Fréttabréf - 01.07.1984, Síða 13
13
MIKILSVERÐIR FUNDIR
Landsfund þarf að undirbúa enn betur en siðast.
Þingráðsfundi þarf lika aó skipuleggja betur (hópar eru
t.d. nauðsynlegir). Fjalla þarf ura málefni sem eru á
dagskrá í þinginu. Gera þarf konur virkari, t.d. með
þvi að láta orðið ganga. Tillaga að nýju nafni: Þingmála-
fundir.
RÁÐSTEFNUR
1. Atvinnumál.
2. Kvenfrelsi - kvennapólitik.
3. Skólamál.
4. Málefni aldraðra.
5. Fikniefnamál.
ÞJÓÐARÁTAK 1 TRJÁRÆKT
Forsætisráóherra hefur samþykkt að skipa 10 manna
framkvæmdanefnd til þess að stuðla að þjóðarátaki i
trjárækt i þéttbýli og strjálbýli og minnast með þvi
40 ára afmælis lýóveldisstofnunar á Islandi.
Nefndin verður skipuð 10 mönnum. Hver þingflokkur
tilnefni einn fulltrúa og einnig verði fulltrúar tilnefndir
af Skógrækt rikisins, Skógræktarfélagi Islands, Sambandi
islenskra sveitarfélaga og forsætisráðherra.
Hlutverk nefndarinnar er að leggja fram framkvæmda-
áætlun i stórum dráttum um þjóðarátak i trjárækt, en ráðgert
er aó siðan komi til kasta sveitarstjórna viðs vegar
um land,aó ákveða hvernig heppilegast verói að standa að
framkvæmdum. Lögð verður áhersla á samstarf við einstök
skógræktarfélög og önnur þau félagasamtök og einstaklinga,
sem vilja leggja málinu lið.
Hér með er auglýst eftir Kvennalistakonu til að
starfa i nefndinni. Nefnarstarfið verður ólaunað.
VETRARSTARFIÐ
Þvi miður veróur að segja eins og er: Sumarið liður.
Haustið nálgast og þá þarf nú heldur betur að láta hendur
standa fram úr ermum til að undirbúa þingstarfið.
Fundur veröur haldinn i Þórshamri 16. ágúst kl. 20.00
til að undirbúa frumvörp o.fl.
Komið nú allar og standið við lög Samtaka um kvennalista
þar sem segir aö eitt af markmiðum okkar sé að standa
að baki þingkvenna og aðstoða þær.