Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.11.1984, Blaðsíða 3

Víkurfréttir - 01.11.1984, Blaðsíða 3
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 1. nóvember 1984 3 Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla: Á að skikka karlmenn til að ganga í pilsum? 1. umferð hefst í Félagsbíói I kvöld ,,Á að skikka karlmenn til að ganga í pilsum?" verður umræðuefni í Félagsbíói kl. 20.30 í kvöld, fimmtudag. Er hér um að ræða 1. umferð í MORFÍS og eigast við lið Fjölbrautaskóla Suður- nesja og Fjölbraut Ármúla. MORFÍS er skammstöfun fyrir mælsku- og rökræðu- keppni framhaldsskóla á (s- landi, en þátt taka þeir skól- ar sem útskrifa stúdenta. Keppnin verður með þvi sniði að hver skóli sendir 3 manna ræðulið auk liðs- stjóra, sem jafnframt er þjálfari. Keppt er sam- kvæmt útsláttarfyrirkomu- lagi, þannig að það lið sem vinnur heldur áfram í keppninni. Lið eru dregin saman í tölvu Verslunar- skóla (slands, svo og um- ræðuefni, hvort liðið á heimaleik og loks hvaðan dómarar koma. ( kvöld koma þeir frá Menntaskól- anum á (safirði og á Egils- stöðum, auk eins dómara sem kemur frá JC-hreyf- ingunni. Þannig er fyllsta hlutleysis gætt. Fyrsta umferðin hefst í kvöld eins og áður segir, og munu 18 skólar keppa sín á milli. Úrslitakeppnin verður síðan 6. mars í Háskólabíói. Blaðamaður Víkur-frétta hitti keppendur að máli fyrir skömmu og spurði þá hvernig keppnin legöist í þá. „Þetta er í fyrsta skipti sem við tökum þátt í þess- ari keppni og við ætlum okkurekkertannaðen sigur í kvöld. Það hefur verið her- ferð í skólanum síðustu daga og vikur um að allir sem ætla að koma og styðja við bakið á okkur mæti i pilsum. Við ætlum okkur stóra hluti í þessari keppni og stefnum hiklaustá úrslit- in í rnars", sögðu þau Svala Sigurgeirsdóttir (Njarðvík), Helga Loftsdóttir (Grinda- vík), Garðar Vilhjálmsson (Keflavík) og Guðmundur Brynjólfsson (Vogum). Keppnin er opin öllum og eru Suðurnesjamenn hvatt- ir til að mæta og hvetja æskulýðinn. Lokaorð gef- um við keppendum FS: „KARLMENN: NIÐUR MEÐ BRÆKURNAR OG UPP MEÐ PILSIN . . . “ - pket. Afleiðingar verkfalls BSRB: Farið að bera á vöru- og fjármagnsskorti Nú er farið að gæta áhrifa verkfalls. BSRB á ýmsum sviðum. Vöruskorturerorð- inn allnokkur og skortur á rekstrarfé ýmissa fyrirtækja er farinn að gera vart við sig. Vínveitingahúsin, s.s. K.K., hefur hætt dansleikja- haldi vegna þess að barinn er orðinn þurrausinn. Ýmis félagasamtök hafa orðiðað hætta við árshátíðir vegna þess að skemmtanaleyfi fást ekki afgreidd. Hús- byggingar eru að stöðvast vegna sementsleysis svo og framkvæmdir við Helguvík og flugstöðina. Bensínleysi er orðið og því er kominn samdráttur í ýmsa þjónustu þar sem ökutæki eru notuð. Ýmis fyrirtæki hafa ekki fengið eðlilegt rekstrarfé, vegna stöðvunar á póst- samgöngum eða lokunar ríkisfyrirtækja, s.s. Trygg- ingastofnunarinnar. Bíla- verkstæðin fá ekki trygg- ingaskýrslur frá lögreglu og geta því ekki fengið greiðsl- ur fyrir viðgerðir á tjónum af völdum umferðaróhappa. Þessir aðilar geta því ekki greitt það sem þeim ber Auglýsingasíminn er 1717 fyrir þjónustu, og þannig er fjármagnsleysið orðið víð- tækt. Enda er svo komiö að ýmis fyrirtæki eru nánast eingöngu rekin af þrjósku eða metnaði eigenda. Er þv( vonandi að verk- fallið fari senn að leysast, því annars er hætt við að skapast geti varanlegt tjón af því, s.s. varðandi atvinnu- lífið, sem kæmi þá fram í auknu atvinnuleysi. Einnig má búastviðað verkfalliðsé farið að koma illa niður á ýmsum heimilum, og erfið- lega muniaðgangaaðreisa sig upp að nýju, að verkfalli loknu. Ein af afleiðingum ástandsins er að flestar peningastofnanir hafa nú stöðvað öll útlán og tekið hart á öllum vanskilum. M.a. er vitað um að miklum fjölda af ávísana- og hlaupa- reikningum einstaklinga og fyrirtækja hefur verið lokað fyrir fullt og allt. Þá hefur ástandið i för með sér að vanskil lenda nú frekar í lögfræðilegri innheimtu eða öðru slíku, en áður. Mest af þessu skrifast á yfir- standandi kjaradeilu og því hljóta flestir að sjá, að nú verða menn að taka sig á og sameinast um að leysa deil- una, áður en hrun margra heimila og fyrirtækja er orðið að staðreynd. - epj. Keppandur Fjölbrautaskóla Suðurnesja i MORFÍS, þau Svala, Helga, Garóar og Guð- mundur, - i pilsum að sjálfsögðu. ATH: Opið alla laugardaga frá kl. 10:00 - 15:00. Auglýsing í Víkur-fréttum hittir í mark. Háteigur 12, Keflavik: Góð 3ja herb. íbúð á góðum stað. 1.500.000. Brekkubraut 15, efri hæð, Keflavik: 90 m2 3ja herb. íbúð ásamt bílskúr. Mikið endurnýjuð eign. Góður stað- ur. 1.550.000. Eignamiðlun Suðurnesja Fasteignaviðskipti: Hannes Arnar Ragnarsson Sölustj óri: Sigurður Vignir Ragnarsson Vatnsnesvegur 26, efri hæð, Keflavík: 3ja herb. sérhæð í ágætu ástandi á- samt tvöföldum bílskúr. Skipti á ódýr- ara möguleg. 1.450.000 Hátún 18, efri hæð, Keflavik: Góð 3ja herb. ibúð. Ágætur staður. 1.050.000. Kirkjuvegur 42, neðri hæð, Keflavik: Góð 3ja herb. íbúð, mikið endurnýj- uð, m.a. parket á öllu o.fl. Skipti á góðum bíl möguleg. 1.080.000. Heiðarból 8, Keflavík: Góð 3ja herb. íbúð. Ljósar innrétt- ingar, björt íbúð. 1.400.000. KEFLAVÍK: Góð 110 m2 4ra herb. íbúð við Hring- braut, mikið endurnýjuð, m.a. nýtt eldhús o.fl. 1.650.000. Rúmgóð 160 ferm. íbúð við Háaleiti ásamt tvöföldum bílskúr. Skipti á ódýrara möguleg. 2.400.000. Gott 140 m2 raðhús við Greniteig á- samt 29 m2 bílskúr. Vönduð eign. 2.500.000. 175 m2 einbýlishús við Háaleiti. Skipti á ódýrari eign möguleg. 2.800.000. Gott 136 m2 einbýlishús við Lang- holt ásamt 40 m2 bilskúr. Hagstæð greiðslukjör. 3.500.000.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.