Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.12.1985, Side 24

Víkurfréttir - 05.12.1985, Side 24
yfiKun fnUlt Fimmtudagurinn 5. desember 1985 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er aö Hafnargötu 32, II. hæð. - Simi 4717 Breytt deiliskipulag Keflavíkurbæjar Byggingafulltrúinn í Keílavík auglýsti á dögun- um eftir athugasemdum við breytingartillögu að deili- skipulagi á eftirtöldum svæðum: 1. Svæði sem afmarkast af Kirkjuvegi, Tjarnar- götu, baklóðamörkum Aðalgötu og Garðavegi. 2. Svæði á horni Lang- holts og Þverholts. Deiliskipulag er gert fyrir einstök hverfi, bæjar- hluta eða reiti innan ramma aðalskipulags, sem þá nær yfir ákveðið þéttbýli. Að sögn Sveins Núma Vilhjálmssonar, bygginga- fulltrúa, er annað deili- skipulagið sem var auglýst á svæði í gamla bænum. Ráðgert er að byggja tvær sambyggingar fyrir aldr- aða við Kirkjuveg, aðra með 16 íbúðum á fjórum hæðum og hina með 12 íbúðum á tveimur hæðum. Þjónusta fyrir mat, skemmtikvöld og þess hátt- ar fyrir báðar sambygging- arnar verður í húsunum nær Aðalgötu, þar sem 16 íbúðir verða. Keflavíkurbær hefur for- kaupsrétt á öllum húsum á þessu svæði og hefur nú þegar keypt 9 hús og rifið niður 6. Hin sem standa eftir verða rifin síðar, þegar að þeim kemur. Hitt svæðið sem var aug- lýst er á horni Langholts og Þverholts, þar sem gamli vatnstankurinn er. Með tilkomu nýja vatnstanks- ins fyrir ofan Eyjabyggð, sem var tekinn í notkun í haust, verðurgamlitankur- inn notaður til vara. Þrýsti- dælur sem notaðar voru við gamla tankinn og eru staðsettar þar hjá, verða fjarlægðar. Þar með er hægt að nýta svæðið fyrir ný- byggingar og ráðgert er að bygging á íbúðarhúsum hefjist þarna næsta vor. ghj- Lögreglan í Keflavík: Flótti vegna launakjara Átta stöðugildi hjá lög- reglunni af 20 hjá embætt- inu hafa losnað síðastliðin tvö ár. Er talið að mikil óá- nægja með launakjör hjá lögreglunni sé orsök þessa að sögn NT. Er pað síður en svo eins- dæmi að menn flýji lögregl- una vegna lélegra launa, en slíkt hefur einmitt átt sér stað hjá Reykjavíkurlög- reglu að sögn blaðsins. Flestir þeir sem hætt hafa hér syðra teljast til kjarn- ans, þ.e. hafa verið í lögregl- unni í tvö til þrjú ár. Við síðustu samninga- gerð lögreglumanna var aðal launauppbótin fólgin í hækkun á vaktaálagi, en fastakaupið var lítið sem ekkert hreyft. Er því svo komið að menn ná ekki sæmilegum launum nema með mikilli yfirtíð og því hafa margir þeirra frekar valið þann kostinn að fara út á hinn frjálsa vinnumark- að, þar sem heildarlaun eru jafnvel betri og styttri vinnutími. eoi Mikill eldur og reykur var frá hesthúsinu. Ljósm.: pket. íkveikja í hesthúsi Skömmu eftir hádegi sl. sunnudag var Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kvatt út að litlu útihúsi bak við Akurbraut 7 í Innri- Njarðvík. Hafði hús þetta verið notað sem hesthús. Er að var komið var húsið al- elda, en í því var nokkuð af heyi og varð því mikill reykur af. Var húsið látið brenna að mestu undir gæslu slökkvi- liðsins, enda engin hætta á ferðum. Eru eldsupptökfrá leik barna. - epj. Nœsta blað kemur út 12. des. Spurningin: Ertu farin(n) að kaupa jólagjafir? Björgvin Garðarsson: „Já, það er töluvert síðan ég byrjaði á því“. Hrafnhildur Gísladóttir: „Nei, en þó er ég aðeins farin að hugsa út í þær“. María L. Jónsdóttir: „Nei, og ekkert farin að hugsa út í það, hvort ég hef efni á einhverri jólagjöf‘. Snjólaug Hermannsdóttir: „Nei, kannski aðeins, en ég kaupi ekki mjög margar Ungmenni fagna vetri konungi Ljósm. P.Kct.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.