Víkurfréttir - 30.06.1983, Qupperneq 12
Fimmtudagur 30. júní 1983
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Hafnargötu 32, II. hæð. - Simi 1717.
SPARISJÓÐURINN
Keflavík
Sími 2800
NJarövík
Sími 3800
Garöl
Sími 7100
en hér lá við árekstri, þar sem billinn til hægri
fór ekki rétt að.
Hagkaup opna á morgun
Á morgun föstudag mun
Hagkaup opna hinn nýja
stórmarkað sinn á Fitjum og
um leiö verður á Hagkaups-
svæðinu opnuð bensínaf-
greiösla á vegum Skeljungs
grillstaður í benzínaf-
greiðsluhúsinu á vegum
Tomma-borgara.
Verzlu narstjóri hjá
Hagkaup er Gylfi Ármanns-
son, umsjónarmaöur með
benzinafgreiðslunni verður
Jóhannes Hleiðar Snorra-
son og Tomma-borgarar
veröa í umsjón Jóhannesar
Sigurðssonar. Sennilega er
þaö þó Hagkaup sem fólk
hugsar fyrst og fremst um
og því tókum við Gylfa tali'
í byrjun vikunnar.
Hann sagði að vörumark-
aður sá sem Hagkaup yröi
með hér, byði upp á alla þá
þjónustu sem fyrirtækiö
heföi nú í Skeifunni í
Reykjavík, þó þessi staður
væri minni í sniöur,
vöruverð hér yrði t.d.
hagkvæmara en þar innfrá
og þar af leiöandi mun hag-
kvæmara en boðið væri upp
á i öðrum stórmörkuöum
hérna syðra.
Ýmis þau vandamál sem
hinir markaðarnir urðu aö
ægsla í upphafi, hafa þegar
Innbrotstilraun
í frystihús
Óla Lár hf.
Tilraun til innbrots var
framin í Hraöfrystihús Ólafs
Lárussonar viö Hafnargötu
og sást til manns á ferli þar
við norðanvert húsið um
fimmleytið aðfaranótt
miðvikudags í síöustu viku.
Var maðurinn á bak og burt
þegar lögreglan kom að.
veriö leystir hjá Hagkaup,
t.d. væri alveg sama eftir
hvaða vöru væri leitað og f
hvaða deild væri, starfsfólk
staöarins myndi vísa
viðski ptavin un u m að
vörunni umsvifalaust. Enda
starfa tæplega 40 manns við
hin ýmsu störf hjá
fyrirtækinu.
Gylfi Ármannsson, verzlunarstjóri i Hagkaupum
Vörumarkaöur Hagkaups
verður opinn frá kl. 10 til kl.
19 mánudaga til fimmtu-
daga, föstudaga frá kl. 10 -
20, og laugardaga frá kl. 10-
16 og veröur fullt starfslið
að störfum ávallt þegar
verslunin er opin.
Varðandi umhverfi
fyrirtækisins þá veröur
gengið frá því að fullu fyrir
opnun, þ.e. bílastæði
máluð, lagðar túnþökur á-
það sem þarf og sáð í
annað, þannig að engin
ummerki verða eftir umrót í
nágrenninu. Og að lokum
sagði Gylfi að miklar kröfur
yrðu gerðar til starfsfólks
um að sýna góða þjónustu
við viðskiptavinina, en
kröfur fyrirtækisins ná
lengra t.d. verður ekki leyft
að hengja neinar auglý-
singar á giuggana eöa
annars staðar, ekki verður
leyfð nein blaðadreyfing
eöa sala og fleira í þeim dúr.
-epj.
Varnarliðsþyrla nauðlenti
Á hádegi miðvikudagsins
í síöustu viku nauðlenti
þyrla frá Varnarliöinu um 50
metra ofan við þjóöveginn
út í Garð, skammt frá fyrstu
húsunum. Slys urðu ekki á
mönnum né tjón á þyrlunni.
Mik Magnússon blaða-
fulltrúi Varnarliðsins sagði í
viðtali við blaðið að
ástæðan fyrir þessari nauð-
lendingu hafi verið aö
aövörunarljós hefði komið í
mælaboröið hjá flugstjóra
þyrlunnar sem var í æfinga-
flugi. Gaf Ijósið til kynna
bilun i girkassa við aftur-
hreyfil og "þegar svona
kemur upp er flugmönnum
skipað að lenda strax áöur
en eitthvað fer úrskeiöis og
þvi var það gert strax” sagði
Mik.
Eftir nauölendinguna
komu viögerðarmenn á
staðinn og viðathugun kom
í Ijós smávægileg bllun vlö
gírinn til þess spaða sem
heldur stefnu vélarinnar.
Þ.e. ef um alvarlega bilun er
að ræða fer vélin einungis í
hringi. Eftir stutta stund var
viðgerð lokiö og hélt vélin
þá áfram ferðinni upp á
Keflavíkurflugvöll.
-epj.
Vínveitingar
Á fundi bæjarráðs Q
Keflavíkur 23. júní s.l. var
tekið fyrir erindi frá
Dómsmálaráöuneytinu
þar sem það leitar eftir
umsögn bæjarstjórnar
vegna beini Axels
Glóðinni?
90% ökumanna fara nú rétt að
Aðeins um einn af
hverjum 10 ökumönnum er
keyra niður Hafnargötu á
móts við Víkurbraut og
Faxabraut fer ekki rétt aö er
þeir ætla að keyra niður
Hafnargötu, en fyrir stuttu
var málaö á götuna örvar
sem sýna hvernig á að fara
að hvort sem ökumaður
ætlar upp Faxabraut
(beygja til vinstri og vera á
miöakgrein) niður Hafnar-
götu (hægri akgrein) eða
beygja til hægri niður
Vikurbraut. Þar til gatan var
máluð munaöi oft sáralitlu
að árekstrar yrðu og nánast
mesta mildi að ekki varð.
Með tilkomu örvanna ætti
að vera greinilegt fyrir
ökumenn aö nota rétta
akgrein þannig aö ekki
veröi hætta á slysum.
-pket.
Hér fara menn rétt að....
Jónssonar veitinga-
manns um leyfi til vin-
veitinga í Veitingahúsinu
Glóðinni, Hafnargötu 62,
Keflavik.
Bæjarráð leggur til að
Axel Jónssyni veitinga-
manni verði veitt leyfi til
að veita vín á veitinga-
húsinu Glóöinni að
Hafnargötu 62, efri
hæð.samkv. gildandi
lögum þar um. Þó verði
veitingamanni heimilt að
veita vín með mat á neöri-
hæð staðarins uns efri
hæðin er fullbúin til fyrir-
hugaðs reksturs. Vín-
veitingaleyfið gildir til 1.
júlí 1984.
Við atkvæðagreiðslu i
bæjarráði sat Hilmar
Pétursson hjá, en loka-
afgreiðslan átti að fara
fram í bæjarstjórn s.l.
þriðjudag.
-epj.
Næsta blað
kemur út
7. júlí n.k.
Spurningin:
Fylgist þú meö
íþróttum?
Olafur Sigtryggsson:
..Já. mikiö t.d knattspyrn-
unm"
Ólafur Erlingsson:
..Ég geri það svolitiö. þa
aðallega knattspyrnunni'
Rósa Guömundsdóttir:
..Nei, ekkert"
Helga Þorsteinsdóttir:
,,Nei, aöeins Í.B.K. i fót-
boltanum".