Fréttabréf - 01.08.1991, Blaðsíða 1
FRETTABREF
8. tbl. 1991, 9. árgangur
Útg. Kvennalistinn, Laugavegi 17
s. 91-13725, fax: 91-27560
Áb. Ingibjörg Hafstaðog Laura V.
Vítamín
á vorþingi
Kanadíski prófessorinn Nina Colwell, sem hingaö
kom nýlega og flutti fyrirlestra um konur og völd, hefur sagt, aö
þegar konur séu jákvæöar og finni móöinn svella í brjósti sér
búi þær yfir þeim krafti, sem öllu getur breytt til betri vegar.
Á árvissu vorþingi Kvennalistans, sem haldiö var í
Skálholti 25. - 26. maí, ræddum viö einmitt mikiö um okkar
innri kraft, sem hefur boriö okkur þangaö, sem viö nú erum.
Margar eru reyndar ósáttar viö þann samastað, og Málmfríöur
orðaði þaö m.a. svo, aö sérfyndist hreyfingin okkar eins og
fugl, sem hefur misst flugiö og hlunkast niöur á stein. Þau
ummæli eru kannski dálítiö lýsandi fyrir vonbrigöi margra
þeirra, sem hafa lagt mestalla sína orku og tíma í Kvennalis-
tann undanfarin 8 -10 ár og bjuggust viö betri uppskeru í
aprílkosningunum. Flestar viröast þó búnar aö jafna sig
prýöilega eftir þau vonbrigöi og þó fyrst og fremst undrun, og
yngri Kvennalistakonunum finnst ekki nokkur ástæöa til
svartsýni. Þær finna þennan svellandi móö, sem dugir, og víst
er, aö allar fóru bjartsýnar og fullar af vítamíni heim af
Skálholtsþingi.
Danfríöur, Hafdís Ben., Málmfríöurog Sigrún Helga
skipulögöu dagskrá Vorþings, sem var í 4 köflum.