Fréttabréf - 01.07.1984, Qupperneq 3
Næsta tbl. Veru - septemberblað - mun fjalla um
konur oq qeóveiki. Það er mál sem brennur á mörgum konum
og liklegt að niðurstaóan verði heldur hrikaleg.
Auk þess veröur fjallað um kjör kvenna, auk fastra
dálka t.d. þingmálasióur, borgarmálasíóur, menningarþáttur,
lesendabréf, erlendar fréttir o.fl. Nýir þættir hefja
göngu sina s.s. "Skrafskjóðan" sem 4 konur_skiptast á að
skrifa. Rúsinan i pylsuendanum verða svo ýmsar greinar
um allt milli himins og jarðar sem konum og kvennabaráttu
tengist á einhvern hátt.
Ritnefndarfundirnir eru öllum opnir og á 1. hæð
Kvennahússins hangir uppi tilkynning um hvenær þeir eru.
Endilega, fylgist þið með og mætið á fundina hvenær sem
ykkur lystir.
Við biðum lika spenntar eftir greinum, ljóðum,
smásögum, lesendabréfum o.fl o.fl. Og eflaust kannist
þió við eftirfarandi: Þvi fleiri semskrifa i Veru, þvi
fjölbreyttari og betri verður hún, þvi fleiri lesa hana,
þeim mun meiri verður útbreiðslan o.s.frv. Og hafið það
i huganum, elskurnar.
í ritnefnd eru: Guðrún Jóns, Gyóa Gunnars, Helga
Thorberg, Malla Scram, Margrét Rún, Sólrún Gisla og
Sigrióur Sveins.
Starfsmenn Veru eru: Hólmfríður (dreifing, auglýsingar)
og Sonja Jóns (alt mulig kvinde).
Mrún.
P.S. Þarnæsta tbl. (sem kemur út i okt-nóv) mun fjalla
um konur og ást, t.d. móðurást, ást milli karls og konu,
ástir tveggja kvenna, mismunandi sambúðarform, hvernig
verkaskipting kynjanna inni á heimilunum stendur i staö
i nafni ástarinnar o.fl. o.fl. Ástin getur verið þrælpólitiskt
efni. En ástæóan fyrir valinu á þessu þema öðru fremur er
sú að með þessu blaði ætlum við að hefja auglýsingaherferð
og við héldum að allir gætu haft áhuga á þessu efni, þá
sérstaklega hvernig kvenréttindakerlingar meóhöndla ástina.
Við ætlumað láta gera leikna sjónvarpsauglýsingu og auglýsa
mjögvel i útvarpinu. Veru veröur nefnilega að auglýsa ef
hún á aó seljast betur en hún gerir og okkur vantar fleiri
áskrifendur til að tryggja rekstrargrundvöl1 blaðsins.
Jæja, meira siðar.
Sama