Víkurfréttir - 01.11.1984, Blaðsíða 13
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 1. nóvember 1984 13
Ný stjórn KFK
Hin nýja stjórn KFK erskipuð eftirtöidum aðilum: Efriröðf.v.: SigurðurSteindórsson, Við-
ar Oddgeirsson, Magnús Jónsson, Marel Sigurðsson. Neðri röð f.v.: Garðar Oddgeirsson,
Ragnhildur Ragnarsdóttir, Jón Ólsen formaður, Sigurbjörn Gústafsson og Freyr Sverrisson.
pket.
Afreksfólk KFK 1984
Nýlega verðlaunaði Knattspyrnuféiag Kefiavikur afreksfólk sitt fyrir framúrskarandi ár-
angur og góða æfingasókn. 16. flokki iknattspyrnu: Sverrir Þór Sverrisson og Sverrir Auð-
unsson. í5. flokki: Jón Ingi Jónsson. I handbolta kvenna: Bylgja Sverrisdóttir. Afreksbik-
ara i þessum flokkum gaf Prentsmiðjan Grágás hf. i Keflavik. Afreksfólk KFK 16 ára og
yngri: íris Ástþórsdóttir. 16 ára og eldri: Óskar Færseth.
Hljómsveitin GOÐGÁ
leikur fyrir dansi
föstudagskvöld
frá kl. 22 - 03.
Laugardagur 3. nóvember:
LOKAÐ VEGNA EINKASAMKVÆMIS.
ALDURSTAKMARK SNYRTILEGUR
20 ÁRA KLÆÐNAÐUR
Rólegt hjá lögreglunni
- Nokkur smáinnbrot og 2 umferðarslys
Aö sögn lögreglunn'ar í
Keflavík var slðasta vika
frekar róleg og mjög lítið
um útköll. Telja þeir að þar
séu áhrfa verkfalls BSRB
farið að gæta og þá sérstak-
lega varðandi það að vín-
birgðir almennings séu
þrotnar.
(vikunni frá sunnudegi til
sunnudags urðu nokkur
smáinnbrot, en litlu sem
engu stolið, að undanskild-
um vínþjófnaðinum sem
getið er annars staðar í
blaðinu.
Á þessu tímabili urðu 10
umferðaróhöpp, og voru
þau öll án slysa að tveimur
undanskildum þó. Var ann-
að er árekstur varð milli
óskráðs bifhjóls og stúlku á
reiðhjóli og var stúlkan flutt
á sjúkrahús, en meiðsli voru
þó ekki alvarleg. [ hinu til-
fellinu blindaðist ökumað-
ur af sól og ók á einn drop-
ann á gatnamótum Borgar-
vegar og Reykjanesbrautar
í Njarðvík. Slasaðist hann
eitthvað íandliti, m.a. brotn-
uðu tennur.
Þá var bíl stolið frá Faxa-
braut 25 aðfaranótt sl.
sunnudags og fannst hann
morguninn eftir óskemmd-
ur niður við Keflavík hf.
Hjá lögreglunni í Grinda-
vík var ástandið svipað,
engir dansleikir vegna verk-
fallsins, engin innbrot, en
þar urðu 2 umferðaróhöpp i
vikunni, en án slysa. I
Grindavík voru þeir að einu
leyti verr settir en aðrir Suð-
urnesjamenn, því a.m.k. á
Víkurnesti var bensínið
þrotið sl. sunnudag. - epj.
" Tjarnargötu 3
• HJÁ OKKUR FÆRÐU GJAFAVÖRUR í SÉR-
FLOKKI:
• Postulín, gler- og leirvörur, þ.á.m. konung-
lega danska postulínið með jólaplatta og
fyrstu jólabjölluna.
• Plaggöt og myndir, t.d. hljómsveita- og leik-
aramyndir og smelluramma íöllum stærðum.
• Stjörnumerkjaplattana vinsælu og viskuplatta
sem vekja umræður og umhugsun.
• LUNDINA furuhillur og ódýr basthúsgögn.
• Komið og gerið verðsamanburð.