Víkurfréttir - 21.11.1985, Page 13
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 21. nóvember 1985 13
„Við krefjumst
þess að þetta
verði lagað“
Hafnamenn óánægðir með
þjónustu Hitaveitu Suðumesja
varðandi tíðar rafmagns-
bilanir um síðustu helgi
Frá því um kl. 16 á föstu-
dag og fram til kl. 6.30 sl.
mánudagsmorgunn fór
Reykjaneslínan, þ.e. sú sem
þjónar Höfnum, út a.m.k.
15-20 sinnum. I Höfnum
kynda margir upp með raf-
magni auk þess sem vatns-
dæla hreppsins er knúin
með þeirri orku og því urðu
sumir að búa við það að
hafa hvorki rafmagn , hita
né kalt vatn.
Einn þeirra Hafnabúa
sem eru að vonum óánægð-
ir með þetta er Björgvin
Lúthersson, stöðvarstjóri
Pósts og síma, en hann er
búsettur í Höfnum. Hann
hafði þetta um málið að
segja:
„Eftir að rafmagnið fór
kl. 16áföstudagnáðumvið
ekki í neinn til að gera við
bilunina. Síðan tókst okkur
að ná sambandi við einn
starfsmann Hitaveitu Suð-
urnesja og þrátt fyrir að
hann hafi ekki verið settur
inn í þessi mál reyndi hann
að bjarga okkur eins og
hægt var. En á meðan voru
þeir sem sjá áttu um þessi
mál á fundi inni í Reykja-
vík.
Dæmi er um að fólk sem
notast við rafmagnshita,
hafi orðið að klæða börn sín
ofan í rúm vegna kulda. Þá
notumst við við rafmagns-
vatnsdælu og því var meira
og minna vatnslaust á
l
Hrikalcgt ástand var í Höfnum um sl. helgi vegna rafmagnsbilana.
kalda vatninu. Bjuggum
við því við þrenns konar
vanda, rafmagnsleysi, hita-
leysi og kaldavatnsleysi af
þessum orsökum.
Það vildi svo vel til að við
höfðum símann í góðu lagi,
vegna þess að ég var ný-
búinn að skipta um alla
geyma, sem dugðu í 15-18
tíma, en vegna þess hve raf-
magnið fór oft af jaðraði við
að það dygði ekki.
Þó við búum aðeins 10
km frá Njarðvík er þetta
ekkert betra en í svörtustu
Afríku. Er því ekki hægt að
bjóða upp á slíkt öryggis-
leysi. Það er engin afsökun
að Rafmagnsveitur ríkisins
hafi skaffað þetta svona,
því menn eiga að ganga
með línunni ef bilun kem-
ur upp. Það veit ég samkv.
reynslunni frá Pósti og
síma, enda gerum við það,
þar sem neyðarástand er
eins og var í Höfnum, auk
þess sem sett er vakt á stað-
inn. Þá var veðrið oft ekki
það slæmt að ekki mætti
laga þetta. Það erekki hægt
ef það er fárviðri, en þó það
séu 6-8 vindstig þegar raf-
magnið fer, má alveg gera
við.
Gerum við Hafnabúar
því skýrar kröfur til þess að
þetta verði lagað og að þeir
sem eru á vakt verði settir
inn í þessi verkefni, því sá
sem bjargaði okkur gerði
það uppá sitt einsdæmi að
setja rafmagnið inn hvað
eftir annað“, sagði Björg-
vin að lokum.
Vegna þessa höfðum við
samband við Jóhann Lín-
dal, rekstrarstjóri há-
spennusviðs hjá Hitaveitu
Suðurnesja. Hann hafði
þetta um málið að segja:
„RARIK er með samn-
ing við Hitaveitu Suður-
nesja um eftirlit og viðgerð
á línunum fram til
áramóta. Skiptir það því
engu þó við höfum verið á
ráðstefnu í Reykjavík
þegar bilunin kom fram.
Því megum við ekki koma
nálægt þessum línum frá
RARIK fyrir áramót og því
ekki við okkur að sakast.
Við settum Reykjaneslín-
una þó inn 15-20 sinnum
og hún fór alltaf út aftur á
svona hálftíma fresti, vegna
bilunar sem á henni var.
RARIK var við stórvið-
gerð á hinni línunni ofan
við Garðabæ, en þar fóru
fjórar stæður. Þeir vissu af
þessu og að við værum að
halda þessu í gangi hérna.
Við höfum farið fram á að
þeir tækju tvo menn frá
okkur inn í sinn hóp til að
setja þá inn í þessi mál
hérna, en þeir telja sig ekki
tilbúna til þess strax“, sagði
Jóhann Líndal. - epj.
$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$
GJALDEYRISÞJÓNUSTA
ÖLL ALMENN
GJALDEYRISÞJÖNUSTA:
Gjaldeyrisreikningar
Ferðatékkar
Námsyfirfærslur
Erlendar ávísanir
GREIÐUM NÚ EFTIRFARANDI
VEXTI AF
GJALDEYRISREIKNINGUM:
Innistæður í Bandaríkjadölum. 8%
Innistæður í Sterlingspundum .... 12%
Innistæður í V-þýskum mörkum ... 5%
Innistæður í dönskum krónum .... 10%
a
Q'
CQ
Q'
UÍRZLUNflRBflNKINN
- VÚtKUt fl&l ! Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - Sími 1788
<D<D<D<D<D<D<D<D<D<D<D<D
«J)tJ)«J)«J)tJ)«J)tJ)«J)«J)tJ)«J)«J)«J)«J)«J)«J)«J)«J)«J)tJ)tJ)«J)«J)4)«J)«J)«J)«J)tJ)«J)tJ)4)4)4)4)4)tJ)