Fréttabréf - 01.07.1984, Side 8
8
ÁLANDSEYJARÁÐSTEFNA
Fyrir þremur árum var haldin norræn friðarráóstefna á
Álandseyjum sem tókst með miklum ágætum.
Dagana 4.-6. ágúst veróur enn á ný boðið til fundar til
að ræða stöðu norrænu eyjanna (Grænlands, Færeyja, íslands,
Álandseyja, Borgundarhólms, Gotlands og ölands) i hernaóar-
netinu og hvernig hægt verður aó stuðla aö afvopnun á
þessum svæðum.
Kristín Ástgeirsdóttir fer á fundinn og flytur erindi
um stöóu islands og er ekki aó efa að hún hefur frá mörgu
að segja þegar hún kemur til baka.
GESTIR
Kvennalistinn fær að jafnaði margar heimsóknir erlendra
gesta og hefur ekkert lát verið á i sumar. Blaðamenn
hafa komið frá Spáni, Danmörku og viðar og konur viða
að hafa litið inn á vikina til að fræðast.
Næstu mánuði veröur stödd hjá okkur hollensk stúlka,
Mecheline Draafsel, sem er að vinna verkefni um okkur.
Hennar fyrsta verk var að fara i rútuna vestur á firði,
en siðan fór hún að læra islensku og hyggst nú hefjast
handa við viðtöl og gagnasöfnun.
Þá má nefna að breskur herskólakennari Nigel de Lee átti
viðtal við nokkrar Kvennalistakonur um utanrikis- og
varnarstefnu Kvennalistans og má búast við að hann fjalli
eitthvað um málið i væntanlegri bók.
Það kom greinilega i ljós aö langt var á milli sjónarmiða
mannsins sem kennir hermönnum og okkar hér sem reynum
að beita kröftum okkar i þágu friðarins gegn hernaðarhyggju
og striðsbrölti.
DALAFERÐ - KONUR HITTA KONUR
NÚ hefur Kvennalistinn kastað mæðinni i höfuðborginni
eftir rútuferðina góðu og nú skal aftur haldiö á flakk.
Við ætlum vestur á land helgina 17.-19. ágúst til að
hitta konur þar vestra.
Þvi miður var hraðferð mikil á okkur i júnilok sem við
ætlum nú að bæta fyrir með fundum i Borgarnesi aö kvöldi
17. ágúst, i Bjarkarlundi kl. 14.00 laugardaginn 18.
og i Dalabúð i Búðardal sunnudaginn 19. ágúst.
Takið nú upp strigaskóna og svefnpokann og skráið ykkur
i ferðina. Rútuferðin var ógleymanleg og nú verður aftur
efnt til kvennabaráttu á hjólum. KOMIÐ ALLAR.