Fréttablaðið - 16.06.2016, Page 14
„Við erum með fjöregg í hönd-
unum,“ segir Bjarney Harðardóttir,
framkvæmdastjóri viðskiptaþró-
unar 66°Norður. Fyrirtækið er níu-
tíu ára og hefur þróast með Íslend-
ingum og þeim áskorunum sem við
sem þjóð höfum tekist á við. „Það
má samt segja að við séum níutíu
ára gamalt frumkvöðlafyrirtæki,“
bætir hún við því fyrirtækið hefur
þurft að aðlaga sig ört með aukinni
þátttöku á erlendum markaði með
vörur sínar.
Helgi Rúnar Óskarsson og Bjarney
keyptu, um árið 2012, Sjóklæðagerð-
ina. Helgi Rúnar er forstjóri fyrirtæk-
isins. Sjóklæðagerðin á vörumerkin
66°Norður og Rammagerðina.
Gleymum ekki sjómönnum
„Það sem er ávallt í huga mér er að
þær ákvarðanir sem við tökum í dag
byggi undir að fyrirtækið lifi næstu
hundrað árin. Í því samhengi skiptir
máli að við vöndum til verka og
höldum áfram að fjárfesta í grunn-
stoðum fyrirtækisins . Við berum
ríka ábyrgð og berum virðingu fyrir
sögunni,“ segir Bjarney og minnir
á að fyrirtækið framleiði enn sjó-
fatnað á íslenska flotann.
„Við byggjum á þeirri arfleifð Sjó-
klæðagerðarinnar sem var að vernda
Íslendinga fyrir erfiðum aðstæðum
og gleymum ekki þeim sjómönnum
sem fóru til sjós á opnum bátum.
Merkið hefur svo þróast með
Íslendingum en við höldum fast í
kjarnann,“ segir hún.
Falsanir ógna
Bjarney segir falsanir helst ógna
ímynd vörumerkisins. „Það er mikið
um falsanir í heiminum, þessi stóru
merki, á borð við Moncler, verða
fyrir þeim í miklum mæli. Við
höfum fengið ágjöf á vörumerkið
og þurft að verja peningum í það að
verja það. En það er bara veruleiki
sem við erum í núna á erlendum
markaði,“ segir Bjarney.
Fyrirtækið framleiddi allar sínar
vörur á Íslandi í 76 ár. Nú er fram-
leiðslan nærri öll erlendis, langmest
í Evrópu, Lettlandi, en dúnvörur
fyrirtækisins eru framleiddar í Kína
og eitthvað af ullarvörunum.
„Við fluttum alla framleiðsluna
út. Efnahagsumhverfið á Íslandi
var orðið þungt í vöfum, bankarnir
vildu ekki lána. Þá var kostnaður-
inn jafnmikill og verð varanna. Við
brugðumst við því og fluttum allt
til Lettlands, þekkingu, tæki og tól.
Erum með reynslumikið fólk frá
Íslandi sem stýrir framleiðslunni.“
Framleiða í Kína og Lettlandi
Í Lettlandi eru þrjár verksmiðjur í
eigu fyrirtækisins og Bjarney segir
90 prósent af vörulínum framleiðsl-
unnar verða til þar. „Það skiptir
okkur máli að eiga þessar verksmiðj-
ur og stýra þeim, það hefur mikið að
segja í allri hönnunar-, þróunar- og
hugmyndavinnu,“ segir hún.
„En alla dúnvöru framleiðum við
í Kína, þeir eru með mjög sérhæfðar
og góðar verksmiðjur. Við kaupum
vottaðan dún frá Þýskalandi sem
við flytjum til Kína. Þá flytjum við
íslenska ull frá Ístex til Kína og
framleiðum úr henni ullarvörur, til
dæmis ullarpeysuna margumræddu
sem Ragnheiður Elín Árnadóttir
afhenti borgarstjóra Chicago í vor.“
Þarf hugarfarsbreytingu
Bjarney segir umhugsunarvert
hversu mikla gagnrýni peysan fékk
á Íslandi. „Þarna vorum við að vinna
með Ístex og nota íslenskt hráefni
og langaði að gera okkar hönnun
á íslenskri peysu úr ull undir vöru-
merki 66°Norður í fyrsta skipti. Í
mínum huga var verið að gefa borg-
arstjóranum gjöf frá einu elsta vöru-
merki okkar Íslendinga, vöru sem er
hönnuð á Íslandi, úr íslenskri ull.
Umræðan er skökk, í Danmörku
hefði þetta ekki gerst. Danir eru
óhræddir við að framleiða hönnun
sína erlendis. Þeir standa með
hönnun og hugviti. Enda er sú grein
að vaxa um 30 til 40 prósent á ári
í útflutningi hjá þeim. Það gerum
við oft ekki,“ segir Bjarney og segist
halda að það þurfi að verða ákveðin
hugarfarsbreyting sem yrði iðnað-
inum til framdráttar. „Við eigum
mikil tækifæri þarna, erum með
stóran hóp af hönnuðum, hand-
verksfólki á Íslandi sem er í fremstu
röð í heiminum.“
Fela ekki erlenda framleiðslu
„Við eigum að fjárfesta í listum,
hönnun og hugviti. Við eigum að
vinna með styrkleika okkar. Fjórða
stoðin á eftir orkunni, fiskinum og
ferðaþjónustunni undir okkar sam-
félag getur verið hönnun og hand-
verk. Danir gætu verið okkar fyrir-
mynd, dönsk hönnun er alþjóðlega
viðurkennd og eftirsótt. Það er kom-
inn markaður fyrir íslenska hönnun
og handverk sem hefur aldrei verið
áður. Við verðum að sérhæfa okkur
í gæðum hönnunar og framleiðslu,“
segir Bjarney.
„Við viljum til dæmis ekki fela
það að við framleiðum vörur okkar
erlendis. Við viljum frekar vera stolt
af hönnuninni, gæðunum, hugvitinu
og erlendu samstarfsfólki okkar sem
vinnur sem eitt lið í framleiðslunni.
Við erum íslenskt vörumerki hvort
sem vörur okkar eru framleiddar
hér heima eða ytra. Við viljum
vanda til verka og veljum vandlega
okkar samstarfsaðila. Við þurfum
að tryggja gæðin og magnið. Hér
á Íslandi er nær engin framleiðsla
lengur, það er engin fjárfesting í
greininni. Verði hún, þá finnst mér
að hún eigi að byggjast á sérhæfingu.
Einhverju sérstöku, byggt á hugviti.
Við keppum ekki við bestu verk-
smiðjur heims.“
Vilja skapa spennandi störf
Fyrirtækið hefur fjölgað stöðugild-
um um 43 prósent á síðustu fjórum
árum „ Við viljum skapa spennandi
störf á Íslandi, við höfum verið að
ráða listamenn, tæknifólk, hönnuði,
klæðskera, markaðsfólk og verk-
fræðinga svo einhverjir séu nefndir,
við erum með fólk á öllum aldri og
af alls konar þjóðerni. Við erum með
sex konur í framkvæmdastjórn og
það sem er kannski óvanalegt er að
þrjár þeirra eru undir þrjátíu ára að
aldri,“ segir hún frá.
Níutíu ára frumkvöðlafyrirtæki
Íslendingar ættu að sérhæfa sig í hönnun og hugviti fremur en að keppa í framleiðslu við bestu verksmiðjur heims. Bjarney Harðar-
dóttir, markaðsstjóri 66°Norður, segist stolt af erlendri framleiðslu fyrirtækisins. Fyrirtækið þurfi að tryggja bæði gæði og magn.
Bjarney Harðardóttir markaðsstjóri í nýrri og glæsilegri verslun fyrirtækisins á Laugavegi. FréttaBLaðið/anton BrinK
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 •
Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16
Mercedes-Benz
Ljúfir gæðabílar – en smá notaðir
Kíktu á úrvalið á www.notadir.is
www.notadir.is
GL 350 4MATIC
Árgerð 2012, ekinn 26 þús.
km, sjálfskiptur, dísil,
211 hö.
Búnaður:
Nálgunarvarar, LED
innilýsing, On/Off Road
pakki með lágu drifi, 19“
álfelgur, skrautlistar o.fl.
Verð 11.990.000 kr.
Afb./mán. 101.200 kr.*
B 220 CDI
Árgerð 2014, ekinn 33 þús.
km, sjálfskiptur, dísil,
170 hö.
Búnaður:
Leðuráklæði, ljósapakki,hiti
í framsætum, 16“álfelgur,
bakkmyndavél o.fl.
Verð 4.490.000 kr.
Afb./mán. 37.500 kr.*
E 220 CDI
Árgerð 2014, ekinn 12 þús.
km, sjálfskiptur, dísil,
170 hö.
Búnaður:
LED dagljósabúnaður,
Metallic lakk, Artico leður,
nálgunarvarar, Avantgarde
útfærsla o.fl.
Verð 7.650.000 kr.
Afb./mán. 64.500 kr.*
*Mánaðargreiðsla m.v. 50% útborgun og lán í 84 mánuði. Vextir 9,25%, árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,9–10,98%
Viðskipti
Umræðan er skökk,
í Danmörku hefði
þetta ekki gerst. Danir eru
óhræddir við að framleiða
hönnun sína erlendis.
Bjarney Harðardóttir,
markaðsstjóri 66°Norður
1 6 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R14 F R é T T I R ∙ F R é T T A B L A ð I ð
1
6
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
C
0
-D
A
D
0
1
9
C
0
-D
9
9
4
1
9
C
0
-D
8
5
8
1
9
C
0
-D
7
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K