Víkurfréttir - 05.12.1985, Page 10
10 Fimmtudagur 5. desember 1985
VÍKUR-fréttir
Kertastjakar
Handunnir úr gleri.
-
Nýbreytni hjá öldruðum
Styrktarfélag aldraðra hefur tekið upp þá nýbreytni í annars fjöl-
breyttu starfi fyrir aldraða, að bjóða upp á brennsluofn fyrir þá sem
eru í keramikinu. Á myndunum sjást aldraðir að störfum við kera-
mikið á Suðurgötunni í Keflavík. - epj.
Enginn
JO
a r/
tTTJR
- því jólafötin fœrðu
fin hjá okkur.
Skyrtur, buxur, peysur, skór,
jakkaföt, stakir jakkar, frakkar,
leðurjakkar, og svo auðvitað. . .
bindi, slaufur, belti og trefla.
Nú segjum við smá stopp og
Ijúkum þessari upptalningu með
því að segja ykkur frá jogging-
göllunum. Þeir passa vel í mjúku
pakkana og eru ofsalega fallegir.
r
P. S. I nœsta blaði sýnum við ykkurþetta á myndum.
EUROCAPD
vrsA
Po/ehJon
í bak
og fyrir
eftir Guðmund
Finnbogason
Guðmundur fræðimaður
úr Njarðvíkum hefúr sent
frá sér nýja bók, „I bak og
fyrir“, frásagnir af Suður-
nesjum. Áður hafa komið
út tvær bækur eftir Guð-
mund, Þættir frá Suður-
nesjum og Ljóð.
I þessari nýju bók segir
m.a. frá Eyjólfi í Króki og
konu hans Guðnýju. Þá er
Jórunn Jónsdóttir og Helgi
Ásbjörnsson allmikið á
dagskrá og gestur þeirra,
Friðrik Hansen, síðar
skólastjóri á Sauðárkróki,
en hann var eins og eflaust
margir vita ágætt skáld.
Hann var á sokkabandsár-
um sínum til sjós á Suður-
nesjum. Guðmundur birtir
þarna töluvert af tækifæris-
vísum eftir Friðrik frá þess-
um árum. Átakanleg saga
er af Rósu Jónsdóttur, sem
Guðmundur segir að hafi
verið síðasta manneskja í
Njarðvíkum, sem sett hafi
verið niður á sveit.
All ítarlegar eru frásagn-
ir hafðar eftir föður Guð-
mundar, Finnboga Guð-
mundssyni.
Guðmundur Finnboga-
son hefur hin síðari ár búið
á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Hann er góður hagyrðing-
ur og mikill ættfræði-
grúskari. Oskandi er að
honum endist aldur til frek-
ari fræðistarfa.
Hilmar Jónsson
95 ára
á morgun
Á morgun, föstudag 6.
desember, verður Oddur
Pálsson 95 ára. Hann er nú
vistmaður á dvalarheimil-
inu Garðvangi, Garði.
Flytur á
flugvöllinn
Á hluthafafundi í Bíla-
leigu Suðurnesja hf., sem
haldinn var 15. okt. sl., var
ákveðið að færa varnarþing
og heimili fyrirtækisins frá
Njarðvík til Keflavíkur-
flugvallar. Birtist auglýs-
ing þess efnis nýlega í Lög-
birtingarblaðinu. - epj.
Víkur-fréttir
vikulega.
Jólafundur
Sálarrannsóknarfélag Suð-
urnesja heldur almennan
jólafund í húsi félagsins,
Túngötu 22, Keflavík, n.k.
laugardag 7. nóv. kl. 15.
Gestir fundarins verða sr.
Árelíus Nielsson og Guð-
mundur Krlstinsson frá Sel-
fossi. - Kaffiveitingar.
Stjórnin
Keflavíkur-
kirkja
Sunnudagur 8. des.:
Sunnudagaskóli kl. 11.
Munið skólabílinn.
Æskulýðs- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 14. Vænst
er þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra.
Tónleikar kórs Keflavíkur-
kirkju í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju kl. 17.
Sóknarprestur