Fréttabréf - 01.12.1983, Blaðsíða 13
13.
BAKHÖPUR UM FRIÐAR- OG UTANRlKISMAL
Friöar og uCanríkismálahópur Kvennalistans starfar
eftir þeirri friöarstefnu, sem er aö finna í friðar- og
utanríkismálakafla stefnuskrárinnar og er einkar ljós.
Þar kemur mmta vel fram að viö erum á móti öllum
hernaöarbandalögum, aö við fordæmum allt ofbeldi og viljum
stuðla aö friói alls staðar í heiminum.
Af þeim málum sem þessi bakhópur hefur tekið fyrir
á fundum sínum eru þessi helst:
Samin ályktun fyrir hönd Kvennalistans vegna fundar
15. október s.l. um málefni E1 Salvador.
Fjallað um þingsályktunartillögu nr. 6, um afvopnun
og takmörkun vígbúnaðar. Flutt á Alþingi af fulltrúum
Sjálfstæðisflokksins.
María Jóhanna Lárusdóttir, sem er í hópnum, var full-
trúi Kvennalistans á ráðstefnu Lífs og lands um friðar
og afvopnunarmál sem haldinn var laugardaginn 22. október
á Hótel Borg.
Fjallað um olíuhöfn og birgðastöð í Helguvík.
Nú er verið að afla gagna um þróunaraðstoð Islendinga
í þriðja heiminum með sérstöku tilliti til kvenna og
barna.
Allar þær konur er tíma og áhuga hafa eru velkomnar í
hópinn.
Leslisti liggur frammi á Vík.
Guðrún H.
Ingibjörg K.
FULLTROAR KVENNALISTANS I NEFNDUM A VEGUM ALÞINGIS
Húsnæöismálastjórn - Kristín Blöndal
Samstarfsnefnd Alþingis og Kirkju - Guðrún Olafsdóttir
Otvarpsráð - Elínborg Stefánsdóttir
Iþróttasamband Islands - Margrét Bjarnadóttir
ÍEskulýðsráð Islands - Guðrún Sæmundsdóttir
Sameinuðu þjóðirnar - Kristín Astgeirsdóttir
'm