Fréttabréf - 01.07.1984, Page 15
15
Við komum okkur saman um að senda bréf til fulltrúa
Stokkhólmsráðstefnunnar og lýstum m.a. i bréfinu vonbrigðum
okkar yfir þvi að enn ein afvopnunarráðstefnan skuli verða
haldin án þess að ný og frjórri vinnubrögð séu tekin upp,
orsakir ófriðar ræddar, og þvi að það skuli vera hernaðar-
sérfræðingar sem eru ráðgefendur stjórnmálamanna en engir
^ þeir sem hafa kynnt sér friðarmál og kynnu að hafa eitthvað
fram að færa i þeim efnum. Við lögðum til að 2% hernaðar-
útgjalda yrói varið til aó koma á friði í heiminum.
Ennfremur sendum við bréf til Sameinuðu Þjóðanna
og fórum fram á að kvennaáratugurinn yrði framlengdur til
ársins 2000 á þeim forsendum að frelsi kvenna ætti enn
langt i land sem kæmi m.a. fram i harðnandi átökum og
si auknu vigbúnaðarkapphlaupi.
Ennfremur lögðum viö á ráðin um frióarstarf okkar.
Bar þar einna hæst tillaga þeirra kvenna sem áttu frumkvæðið
að göngunum þremur. sú tillaga felur i sér aó á næsta ári
vinni Norðurlandabúar að þvi aö hvert land fyrir sig
lýsi þvi yfir að það sé kjarnorkuvopnalaust svæði.
Frændur okkar i Færeyjum hafa gefið okkur fordæmi
fyrir þessari aógeró en 28. okt. 1983 lýsti lögþing
Færeyinga þvi yfir að land þeirra sé kjarnorkuvopnalaust
svæði. - Við getum byrjað á þvi að friðlýsa húsin okkar -
götuna - hverfin - þorpin og bæina. Sveitafélög eöa friðar-
samtök gætu einnig fóstraó þingmenn sem væru tilbúnir til
^ að styðja friðlýsingu þeirra á þingi! Þessi hugmynd hefur
fengið góðar undirtektir hér á landi og er hópur fólks
að vinna að þvi aó hrinda henni i framkvæmd.
Þann 14. ágúst verður opinn fundur á Vikinni og munum
við Stokkhólmsfarar mæta og segja frá ýmsu sem er mjög
athyglisvert fyrir okkar starf i Kvennalistanum og ræða
áframhaldandi friðarstörf. Við vonumst til að sjá ykkur
sem flestar - og að sjálfsögðu gesti ykkar!
Kærar kveðjur - Hanna Maja og Imba.
SKRIFSTOFA REYKJANESANGA
Félagsfundur var haldinn mSnudaginn 9. júll að Reykjavíkurvegi 16
Hafnarfirði. Mörg mSl voru S dagskrS. Meðal annars var kosið I
nýja framkvamdanefnd. Eftirtaldar konur skipa nefndina.
■- Hafdls Guðmundsdóttir S: 53622
Þurlður Ingimundardðttir S: 52097
Rakel Benjamínsdðttir S: 92-7770
Þðrunn Friðriksdðttir S: 92-3765
Þðrunn Þðrarinsdðotir S: 92-2279
Guðrún Glsladðttir S: 45320
Ragnhildur Eggertsdðttir S: 52919
Einnig var kosið 1 undirbúningsnefnd landsfundar.
Þar urðu Bryndís Guðmundsdðttir og Ingibjörg Guðmundsdðttir
fyrir valinu.