Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.12.2016, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 12.12.2016, Qupperneq 4
Hlíðasmára 8 | Skipholti 70 | Spönginni 13 Sími 554 7200 | Það eru girnileg jól framundan í Hafinu Stútfullar búðir af stórum hátíðarhumri. Heimalagaður reyktur og grafinn lax, sósur og ómótstæðileg humarsúpa. Opnunartími yfir hátíðarnar: Alla virka daga frá 10-18:30 Aðfangadag frá 09-12 Gamlársdag frá 10-14 2016 Landbúnaður Síðustu 20 mánuði hafa rúmlega 4.400 tonn af lamba- kjöti verið flutt úr landi. Meðalverð allrar þeirrar framleiðslu er um 742 krónur kílóið. Verð á erlendum mörkuðum hefur hrunið síðustu misseri vegna erfiðra ytri skilyrða, svo sem gengisþróunar og lokunar markaða. Þegar útflutningstölurnar eru skoðaðar nánar hjá Hagstofunni kemur í ljós að stærsti einstaki vöru- flokkurinn eru frystir heilir og hálfir lambaskrokkar. Um það bil 1.250 tonn hafa farið utan á þessu tíma- bili frá janúar 2015 til loka október 2016. Meðalverðið á þeim er um 834 krónur á hvert kíló. Augljóst er að borgað er með útflutningnum. Um 220 tonn af frystum lamba- lærum og lærissneiðum hafa einn- ig verið flutt út á þessu tímabili þar sem 880 krónur fást fyrir hvert kíló. Um 90 tonn hafa farið af ferskum lambalærum en þar fást um þúsund krónur fyrir hvert kíló enda mikil gæðavara. Ágúst Andrésson, formaður Landssamtaka sláturleyfishafa, segir verð á erlendum mörkuðum hafa hrunið vegna styrkingar krónunnar og lokunar markaða. Nú sé staðan sú í Noregi, sem hefur verið að taka um 600 tonn árlega af lambakjöti, að umframbirgðir eru á markaði af lambakjöti. Því hefur verðið til Noregs lækkað mikið. Ekki sé búið að klára að semja um þau 600 tonn sem fari þangað úr þessari sláturtíð eins og tíðkast hefur undanfarin ár. „Staðan eins og hún er núna er nokkuð erfið en fyrst og fremst er styrking krónunnar að gera okkur mjög erfitt fyrir.“ Stórri afurðastöð hefur verið boðið verð í lambakjöt til útflutn- ings af haustslátrun 2016. Í útboðs- gögnunum kemur í ljós slæm staða útflutnings á lambakjöti. Skrokkar í heilu sem fara til Noregs geta farið á um 623 krónur hvert kíló. Tilboðs- verð á lambalærum til Bretlands er um 635 krónur en 480 krónur fyrir framparta. Heilir hryggir eru sendir til Spánar á 720 krónur hvert kíló svo dæmi séu tekin. Sauðfjárbændur fá greiddar um 550 krónur fyrir hvert kíló afurða sem þeir leggja inn til slátrunar. Að auki fá margir sauðfjárbændur greiðslur frá hinu opinbera. Svavar Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka sauðfjár- bænda, vildi ekki tjá sig um málið nema fá að sjá fyrirfram umfjöllun Fréttablaðsins í heild um málið. sveinn@frettabladid.is Strembin staða fyrir útflutning lambakjöts Frá 1. janúar 2015 hafa þúsundir tonna af lambakjöti verið flutt til útlanda. Meðalverð er um 740 krónur á hvert kíló. Dæmi er um að lambalæri fari á rúmar 600 krónur á hvert kíló. Sauðfjárbændur fá 550 krónur fyrir hvert kíló afurða. Um 90 tonn hafa farið utan af ferskum lambalærum en þar fást um þúsund krónur fyrir hvert kíló enda mikil gæðavara. Meðalverð á lambakjöti sem ferðast yfir hafið er 742 krónur á hvert kíló. Fréttablaðið/SteFán Staðan eins og hún er núna er nokkuð erfið en fyrst og fremst er styrking krónunnar að gera okkur mjög erfitt fyrir Ágúst Andrésson, formaður Landssam- taka sláturleyfishafa bandaríkin Donald Trump, verð- andi forseti Bandaríkjanna, hafnar því mati Leyniþjónustu Banda- ríkjanna (CIA) að rússneskir tölvu- þrjótar hafi reynt að hafa áhrif á kosningarnar, honum í hag. Þetta kom fram í viðtali hans við Chris Wallace á sjónvarpsstöðinni Fox News í gær. Þá sagði hann einnig að Demó- kratar væru að reyna að gera sem mest úr málinu vegna þess að þeir skömmuðust sín fyrir stórt tap í kosningunum. „Mér finnst þetta fáránlegt. Ég held að þetta sé enn ein afsökunin. Ég trúi þessu ekki,“ sagði forsetinn verðandi í viðtalinu. CIA tilkynnti fjölmiðlum um mat sitt á föstudaginn en rússnesk yfir- völd hafa endurtekið hafnað ásök- unum Bandaríkjamanna. Trump viðurkenndi að það væri mögulegt að Rússar hafi staðið að baki tölvuárásum en bætti þó við: „Þeir hafa ekki hugmynd um hvort þetta séu Rússar, Kínverjar eða ein- hver sem situr á rúminu heima hjá sér.“ Þá tjáði Trump sig einnig um olíu- jöfurinn Rex Tillerson, sem talið er að verði utanríkisráðherra hans. „Hann er leikmaður í heimsklassa,“ sagði Trump um Tillerson, hinn 64 ára forstjóra ExxonMobil. Enn fremur tjáði hann sig um þá umdeildu ákvörðun að taka við sím- tali frá Tsai Ing-wen, forseta Taívans. Bandaríkin hafa til þessa fylgt stefnu um eitt og sameinað Kína en Taívan, sem opinberlega heitir Lýðveldið Kína, lítur á sig sem sjálfstætt ríki. Sagði Trump að hann myndi ekki fylgja sömu stefnu og forverar sínir nema Kínverjar samþykktu breyt- ingar á viðskiptum milli ríkjanna. - þea Trump segir afsakanir Demókrata neyðarlegar Þeir hafa ekki hugmynd um hvort þetta séu Rússar, Kínverjar eða einhver sem situr á rúminu heima hjá sér Donald trump, verðandi forseti bandaríkjanna. norDicphotoS/Getty StjórnmáL Ögmundur Jónasson, fyrrverandi innanríkisráðherra, tjáði sig um samskipti sín við alríkislögreglu Bandaríkjanna FBI sumarið 2011 þegar hann gegndi embætti innanríkisráðherra í við- tali við miðilinn Koitokos seint í síðustu viku. Í viðtalinu kemur fram að Ögmundur hafi vísað fulltrúum FBI úr landi og hafnað beiðni þeirra um að starfa hér á landi í tengslum við rannsókn þeirra á Wikileaks. Upplýsingar um samskipti Ögmundar við FBI hafa áður komið upp á yfirborðið, til að mynda árið 2013 þegar Kristinn Hrafnsson, tals- maður Wikileaks greindi frá þeim. Viðtalið hefur þó vakið gríðarlega athygli og meðal annars verið fjallað um ummæli Ögmundar í Daily Mail og Russia Today. Fréttablaðið hafði samband við bandarísku alríkislögregluna og Hvíta húsið í gær með litlum árangri. Óskað var eftir því að frá- sögn Ögmundar yrði staðfest sem og hvort viðbrögð af hálfu banda- rískra stjórnvalda við synjun innan- ríkisráðherra hefðu verið einhver. Boðað var af hálfu starfsmanns FBI að haft yrði samband á ný vegna málsins en þegar Fréttablaðið fór í prentun höfðu engin svör borist. - snæ Engin svör frá FBI Ögmundur Jónas- son, fyrrverandi innanríkisráðherra 1 2 . d e S e m b e r 2 0 1 6 m á n u d a G u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 1 2 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B A 2 -A 0 A 0 1 B A 2 -9 F 6 4 1 B A 2 -9 E 2 8 1 B A 2 -9 C E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.