/03/16 15:03
Wrangler er kominn aftur í Kringluna
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F i M M T u d a g u R 1 6 . j ú n Í 2 0 1 6
1
6
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
C
0
-E
4
B
0
1
9
C
0
-E
3
7
4
1
9
C
0
-E
2
3
8
1
9
C
0
-E
0
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K