Víkurfréttir - 05.12.1985, Side 21
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 5. desember 1985 21
Alyktun Alþýðubandalagsfélags
Keflavíkur og Njarðvíkur:
Ríkisstjórnin úrræða-
laus í atvinnumálum
Eftirfarandi ályktun var
samþykkt á aðalfundi Al-
þýðubandalagsfélags Kefla-
víkur og Njarðvíkur, sem
haldinn var nýlega:
,,Aðalfundurinn lýsir
vanþóknun sinni á þeirri
stjórnarstefnu er Framsókn
og Sjálfstæðisflokkurinn
standa að, þar sem féhyggja
er tekin fram yfir felags-
hyggju.
Ríkisstjórnin er að festa
lá^launastefnu í sessi með
nánu samstarfi við atvinnu-
rekendasamtökin. Mill-
jarðar króna hafa verið
fluttar frá launamönnum,
öldruðum og fötluðum til
milliliða. Á sama tíma hafa
erlendar skuldir þjóðarinn-
ar stóraukist, um 3,5 mill-
jarða á sl. ári.
Ríkisstjórnin er búin að
koma fjölda ungs og dug-
mikils fólks á vonarvöl með
viðhaldi óhagstæðra láns-
kjara. Húseignir fólks
brenna upp á báli bankavið-
skipta a sama tíma og
bankar, lánastofnanir og
jafnvel okrarar blómgast í
skjóli ríkisvaldsins.
Ríkisstjórnin er úrræða-
laus í atvinnumálum,
undirstöðuatvinnuvegur
þjóðarinnar, sjávarútvegur-
inn, stendur á brauðfótum.
Ríkisstjórnin kærir sig ekki
um að leita nýrra leiða til
úrbóta. Lítið ber á nýjum
atvinnutækifærum, á sama
tíma aukast hernaðarfram-
kvæmdir stórlega.
Aðför hefur verið gerð
að menntakerfi landsins og
heilbrigðiskerfið er í hættu.
Láglaunastefnan kemur
harðast niður á börnunum,
langur vinnudagur beggja
foreldra og ónóg dagvist-
unaraðstaða perir börnin
hornreka. Slík uppeldis-
skilyrði geta oft haft
hörmulegar afleiðingar.
Á sama tíma er réttar-
kerfinu beitt óspart gegn
launþegahreyfingunni og
einstaklingum ef þurfa
þykir.
Forsætisráðherra boðar
óbreytta stefnu næstu 3
árin.
Vill Alþýðubandalagið í
Keflavík og Njarðvík
hvetja allt félagshyggjufólk
til að standa saman, gegn
ógn þeirri við lífsskilyrði
alþýðu landsins, sem í
stefnu þessari felst.“
(Fréttatilkynning)
Efnileg
hljómsveit
Fimmtudagskvöldið 14.
nóvember hélt hljómsveit-
in Ofris hljómleika í Holta-
skóla. Hljómsveitina skipa
Þröstur Jóhannesson (gítar
og söngur), Magnús Einars-
son (bassa), Helgi Víkings-
son (trommur) og Krist-
mann Kristmannsson
(hljómborð o^ söngur).
Þröstur, Magnus og Helgi
eru Keflvíkingar en Krist-
mann er Sandgerðingur.
Svo við snúum okkur að
hljómleikunum þá voru
þeir mjög góðir. Um 80
manns biðu eftir að þeir
félagar tækju sér stöðu við
hljóðfærin. Þegar fyrsta
lagið barst yfir salinn,
þustu margir út á gólfið og
hoppuðu í takt við tónlist-
ina. Síðan komu lögin hvert
á fætur öðru. Það sem
einkenndi mest lögin var
boðskapur textanna. Flest
lögin höfðu kristilegan
boðskap. Ekki var að sjá að
því væri illa tekið, því
margir tóku undir sönginn.
Annars var tónlistin mjög
fjölbreytt. Þegarhljómleik-
unum lauk voru flestir ekki
á því að fara enda hljóm-
leikarnir í það stysta. En
vonandi halda þeir félagar
hljómleika fljótt aftur.
Tónlistarunnandi
Við hreinsum
teppi og húsgögn
Við erum með
hreingerningaþjón ustu
Við leigjum út vélar
Teppahreinsun Suðurnesja.
Holtsgötu 31, Njarðvík.
Símar - 4402 - 3952
Slökkvitækja-
þjónusta
Suðurnesja
Kolsýruhleðsla - Dufthleðsla
Viðhald og viðgerðir á flestum
tegundum slökkvitækja
Reykskynjarar - Rafhlöður
Brunaslöngur - Slökkvitæki
Uppsetning ef óskað er.
Viðurkennd eftirlitsþjónusta
handslökkvitækja í bátum og skipum.
Slökkvitækjaþjónusta Suðurnesja
Háalelti 33 - Kellavfk - Slml 2322
Jólagjöfin í ár
fæst í
FRÍSTUND
Holtsgötu 26 - Njarövík
Síml 2006
Hljómtæki
Sjónvörp
Myndbandstæki
Útvarpstæki
Útvarpsklukkur
Tölvur og vasatölvur
VHS og BETA
myndbönd
F: Súper sjónvarp frá XENON, fyrir þá sem vilja
stóra mynd og hljómburðeins og hann gerist bestur.
22” skermur, 40 w. HiFi-stereo hljómmögnun, ein-
stök hljómgæði og þrír glæsilegir úrvalskostir: val-
hnotuviður, hvítt og svart. Þráðlaus fjarstýring fylgir
þessu úrvals tæki. Jólatilboðsverö aðeins kr. 39.900.
Þú færð fleira en þig grunar í FRÍSTUND.
G. Hér kemur ný og glæsileg hljómtækja-
samstæða frá XENON, árgerð 1986. 60
músík-watta magnari með öllum tón-
stillum og 7 banda tónjafnara. Næmt
viðtæki með langbylgju, miðbylgju og
FM-stereobylgju. Vandaöur sjálfvirkur
plötuspilari. Fullkomíö kassettutæki
fyrir króm, ferró og málmkassettur og
hljómgóðir tvigeisla hátalarar. Allt I
glæsilegum viðarskápi með glerhurð.
Bráöskemmtileg og falleg hljómtækja-
samstæða með þráðlausri fjarstýringu á
aðeins kr.
29.900.