Víkurfréttir - 04.05.1984, Síða 14
14 Föstudagur 4. maí 1984
VÍKUR-fréttir
ffÍ\ Steypusögun
Suðurnesja s/f
Sögum hurðagöt, gluggagöt, raufar í gólf og
veggi, fyrir rafmagns-, vatnslögnum o.fl.
Vönduð vinna, vanir menn. Þrifaleg umgengni.
Gerum föst verðtilboð. Uppl. í síma 92-6654.
Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja
óskar eftir laghentum starfsmanni til sum-
arafleysinga frá og með 15. maí.
Um fast starf gæti orðið að ræða.
Skriflegum umsóknum sé skilað til skrif-
stofu stöðvarinnar, að Brekkustíg 36,
Njarðvík, þar sem gefnar verða nánari upp-
lýsingar.
Rekstrarstjóri
2-3ja herb. íbúð óskast
Óskum eftir 2-3ja herb. íbúð fyrir einn
starfsmann okkar.
Nánari upplýsingar gefnar í versluninni.
DROPINN, simi 2652
Kennara
vantar við Grunnskólann í Keflavík.
Kennslugreinar: Heimilisfræði, íþróttir.
Umsóknarfrestur er til 15. maí n.k. Allar
nánari upplýsingar veita skólastjóri Myllu-
bakkaskóla, Vilhjálmur Ketilsson, sími
1450, og skólastjóri Holtaskóla, Sigurður
Þorkelsson, sími 1135.
Skólanefnd
AUGLÝSING
frá Hitaveitu
Suðurnesja
Vegna mikillar aðsóknar ferðamanna að
orkuverinu í Svartsengi hefir verið ákveðið
að framvegis verði leyfðar heimsóknir
þangað á laugardögum og sunnudögum
milli kl. 13 og 19.
( móttökusal orkuversins er myndband um
starfsemi hitaveitunnar, sem gestum er
boðið að skoða. Jafnframt skal vakin at-
hygli á því að allar aðrar heimsóknir þurfa
að vera í samráði við umráðamenn orku-
versins.
í tilefni af baráttudegi
verkalýðsins, 1. maí.
Tl SKOCUÍP^
Verður þetta lausn atvinnurekenda í framtíðinni?
Málfreyjusamtökin útbreiddust á
íslandi og Nýja-Sjálandi
miðað við íbúafjölda
Hér á landi hafa Alþjóða-
samtök Málfreyja náð svo
mikilli útbreiðslu, að það er
aðeins í einu landi i heimin-
um utan (slands, þar sem
jafn margar konur eru í
samtökunum sem hlutfall af
íbúafjölda, það er á Nýja-
Sjálandi.
Málfreyjusamtökin voru
stofnuð í Bandaríkjunum
árið 1938, af Ernestine
White, sem ,,trúði því að ef
allar konur gerðu sér grein
fyrir því hvers þær væru
megnugar og legðu allt sitt
besta af mörkum við að
miðla öðrum konum af
þekkingu sinni og reynslu,
væru því engin takmörk
sett, hve langt þær gætu
náð“, eins og segir í kynn-
ingarbæklingi. Starfandi
eru um 25 þúsund Málfreyj-
ur í 1500 deildum, sem eru
dreifðar út um allan heim. Á
(slandi eru um 300 Málfreyj-
ur í 15 deildum.
Þáttur (slendinga í starfi
Málfreyja er mjög athyglis-
verðurbæði hérinnanlands
og erlendis. Víkur-fréttir
ræddu við Patriciu Hand,
sem er áströlsk, en býr á (s-
landi og telur sig (slending,
og hefur lagt mikið af mörk-
um í starfi Málfreyja.
Patricia sagði að fyrsta
Málfreyjudeildin á Islandi
hefði verið stofnuð af amer-
iskum og enskum konum á
árinu 1972, en stofnskrá
verið samþykkt í ársbyrjun
1973. Fyrsta íslenska kon-
an sem fékk inngöngu var
Erla Guðmundsdóttir,
Keflavík. Á fundum deildar-
innar sem eru 1. og 3.
mánudag í hverjum mán-
uði, er töluð enska. Nafn
deildarinnar er „Puffin
Club", en núverandi for-
maður er Þorbjörg Guðna-
dóttir. I ræðukeppni á ráðs-
fundi Málfreyja nýlega, sem
haldin var í Keflavík, sigraði
Patricia í ræðukeppni á ís-
lenskri tungu, en hún varsú
eina, sem hafði íslensku
ekki að móðurmáli, en í
ræðukeppni á enskri tungu,
móðurmáli hennar, lenti
hún í öðru sæti.
Patricia hefur með hönd-
um það verkefni að vera
tengiliður á milli aðalstjórn-
ar Málfreyja i bandaríkjun-
um og starfs samtakanna í
Evrópu, utan (slands og
Hollands, þar sem út-
breiðsla er mikil.
Nýlega var Patricia á ferð
í Danmörku og Noregi í
þeim tilgangi að stofnsetja
þar Málfreyjudeildir, en ís-
lenskar konur voru fyrstar
Norðurlandabúa að gerast
aðilar að þessum samtök-
um. Það eru íslenskar kon-
ur sem verða því fyrstar til
að stofna slíkar deild í Dan-
mörku, en á fundum deild-
arinnar verður töluð ís-
lenska. Áður höfðu íslensk-
ar konur stofnað Málfreyju-
deild í Luxemburg, þarsem
íslenska er töluð á fundum.
Það var fyrsta Málfreyju-
deildin þar. En síðan hefur
önnur verið stofnuð, þar
sem eru konur víða úr heim-
inum, en stefnt er að því að
stofnuð verði deild fyrir
þýskumælandi. Af öðrum
löndum sem Patricia hefur
samskipti við á vegum Mál-
freyja, eru Bretland, Suður-
Afríka, Grikkland og Aust-
urríki. Að sögn Patriciu eiga
samtökin vaxandi fylgi að
fagna, þar sem enska er
ekki móðurmál.
Á undanförnum árum
hefur Patricia verið dugleg
að kynna ísland og íslensk
málefni. Hún hefur verið
formaður ritnefndar að
tímariti alþjóðasamtaka
málfreyja og ritað margar
greinar um íslensk málefni,
t.d. Vigdísi Finnbogadóttur
forseta, sem hefur verið
gerð að heiðursaðila að al-
þjóðasamtökunum, en
Vigdís er annar aðilinn sem
nýtur þess heiðurs. Patricia
hefur haldið erindi um (s-
land og (slensk málefni á
fundum víða erlendis og
komið fram í sjónvarpi í
Ástralíu.
Patricia hefur tvívegis
sótt Alþjóðaþing Málfreyja,
árið 1980 í St. Luis í Banda-
ríkjunum og Ástralíu árið
1982. - E.G.
Orlofshús V.S.F.G.
Dvalarleyfi
Þriðjudaginn 8. maí n.k. verður byrjað að
taka á móti umsóknum í orlofshús félags-
ins, á skrifstofu þess að Melbraut 3. Verður
hún opin milli kl. 19.30 og 21.30 dagana 8.,
10., 17., 22., 24. og 29. maí.
Þeir sem ekki hafa fengið úthlutað sl. 3 ár
sitja fyrir dvalarleyfum til 17. maí.
Leiga verður kr. 1.800 á viku.
Ekki verður tekið á móti umsóknum í síma.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Gerðahrepps