Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.11.1984, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 01.11.1984, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 1. nóvember 1984 VÍKUR-fréttir Orðsending til Suðurnesjamanna: Takið þátt í skrifum blaðsins Vikur-fréttir vilja hvetja lesendur til að skrifa blað- inu um hvaðeina sem hugur þeirra stendur til - eða MÁLGAGN SUÐURNESJA MANNA mun paa* hringja í síma 1717, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal þess efnis sem vel er þegið, eru ábendingar, orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla, frétta og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, þó það sé ákjósan- legra. Séu þau skrifuð þurfa þau að vera snyrtileg og með góðri rithönd. Nöfn, nafnnúmer og heimilisföng ; jzn r~ N J L_J J 1. DYNASTY 2. THE EMPIRE STRIKES BACK 3. THE STAR CHAMBER 4. SILENT MOVIE 5. FLIGHT 90 6. LOSIN’ IT 7. LADY FROM YESTERDAY 8. MY OLD MAN 9. LOOKER 10. HONKYTONK MAN 11. TOOTSIE 12. GANDHI 13. THE BOAT 14. KRAMER VS KRAMER 15. MOONRAKER 16. PARIS, TEXAS 17. MAX DUGAN RETURNS 18. PRIVATE BENJAMIN 19. MASTER OF THE GAME 20. DOG SOLDIERS verða að fylgja öllu efni til blaðsins, þó höfundur óski nafnleyndar. Ef um tíma- sett efni er að ræða þarf það helst að berast fyrir helgi og í allra síðasta lagi fyrir hádegi næsta mánudag fyrir útkomu blaðsins. Sérstaklega þykirástæða til að beina því til lesenda búsettum í hinum ýmsu byggðarlögum Suðurnesja, utan Keflavíkur, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í blaðinu. Framkvæmdir við Helguvíkurhöfn: Hefjast í lok næsta árs N ú er gert ráð fy rir því að i lok næsta árs verði hægt að hefja framkvæmdir við Helguvíkurhöfn. Aðrarfram kvæmdir í Helguvík ganga samkvæmt áætlun og er áætlað að fyrsta áfanga, byggingu tveggja 15.000 rúmlítra tanka, verði lokið um áramót 1985. Undirstöður fyrir tankana eru langt komnar og pípu- lögn frá Helguvík upp á Keflavíkurflugvöll er langt komin. Að visu óttast menn að sementsskortur verði á næstunni ef verkfall BSRB leysist ekki. - epj. Ofanbyggðarvegur gerður næsta sumar Nú eru vonir bundnar við að hægt verði að hefjast handa við lagningu svo- nefnds Ofanbyggðarvegar frá Fitjum og upp að nýju flugstöðínni, á næsta sumri. í framhaldi af þvi verður unnið að gerð flughlaðs og aksturbrauta að flugbraut- um við nýju flugstöðina. Eru framkvæmdir þessar alfarið kostaðar af Banda- ríkjamönnum. En það er einmitt þessi vegur sem rætt er um að verði framtíðar þjóðvegurtil Keflavíkur og er þá rætt um að Vesturgata, Aðalgata Áttu góða grein í blaðið? Hafðu þásamband við ritstjórn blaðs- ins. Síminn er 1717 mun juttit eða Skólavegur verði aðal innakstursgötur inn í Kefla- víkurkaupstað. - epj. Keflavíkur- kirkja Sunnudagur 4. nóv.: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Allra heilagra messa. Fermingarundirbúningur verður á fimmtudagseftir- miðdögum sem hér segir: 7.C kl. 15, 7.A kl. 15.45, 7.B kl.16.30,7.Dkl.17.15og7.E kl. 18. Auk þess verður stefnt að námskeiðum í Kirkjulundi og þess er vænst að fermingarbörn sæki æskulýðs- og fjöl- skylduguðsþjónustur ásamt foreldrum. Sóknarprestur Æ ÍHÚSI |1- H ÖT E- L ESJU ÍT*—* D Smáauglýsingar Til leigu 2ja herþ. íbúð. 4-5 mán. fyrirframgreiðsla. Uppl. í sima 2250 milli kl. 18 og 21. Til sölu Silver Cross barnavagn, stærri gerð. Litur: brúnn. Undan einu barni. Uppl. í síma 6162. Til leigu 3ja herb. íbúð. á sama stað er til sölu VHS-videotæki. Uppl. í síma 4984 eftir kl. 19. Atvinnurekendur, ath. 24 ára stúlku vantar vinnu i stuttan tíma eða til áramóta. Hefur stúdentspróf. Allt kemur til greina. Uppl. í síma 2704 eftir kl. 16. Til sölu 360 lítra ITT frystikista, lítið notuð. Sanngjarnt verð. Einnig Romanz matarstell frá Roshenthal, 6 manna. 15% afsláttur gegn stað- greiðslu. Uppl. ísíma2811. Til sölu lítil búslóð, vegnaflutnings. Uppl. í símum 1060og 1998. Frystikista 290 lítra GRAM-frystikista til sölu. Uppl. í síma 3127. Til sölu gömul eldavél, GRAETZ. Uppl. Ísima4480eftirkl. 17. Til sölu hjónarúm m/borðum. Uppl. í síma 3041 eftir kl. 17. Snjódekk Til sölu negld snjódekk, sem ný. Stærð P205/75 R15. Uppl. í síma 3213. Sony C-5 videotæki til sölu. Uppl. í síma 93-7137. Viögerðir og viöhald Tökum að okkur ýmsar við- gerðir, viðhald og nýsmíði. Uppl. í sima 2957. Gunnar Þóröarson. Húsnæöi til leigu Húsnæði að Hafnargötu 20 til leigu. Gæti hentað vel til verslunar- eða þjónustu- starfsemi. Uppl. á staðnum milli kl. 18 og 20, og í síma 3926 á kvöldin. Stífluþjónusta Tökum að okkur" stíflulos- un. Pöntunarsímar 4429 og 7009. Tökum aö okkur allar almennar klæðningar og bólstrun. Ath. nýtt síma- númer. Bólstrun Jónasar, Tjarnargötu 20a, simi 4252 Til sölu eldhúsborð og fjórir stólar, lítið notað. Uppl. að Hafnar- götu 82, miðhæð. Óska eftir forstofuherbergi til leigu. Uppl. í síma 7644. Ársgömul Zanuzzi frystikista til sölu. Tilboð. Uppl. i síma 8618.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.