Víkurfréttir - 01.11.1984, Qupperneq 18
18 Fimmtudagur 1. nóvember 1984
VÍKUR-fréttir
Lifandi blað
ÞAKKARÁVARP
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og
velvild okkur til handa á gullbrúökaups-
degi okkar, 29. september sl., sem verður
okkur ógleymanlegur. Lifið heil.
Kær kveója.
MARTA EIRÍKSDÓTTIR og
ÓLAFUR INGIBERSSON,
Miðtúni 1, Keflavik
Rekstrarstjóri
Umsóknarfrestur um stöðu rekstrarstjóra
við Sorpeyðingarstöð Suðurnesja, sem
auglýst var laus til umsóknar í Víkur-frétt-
um 4. okt. sl., erframlengdurtil 15. nóv. n.k.
Leitað er eftir laghentum manni til að
stjórna rekstri og viðhaldi Sorpeyðingar-
stöðvarinnar. Helst vönum stjórnun og
eigin frumkvæði, sem getur hafið störf fljót-
lega.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, óskastsend-
ar Eiríki Alexanderssyni, Brekkustíg 36,
230 Njarðvík, sem gefur nánari upplýs-
ingar.
Stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
ÚTBOÐ
Flugstöð
á Keflavíkurflugvelli
Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkur-
flugvelli óskar eftir tilboðum í skolplögn og
vatnsveitu vegna flugstöðvarinnar.
Verkið nær til tveggja aðskildra verkþátta
og má bjóða í annan hvorn eða báða.
a) Skolplögn um 6,8 km að lengd frá flug-
stöð til sjávar skammt sunnan við Staf-
nes. Vídd lagnar 45 cm.
b) Vatnsveitu um 3,8 km að lengd frá flug-
skýli B 885, norðan núverandi flug-
stöðvarbyggingar, að nýju flugstöðinni.
Vídd röra 300 mm.
Ljúka skal verkinu 1. september 1985.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Varn-
armáladeildar utanríkisráðuneytisins að
Skúlagötu 63, Reykjavík, frá og með
fimmtudeginum 25. október 1984 kl. 09:00,
gegn kr. 10.000 skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til byggingarnefndar
eigi síðar en fimmtudaginn 15. nóvember
1984 kl. 14:00.
Reykjavík, 24. október 1984.
Byggingarnefnd flugstöðvar
Hvers vegna svarar lögreglan
ekki talstöðvarútkalli?
Lengi hefur veriö hamraö
| á því aö fyrstu minúturnar
geti skipt sköpum varðandi
björgun fólks úr slysum. Er
þá átt viö aö fyrstu viðbrögð
séu hin einu réttu, þ.á.m. að
tilkynna strax um slysið.
Með þetta í huga gripum við
sem komum fyrstir að um-
ferðaróhappi í Njarðvík fyrir
stuttu, til talstöðvarinnar og
kölluðum á lögregluna á FR
rás 17, sem er þeirra hlust-
unarrás.
En þrátt fyrir það að við
kölluðum og kölluðum,
svaraði hvorki lögreglan í
Keflavík né Keflavíkurflug-
velli kalli okkar. Samtvitum
við að þeir hafa FR-stöð
uppi á vegg hjá sér, sem að
sjálfsögðu á að vera opin.
Hins vegar svaraöi lögregla
á höfuðborgarsvæðinu
okkur, en þar sem símsam-
band milli staða var mjög
slæmt, gátu þeir ekki komið
boðum. Að lokum tókst að
kalla á lögreglu og sjúkra-
bíl í gegnum hið slæma
símakerfi okkar Suður-
nesjamanna, en þá höfðu
dýrmætar mínútur farið for-
görðum.
Því vil ég fá svar við þeirri
fyrirspurn, hvers vegna lög-
reglan í Keflavík svarar ekki
neyðarköllum á FR rás 17?
Og hvers vegna eru þeir
með talstöðina uppi á vegg
hjá sér fyrst þeir hlusta ekki
á hana?
FR-félagi
Rásin misnotuð, og
því ekki notuð
sem skyldi
Vegna bréfs ,,FR-félaga“
hafði blaðið samband við
lögregluna í Keflavík og
spurði um notkun átalstöð-
inni og rás 17. Var spjallað
almennt um notkun rásar-
innar, en ekki sérstaklega
umrætt atvik, sem bréfritari
tekur fyrir.
Leikfélagið
æfir í
Hollywood
Hann er eflaust ekki til, sá
sem veit ekki hvar Holly-
wood á íslandi er. Auðvitað
Hafnirnar. Nú er óhætt að
segja að staðurinn standi
undir nafni, því Leikfélag
Keflavíkur æfir nú í barna-
skólanum á staðnum leik-
ritið,,Fjölskyldan“ eftir
Claes Anderson, undir
stjórn Ásdísar Skúladóttur.
Með eitt aðalhlutverkið
fer sjálfur Rikki úr Höfn-
unum.
Eins og oft áður hefur
gengið mjög illa að fá sýn-
ingarhúsnæði, því allir
hugsanlegir og óhugsan-
legir staðir í Keflavík og
Njarðvík eru uppteknir.
Að þessu sinni verður þó
sýnt í Staþanum, og verður
frumsýning 11. nóvember.
g.ben.
Kom fram að stöðin er
yfirleitt opin m.a. vegna
þess að fjárgæslumaðurinn
á Reykjanesbraut er í beinu
sambandi við lögregluna á
þessari rás. Hins vegar
hefur borið mikið á ónæði á
rásinni sem m.a. orsakar
það að hlustvarsla verður
oft minni. FR-félagar
notuðu þessa rás sem al-
menna talrás og eins væri
mikið um sterkar stöövar
sem væru ,,upptjúnaðar“ og
heyrðist í gegnum margar
rásir í þeim. Þetta hvort
tveggja orsakaði það aö
stundum væri dregið niður í
stöðinni, því lögreglan
hefur annað gera en að
hlusta á tal ýmissa talstöðv-
areigenda.
Þá veit blaðamaður að
ýmsir talstöðvareigendur
þurfa, þegar þeir eru
komnir í ölvunarástand, að
kalla í lögregluna til þess
eins að röfla. Eins er hon-
um kunnugt að mikið er um
að tæki frá sólbaðsstofum
trufli rásir 15-18 með
ákveðnum hljóðum, en
þessi tæki koma inn ásömu
tíðni og talstöðvar.
Á þessu sést að af bæði
tæknilegum ástæðum sem
og af misnotkun talstöðvar-
eigenda, er hlustunarvarsla
kannski ekki sem skyldi.
Verður því að lagfæra þessi
atriði ef bæta á ástand þess-
ara mála. - epj.
Hvort hlusta þessir á rás 17 eða rás 2?
Skrifstofustarf
Fyrirtæki í Keflavík óskar að ráða starfs-
kraft á skrifstofu fyrir hádegi. Umsóknir
sendist Víkur-fréttum, Hafnargötu 32,
merkt „Dugleg og stundvís“, fyrir 6. nóv-
ember n.k.
Vanan stýrimann
sem leyst getur af skipstjóra, vantar á 30
tonna línubát frá Keflavík. Upplýsingar
gefnar í síma 1351.
Kvenfélag Keflavíkur
Hátíðarfundur í tilefni 40 ára afmælis
félagsins verður haldinn laugardaginn 3.
nóvember n.k. kl. 15 á Glóðinni.
Félagskonur eru hvattar til að taka þátt í
hátíðinni.
Stjórnin
Kælitækjaviðgerðir
M.a. viðgerðir á ísskápum og frystikistum.
GÍSLI WÍUM
Hátúni 11, Keflavík, sími 92-2598