Víkurfréttir - 05.12.1985, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 5. desember 1985
VIKUR-fréttir
KF l r^1 LANDSHANKX ÍSLANDS
tsfomwxsijmim iaaaaa^ 9 ke úíOsmíKs:;
Z~Ælav •n‘Vn
Q1Í4Í75* 10<
Alþýðubankinn hf _
Stri-í I.. /»»»..
KE ÉdaBgaitaiaiSa foaamiiaj ffiS‘
D 33 /' 06)1135 laptð*7
— —nmdh&fi,-________
XVsþáwii
teéðiil* 10< 0«Q12t>
MJ11JJ. 10< OiMi«> QOOðOZOUt
4jfr 3PAR1SJÓDUR
#\> REYKJAVIKUROG NÁGRF.NNIS
i^awgwyBgil;
KE !ÍMa»jyíl>ítiti21 Aelujiila n
® "j2££ . 0281201 E
<*r»,
Cfrii—— ■ —
f- V-tíx.SJL.
Athyglisvert er hve Útvegsbankinn er með hátt hlutfall innistæðu-
lausra ávísana. Hver skyldi ástæðan vera?
Hver er staða þín, ef þú tekur
við innistæðulausri ávísun?
Svara leitað hjá verslunarmanni, lögreglu,
bankamönnum og lögfræðingi
Ingólfur Falsson hjá Að-
alstöðinni, hafði þetta um
málið að segja:
„Að undanförnu hefur
orðið mikil fjölgun á
gúmmíávísunum, og sem
dæmi þar um urðum við að
innleysa slíka tékka upp á
tæpar 50 þús. kr. sl. hálfan
mánuð. Þegar við fáum
þessa tékka til baka er
bankinn oftast búinn að
hringja eða gera tilraun til
þess að ná í útgefendur, án
árangurs. Við reynum síðan
sömu aðferð, en ef það tekst
ekki þá sendum við málið
lögfræðingi til innheimtu.
Við erum löngu hættir að
senda þessa tékka til lög-
reglunnar, því það þýðir
ekkert. Sem dæmi þar um
má nefna að nýlega fengum
við tékka frá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins sem
sendur hafði verið til þeirra
1978 og var þá upp á kr.
7.905, en nú fengum við sjö-
tíu og níu krónur og fimm
aura, þ.e. vegna myntbreyt-
ingarinnar, en án allra
vaxta. í alltof mörgum til-
fellum verðum við að bera
skaðann af því að hafa tekið
við þessum tékkum, því ár-
angur af innheimtuaðferð-
um verður enginn. Er þá
undir hælinn lagt hvort
eitthvað greiðist upp í kröfu
okkar eða ekki. Sleppa
bankarnir því alltof vel út
úr þessu, þrátt fyrir að þeir
sannprófa það ekki hvort
sá aðili sem fær að gefa út
ávísanir hjá þeim, sé á
svörtum lista . í öðrum
banka eða ekki. I slíkum til-
fellum eru bankarnir
ábyrgir fyrir tékkaviðskipt-
um, en þeir koma því alltaf
á okkur, sem tökum við
þessum tékkum“.
John Hill, lögreglufull-
trúi í Keflavík, sagði að
mikil aukning hefði orðið í
útgáfu innistæðulausra
tékka. Sem dæmi þar um
hefði lögreglan kært 189
aðila fyrir slíkt á sl. ári.
Væri þetta ekki síður kven-
fólk en karlar, sem stund-
uðu þessa útgáfu. í þeim
málum sem kæmu til lög-
reglunnar væri það áber-
andi að bankarnir slyppu
vel út úr þessum en að sjálf-
sögðu ættu þeir að krefjast
tryggingavíxils við úthlut-
un tékkaheftis, eins og
þegar um kreditkort er að
ræða.
Vegna misskilnings sem
oft gætti hjá aðilum, vildi
John Hill benda á að það er
aðeins hlutverk lögreglu að
rannsaka og innheimta
fyrir lögbrotið, en ekki að
innheimta ávísunina sem
slíka.
Grétar Grétarsson hjá
Sparisjóðnum og Elías Jó-
hannsson í Utvegsbankan-
um voru báðir sammála um
það að ef einhver ætti
tékkareikning, sem lokað
væri vegna vanskila, ætti
ekki að vera hægt að opna
slíkan reikning í öðrum
banka. Ef banki leyfði opn-
un á slíkum reikningi þrátt
fyrir að viðkomandi væri
kominn á bannlista, tæki
viðkomandi stofnun alla
ábyrgð á sig og sæti því
uppi með þá innistæðu-
lausu tékka sem gefnir
væru út án innistæðu.
Elías sagði ennfremur:
„Sú tékkalöggjöf sem nú
er farið eftir er meingölluð.
Þar sleppa bankarnir alltof
vel út úr þessu, þeir eiga að
bera meiri ábyrgð á útgáfu
innistæðulausra tékka, en
sá sem lokað er hjá fer á
svartan lista hjá öllum
lánastofnunum og er þar í 2
ár. Getur sá hinn sami lent í
vandræðum ef hann þarf á
einhverri fyrirgreiðslu að
halda hjá bönkunum. Ættu
menn því að komast hjá því
að lenda í vanskilum á
tékkareikningum“. Þá
benti Elías á að það sem af
væri þessu ári hefði Utvegs-
bankinn lokað 60 tékka-
reikningum vegna van-
skila. Samt væru vanskil
álíka og á sama tíma í fyrra.
band við Vilhjálm H. Vil-
hjálmsson, lögmann, og tók
hann undir þau orð, að
ábyrgð bankanna væri
alltof lítil og í raun væru
mál þannig, að sá sem fyrst
tæki við innistæðulausum
tékka, sæti uppi með hann.
I svörum þessara aðila
má sjá að hér er um alvar-
legt mál að ræða, sem er
mjög laust í reipunum og
varpar í raun fram þeirri
spurningu, hvort ávísanir
séu ekki í raun 2. flokks
gjaldmiðill. Þessa spurn-
ingu lagði blaðamaðurfyrir
Elías Jóhannsson, og svar-
aði hann á þessa leið: ,,Ef
þú tekur við greiðslu með
ávísun, átt þú að taka fram
á kvittuninni að greitt sé
með ávísun. Ef engin inni-
stæða er fyrir ávísuninni
fellur greiðslan sem slík
niður, þ.e. ávísunin fellur
úr gildi og varan telst því
ógreidd. Fyrir seljandann
er það betra að innheimta
viðkomandi reikning,
heldur en að standa uppi
með innistæðulausa ávís-
un“.
Að lokum hafði blaðið
samband við Símon
Ólason, fulltrúa hjá bæjar-
fógeta. Hann sagði að
öllum málum sem embætt-
ið fengi í hendur, væri vísað
til Ríkissaksóknara. I ein-
stökum tilfellumlegðihann
til að málinu væri lokið með
dómsátt, þ.e. ef viðkom-
andi er búinn að gangast
við brotinu og greiða það
sem honum ber. - epj.
Mikið úrval.. .
^kobúdín f^eflavík
HAFNARGATA35
. . . af kuldaskóm.
Jólaskór á börnin, ódýrir og fallegir.
Spariskór á dömur og herra.
Jólatilboð
Allar úlpur og
jakkar með
20% afslætti.
Stendur fram
á sunnudag.
CURQCARD
VISA
1
Sandgerði Sími 7415
OPIÐ ALLA DAGA TIL KL. 23.30
Einnig hafði blaðið sam-
Já, hver vill kaupa þessar ávísanir. - Auglýsing í búðarglugga.