Víkurfréttir - 21.11.1985, Blaðsíða 18
18 Fimmtudagur 21. nóvember 1985
VfKUR-fréttir
Foreldrafélag Tjarnarsels stofnað
Þann 28. okt. sl. var
haldinn í Holtaskóla stofn-
fundur Foreldrafélags
Tjarnarsels. Vill stjórn fé-
lagsins beina því til for-
eldra barna sem dvelja á
Tjarnarseli, að þau sýni
þessu nýstofnaða félagi
áhuga og komi hugmynd-
um sínum varðandi dag-
heimilið á framfæri við full-
trúa sinna deilda.
Nánari upplýsingar
verða í væntanlegu frétta-
bréfi sem sent verður til for-
eldra á næstunni.
(Fréttatilkynning)
Góð ferð til Glasgow
Verkalýðsfélögin efna í samvinnu við Samvinnuferðir-Land-
sýn til smellinnar verslunar- og skemmtiferðar til Glasgow
dagana 7.-10. des. n.k. - Verð pr. mann 12.350. -
Innifalið er hótel, morgunmatur, ferðir til og frá hóteli og
flugvallarskattur. - Bókanir þurfa að berast fyrir 26. nóv. n.k.
á skrifstofu félagsins, í síma 2085.
ATH: Verð miðasi við að næg þátttaka fáist.
Verkalýðs- og sjómannafélag Verkakvennafélag Keflavíkur
Keflavikur og nágrennis og Njarðvíkur
Færeyingar,
Suðurnesjum
Matarveisla og skemmtikvöld Færeyja-
klúbbs Suðurnesja verður haldinn í Gróf-
inni, laugardaginn 30. nóv. n.k. kl. 20.
Gestir velkomnir.
Miðasala stendur yfir til 24. hjá Jonnu í
síma 1078 og Eskhild í síma 7559. Eftir 24.
nóv. verða miðarnir seldir öðrum.
Jólaheilsur verða teknar upp í húsi Versl-
unarmannafélags Suðurnesja sunnudag-
inn 24. nóv. 1985 kl. 15.
Færeyjaklúbbur Suðurnesja
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Innritun nýnema
P Vorönn 1986
Innritun fyrir nýnema á vorönn 1986 fer
fram á skrifstofu skólans og lýkur föstu-
daginn 20. desember 1985.
Öldungadeild
Vorönn 1986
Þeir nemendur sem nú stunda nám í öld-
ungadeild, eru beðniraðgangafrávalisínu
fyrir næstu önn, dagana 25.-29. nóv. n.k.
Nýir nemendur í öldungadeild eru beðnir
að skila skriflegum umsóknum áskrifstofu
skólans, Sunnubraut 36, Keflavík, í síðasta
lagi föstudaginn 20. desember 1985.
Skólameistari
„Skósuðarar" sperrtir og
vel skóaðirá stofnfundinum
á Glóðinni. Á neðri mynd-
inni má sjá nýskipaða stjórn
félagsins.
Smáauglýsingar
fbúð óskast
Óskaeftir2ja-3jaherb. ibúð
í Keflavík eða Njarðvík.
Uppl. í síma 1929.
íbúð óskast
Óskaeftir2ja-3jaherb. íbúð
helst nálægt Heiðarhverfi.
Uppl. í síma 2217.
Herbergi óskast til leigu
á kyrrlátum stað, með að-
gangi að eldhúsi, tímabilið
jan.-maí. nánari uppl. hjá
Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, sími 3100.
Hús til leigu
Einbýlishús á tveimur hæð-
um til leigu. Laust nú þegar.
Tilboð leggist inn á
afgreiðslu Víkur-frétta.
Til sölu
Spectrum plús tölva með
nokkrum leikjum. Uppl. í
síma 2314.
Til sölu
nýlegur barnavagn. Uppl. í
síma 3343.
Til sölu
Ignis frystikista, 280 lítra, 2
notuð vetrardekk 12x155,
grjótgrind á Daihatsu Char-
ade, tvö útvarpstæki og
svalavagn. Selst ódýrt.
Uppl. í síma 3829.
Tapað - Fundið
Kvenpils fannst á Smára-
túni mánudaginn 18/11.
Uppl. í síma 3805.
Helgar-
sportið
Nágrannaslagur
í Ljónagryfjunni
Stórleikur verður á „fjöl-
um“ ljónagryíjunnar í
Njarðvík annað kvöld. Þá
eigast við nágrannarnir
UMFN og ÍBK i úrvals-
deild körfuboltans og hefst
leikurinn kl. 20.
A sama tíma leika í Sand-
gerði lið Reynis og Stúd-
enta í 1. deild körfuboltans.
Eitthvað hlýtur að hafa
brenglast í niðurröðun hjá
KKI úr því þessirleikireru
á sama tíma.
SKÓSUÐ
- Félag skólastjóra og yfirkennara
á Suðurnesjum stofnað
Skólastjórar og yfirkenn-
arar í grunnskólum á Suð-
urnesjum auk Fjölbrauta-
skólans hafa stofnað með
sér félag og nefnist það
SKÓSUÐ.
Formlegur stofnfundur
var haldinn á Glóðinni sl.
fimmtudag 14. nóv. Til-
gangur félagsins er fyrst og
fremst að auka tengsl og
samskipti skóla á Suður-
nesjum. I öðru lagi að gera
stjórnendum skóla kleift að
fylgjast með nýjungum í
skólamálum.
Fyrstu _ stjórn skipa:
Hjálmar Arnason, skóla-
meistari F.S., sem er for-
maður, og meðstjórnendur
Halldóra Ingibergsdóttir,
yfirkennari Grunnskóla
Njarðvíkur, og Guðjón
Kristjánsson, skólastjóri
Grunnskóla Miðneshrepps.
„Með stofnun félagsins
ætti að vera auðveldara að
gera samskipti skólanna
markvissari með hags-
muni þeirra í huga“, sagði
Hjálmar Arnason, formað-
ur félagsins, í samtali við
blaðamann Víkur-frétta.
pket.
Lausar stöður
Nokkrar stöður lögreglumanna eru lausar
til umsóknar.
Stöðurnar veitast frá 1. janúar n.k. Um-
sóknareyðublöð fást hjá yfirlögregluþjóni
og lögreglustjórum um land allt.
Umsóknir ásamt tilskildum fylgiskjölum
skulu hafa borist skrifstofu minni eigi síðar
en 10. desember n.k.
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli
15. nóvember 1985