Víkurfréttir - 04.05.1984, Blaðsíða 5
VÍKUR-fréttir
Föstudagur 4. maí 1984 5
SMEKKLEYSI
Þegai hátíðisdagur
verkalýðsins 1. maí gekk í
garð, og fólk fór að fara
niður Hafnargötu í Kefla-
vík, rakst það viða á smekk-
lausan áróður, sem víða
hafði verið hengdur upp á
girðingar, hús og Ijósa-
staura. Út á áróðurinn er
ekkert hægt að setja, en
hins vegar bættu þeir
aðeins gráu ofan á svart
þessir auglýsingamiðar.
Þegar líða tók á daginn
var búið að rífa þá flesta
niður og því bættist við
þann sóðaskap sem þvi
miður er orðinn nokkuð
fastur liður við Hafnargöt-
una, vegna þess að þessir
miðar, sem voru orðnir að
bréfarusli voru fjúkandi út
um allt, eða þá að þeir
héngu í lufsum á húsum og
staurum.
Ættu þeir aðilar sem í
Plakötin þöktu m.a. girðinguna umhverfis lóð Bústoðar.
Vogar:
framtíðinni hafa hug á slík-
um dreifingum að sjá svo
um að þetta sóði ekki meira
út þau byggðarlög sem
þessu er dreift í. Plakötin
voru undirskrifuð af Félags-
máladeild Samhygðar með
stuðningi ýmissa fyrirtækja
s.s. Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar, Hljómbæjar,
Sindrastáls, Smjörlíki,
Líkamsræktinni Kjörgarði,
Prentþjónustunni, KRON,
Osta- og smjörsölunni, SÍS,
Sólningu og Skiparadíói.
epj.
Suöurgötu 4A, simi 2888
Opiö mánudaga og
fimmtudaga kl. 20-22.
Námskeið í
fluguköstum
hefst í (þróttahúsi
Keflavíkur, mánudag-
inn 7. maí.
Þátttaka tilkynnist í
síma 1786 (Sigmar).
Bingó í Garðinum
Dansa til styrktar björgunarsveitinni
( kvöld kl. 20 hefst í Vog-
um keðjudans til styrktar
björgunarsveitinni Skyggni.
Skráð pör dansa í eina
klukkustund og taka hvert
við af öðru. Verður húsið
opið almenningi allan
tímann og getur hver sem
vill fengið sér snúning.
Stefnt er að því að dansinn
standi fram á sunnudags-
kvöld, og dansað jafnt að
nóttu sem degi.
Áheitum verður safnað
með því að ganga í hús í
Vogum, kvöldið fyrir dans-
inn.
Á sunnudagskvöld 6. maí
kl. 20.30 verður rekinn
endahnútur á helgina með
léttri fjölskyldukvöldvöku.
Allur ágóði rennur til Björg-
unarsveitarinnar Skyggnis,
en Ungmennafélagiö Þrótt-
ur stendur fyrir þessari
helgarskemmtun, sem fer
fram í Glaðheimum. - eg.
Lýst eftir vitnum
Aðfaranótt þriðjudagsins
24. apríl sl. var komið að
Subaru fólksbifreið árgerð
1978, dökkbrúnni að lit, þar
sem hún stóð á Grindavík-
urvegi á móts við Svarts-
engi. Var framrúðan brotin
ásamt hliðarrúðu, toppur,
vélarlok og farangurslok út-
tröðkuð, hliðarspegill brot-
inn og bíllinn allur meira og
minna rispaður.
Við eftirgrennslan hefur
komið í Ijós, að skemmdir
þessar voru unnar á bílnum
að loknum dansleik á
Víkur-fréttir
Blað sem
þorir.
öðrum í páskum, en þeir
sem þar voru að verki hafa
ekki fundist ennþá. Eru það
vinsamleg tilmæli lögregl-
unnar í Grindavík að allir
Það er ekki á hverjum
degi sem Suðurnesjamenn
verða þess aðnjótandi að fá
að hlusta á klukkustundar
langa dagskrá í útvarpi
landsmanna, Ríkisútvarp-
inu, frá Suðurnesjum.
Nú gefst Suðurnesjabú-
um ásamt öðrum lands-
mönnum kostur á að hlusta
á guðsþjónustu sem út-
varpað verður frá Safnaðar-
heimili Aðventista í Kefla-
þeir sem einhverjar upplýs-
ingar gætu gefið um málið,
láti lögregluna vita.
Bifreið þessi bereinkenn-
isstafina R-66359 og er
nánast ónýt eftir þennan
verknað. - epj.
vík, sunnudaginn 6. maí kl.
11 f.h.
Prestur safnaðarins,
Þröstur Steinþórsson, flyt-
ur tímabæran boðskap í
ræðu sinni, sem reyndar nú
þegar hljómar út um allan
heim og er vel þess virði að
hlusta á. Fjölbreyttur söng-
ur er á dagskrá, m.a. tvö-
faldur blandaður kvartett
undir stjórn Jónínu Guð-
mundsdóttur.
Upptakan var hljóðrituð
28. apríl sl.
(Fréttatilkynning)
Guðsþjónustu útvarpað
frá Keflavík
sunnudaginn 6. maí kl. 20.30. - Aðalvinn-
ingur: Helgarferð til Glasgow.
Spilaðar verða 12 umferðir. - Nú mætaallir.
ÆGIR
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ:
MIÐLARNIR leika fyrir dansi
frá kl. 22 - 03.
LAUGARDAGUR 5. MAÍ:
UPPLYFTING leikur fyrir dansi
frá kl. 22 - 03.
- Snyrtilegur klæðnaður -
Aðfaranótt sl. sunnudags ók ökumaður bil sinum yfirgras-
geira við Vesturgötu á móts við Hólmgarð, og virtist ætla að
stytta sér leið yfir að blokkunum við Heiðarhvamm. Þar
sem jarðvegur var mjög blautur festi hann bilinn i drullu
áður en hann komst á áfangastað. Greip lögreglan öku-
manninn i bifreiðinni og er hann grunaður um ölvun við
akstur. - Myndin sýnir bilinn fastan idrullunni, en framst á
myndinni sjást skemmdirnar á grasinu. - epj.
GARÐAHUGAFOLK!
GARÐVERKFÆRiN KOMIN.
GARÐÁBURÐUR - TÚNÁBURÐUR
50 kg
25 kg
10 kg
5 kg
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
JÁRN & SKIP
Víkurbraut - Sími 1505