Víkurfréttir - 01.11.1984, Blaðsíða 12
12
Fimmtudagur 1. nóvember 1984
VÍKUR-fréttir
Ráðherra stöðvar
byggingarframkvæmdir
- að Tjarnargötu 2
Alexander Stefánsson,
félagsmálaráðherra, hefur
úrskurðað byggingarleyfi
fyrir verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði að Tjarnar-
götu 2 í Keflavík úr gildi fellt
að svo stöddu. Jafnframt
verður lagt fyrir skipulags-
stjórn að eiga nú þegar
frumkvæði að gerð deili-
skipulags fyrir miðbæ
Keflavíkur i samráði við
bæjarstjórn Keflavíkur.
Það er því Ijóst að fram-
kvæmdir munu liggja niðri
þar til deiliskipulag hefur
verið samþykkt. Þar sem
hér er um óvenjulegt mál að
ræöa var leitað umsagnar
nokkurra aðila sem því
tengjast. - epj./pket.
Árni R. Árnason, for-
maður bygginganefndar
Keflavikur:
„Skipulags-
stjórn hefði átt
að kippa í
spottann . . .“
,,Það er alveg Ijóst, að
ráðherra kemst að annarri
niðurstöðu en bygginga-
nefnd, en ég held að það sé
ekki rétt að ég sé að fjölyrða
hvers vegna. Það eru án efa
fleiri álit á þvi en mitt.
Ráðherra er sá aðili sem
við verðum að hlíta, hvort
sem við höfum allt aðra
skoðun um bygginguna
eður ei. Hann úrskurðar
byggingarleyfið úr gildi og
það þýðir að það er engin
I heimild til framkvæmda.
j Hins vegar kemur það skýrt
i fram i umsögn skipulags-
stjóra að það komi til álita
eða umfjöllunar þegardeili-
skipulag veröur samþykkt. I
niðurstöðum ráðherra er
skipulagsstjóra falið að
hafa frumkvæði að gerð nýs
deiliskipulags að miðbæ
Keflavíkur í samráði við
bæjarstjórn. Ég tel aðskipu-
lagsstjóri hefði átt að kippa í
þann spotta fyrir löngu
síðan, fyrst þetta deiliskipu-
lag var svona. Staðreyndin
er sú, að samkvæmt þess-
um sömu lögum þá er bæj-
arstjórn ekki heimilt að
fresta samþykkt deiliskipu-
lags nema um einhvern til-
tekinn tíma. í þessu tilviki
var mjög langt um liðið.
Skipulagsstjóri eða það em-
bætti lætur sér þetta lynda
þangað til bæjarstjórn eða
einhver á hennar vegum
byrjar að vinna að nýju
deiliskipulagi, en leitar þátil
annarra aðila eftir hug-
myndum. Þá er eins og
annað hljóð komi í strokk-
inn. Ég er að vísu upplýstur
um það, að ef bæjarstjórn
ekki samþykkir skipulags-
hugmynd frá skipulags-
stjóra, en samþykkir ekkert
annað í staðinn, munu til-
lögur skipulagsstjóra gilda.
Eða að minnsta kosti þenn-
an frestunartíma, en hann
er samkvæmt þessum
lögum tiltekinn árafjöldi.
Þá hefði ég skilið það sem
svo, að skipulagsstjóri hefði
átt að benda bæjarstjórn á
að þetta skyldi gerast.
Það er ekki mín meining
að þetta sé neinum einum
aðila að kenna frekar en
öðrum. En mér finnst að
þetta hefði átt að gerast.
Það hefði átt að taka til
hendinni við skipulags-
gerðina og fyrst bæjar-
stjórn gerði það ekki á
sínum tíma, þá samkvæmt
þessu hefði skipulagsstjóri
átt að skipa henni að gera
það“, sagði Árni Ragnar
Árnason.
Steinþór Júlíusson,
bæjarstjóri:
„No comment“
,,No comment", sagði
Steinþór Júlíusson, bæjar-
stjóri í Keflavík. ,,Þettaeral-
farið á vegum bygginga-
nefndar og byggingafull-
trúa, þannig að ég hef
ekkert um málið að segja".
Sigurður Thoroddsen,
hjá Skipulagsstjórn
rikisins:
„Það er af
og frá“
,,Það er af og frá að mað-
ur ræði þessi mál við blaða-
menn úti í bæ. Talaðu við
ráðuneytið. Okkur berast
mörg erindi frá því".
Svo mörg voru orð Sig-
urðar.
Hólmfríður Sveinbjörns-
dóttir, lögmaður félags-
málaráðuneytisins:
„Óvenjulegt“
,,Það er óvenjulegt að
deilumál fari svona langt.
Þau leysast yfirleitt fyrr á
leiðinni, jafnvel þó deili-
skipulag vanti“, sagði
Hólmfríður.
Sigurður Gunnarsson,
annar eigandi hússins
að Hafnargötu 28:
„Vekur mann til
umhugsunar“
„Úrslit þessa máls vekja
menn til umhugsunar um
bæjarmálin í heild. Er víða
staðið svona illa að málum?
Það vekur furðu að það
skuli þurfa að senda mál
alla leið til ráðherra, svo
menn fari að vinna eitthvað
af viti. Það hefur aldrei verið
talað við okkur af neinni al-
vöru og við ekki fengið
heldur nein almennileg svör
við málaleitan okkar", sagði
Sigurður Gunnarsson.
Róbert Svavarsson,
eigandi nýbyggingar-
innar að Tjarnargötu 2-4:
„Kemur sér
afar illa“
„Þetta kemur sér afar illa
fyrir okkur. Samningar hafa
verið gerðir við verktaka
sem eru bindandi. Fyrir
utan það þá var ætlunin að
drífa bygginguna áfram og
nota haustdagana vel, því
við höfðum stefnt að því að
opna þarna verslun í
febrúar-mars á næsta ári.
Ég vona bara að Keflavíkur-
bær leysi þetta mál á far-
sælan hátt. Við erum með
allt okkar undir þessu og
það er komið allt of mikið fé
í þetta til þess að fara að
stöðva bygginguna núna“,
sagði Róbert.
VHS-
EIGEND UR
Draumurinn
hefur ræst.
LEIGA EINUNGIS MEÐ VHS-MYNDIR
r r
- Otrúlegt Urval -
VHS-leigan, Hafnargötu 26
(Á móti PHOENIX- VIDE O)
ERTU
BLINDUR
MAÐUR