Fréttabréf - 01.08.1991, Blaðsíða 6
Borgartíðindi
Fréttabréfiö mun reyna aö gera starfi borgarmálahóps
Kvennalistans örlítil skil í næstu bréfum. Vegna plássleysis
veröur þetta bara yfirboröskynning en þaö er alltaf eitthvaö
áhugavert aö gerast í borgarmálum sem bæöi gagnlegt og
gaman er aö fyljast meö.
Á Borgarstjórnarfundi þann 16. maí s.l. lagði minnihlutinn fram
svohljóöandi tillögu:
“Nú, þegar kjörinn borgarstjóri í Reykjavík hefur hætt störfum
sem borgarstjóri og tekiö viö embætti forsætisráðherra landsins,
er þaö skylda borgarstjórnar aö taka ákvörðun um þaö, hvernig
veröi ráöiö í embætti borgarstjóra.
Eölilegt heföi veriö að fyrir þessum fundi lægi tillaga þess efnis.
Engin slík tillaga er á dagskrá. Valdabaráttan og óeining innan
borgarstjórnarflokks sjálfstæöismanna er svo mikil, aö þeir geta
ekki komið sér saman um val á nýjum borgarstjóra.
Það blasir því viö, aö um marga vikna skeiö mun
forsætisráöherra laridsins jaínramt vera borgarstjóri í Reykjavík.
Borgarstjórn telur aö þetta ástand sé meö öllu óeölilegt og
skorar á borgarstjóra aö biðjast þegar lausnar frá embætti og
samþykkir aö auglýsa starf borgarstjóra laust til umsóknar".
Tillagan var felld meö 10 atkvæöum gegn 5.
6