Fréttabréf - 01.12.1983, Blaðsíða 1
^6 ~ZJf
FRETTABREF
1. tbl. 1. árg. 1983
Otzgefandi: Kvennalistinn
Abyrgöarraaöur: Ina Gissurardóttir
Ágætu Kvennalistakonur,
Fréttabréf Kvennalistans hefur nú göngu sína. Þaö
er einlæg von okkar, seni aö fréttabréfinu stöndum, að þaö
megi veröa til þess aö auka samstööu okkar. Samstaðan er
styrkur okkar og aö henni verðum viö aö hlúa.
Tilgangur fréttabréfsins er aö segja fréttir af
starfi Kvennalistans: Störfum þingkvenna, bakhópa,
framkvæmdaráös, þingráðs og Kvennalistakvenna í opinberum
nefndum. Einnig aö miöla fréttum utan af landi og út
á land.
Þær sem ekki komast á fundi eiga aö geta fylgst meö
því helsta sem er aö gerast. Okkur vantar fréttir - ekki
síst frá ykkur, konur utan höfuöborgarsvæöisins. Hvaö
þið eruð að gera og ræöa. Fréttabréfinu er ætlað að
bæta úr sambandsleysi milli landshluta.
Sendið fréttir, fundarboö, hugleiöingar eða annað
efni, helst bréflega. Stuttar fréttir má hringja.
Fréttabréfiö á aö koma út mánaðarlega og efni þarf að
berast meö góöum fyrirvara. Við bjóöum einnig smáauglýsingar
á kr. 100.- (1-30 orö).
Ina Gissurardóttir er starfsmaður Kvennalistans og
hún er við á Hótel Vík, Vallarstræti 4, 101 Reykiavík,
frá kl. 14-18 virka daga. Siminn er 13725.
Fréttabréfið er ódýrara í pósti en venjulegt fundarboð
og sjálfsagt aö nýta þennan kost til hins ýtrasta.
Þetta fyrsta fréttabréf er tilraun. Viö erum aö
þreifa fyrir okkur með tilhögun þess og útlit. Ef þiö
hafið gagnlegar ábendingar um þaö sem betur mætti fara
eru þær vel þegnar.
I von um góða samvinnu sendum við ykkur kínverskt spak-
mæli að leiðarljósi:
Segöu mér, ég hlusta
sýndu mér, ég man
leyfðu mér aö taka þátt, ég skil.
M.S.